

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það ellefta varð norðan Grindavíkur í apríl 2025.

Segir misskilnings gæta um björgunarsveitartjaldið
Otti Rafn Sigmarsson, liðsmaður í björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík, segir ekki rétt að björgunarsveitartjald við eldstöðvarnar á Reykjanesi hafi staðið þar sem nú hefur myndast ný sprunga.

Hraun frá fjórðu sprungunni virðist renna í Geldingadali
Fjórða sprungan opnaðist á Reykjanesskaga í nótt. Sprungan opnaðist undir nýju hrauni og virðist það renna í Geldingadali.

Fólk á eigin ábyrgð á gossvæðinu fyrir hádegi
Lögregla og björgunarsveitir verða með vakt á gossvæðinu á Reykjanesi frá hádegi til miðnættis í dag en því verður lokað klukkan níu í kvöld. Ný gossprunga opnaðist á svæðinu í nótt en talið er að fleiri gætu opnast fyrirvaralaust. Svæðið er opið í dag en þeir sem ætla sér inn á gossvæðið fyrir hádegi er sagðir gera það á eigin ábyrgð.

Enn ein sprungan opnaðist í nótt
Sérfræðingar Veðurstofu Íslands telja líklegt að enn ein gossprungan hafi opnast á Reykjanesi í nótt. Talið er að nýjasta sprungan liggi miðja vegu milli gosstöðvanna sem opnuðust á hádegi á öðrum degi páska og sprungu sem opnaðist aðfaranótt miðvikudags.

Nýjar sprungur gætu opnast án fyrirvara
Vísbendingar eru um að frá sunnanverðum Geldingadölum og norðaustur fyrir gossprungurnar liggi kvika grunnt og er því ekki hægt að útiloka að fleiri gossprungur opnist á næstu dögum eða vikum. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Hraunflæði aukist og enginn endir í augsýn
Hraunrennsli í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur aukist töluvert undanfarna sólarhringa en venjulega dregur úr hraunflæði með tímanum.

Hefðu ekki átt að setja upp tjald þar sem ný sprunga myndaðist
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir að eftir á að hyggja hafi ekki verið gott að staðsetja björgunarsveitartjald þar sem líkur voru á að ný sprunga ætti eftir að myndast.

Fyrst sviði, þá hósti og svo lungnabjúgur allt að tveimur dögum seinna
Brennisteinsdíoxíð getur valdið eringu í húð, slímhúð og efri hluta öndunarfæra. Mikið magn getur valdið svokölluðum lungnabjúg en tveir sólahringar geta liðið þar til hann kemur fram.

Þrennt ber að varast; nýja gíga, hraunbrúnir og gasmengun
Það er þrennt sem ber að varast á gosstöðvunum; nýja gíga, hrun og undanhlaup á við hraunbrúnir og gasmengun. Þetta kom fram á upplýsingafundi vegna eldgossins í Fagradalsfjalli rétt í þessu.

Svona var upplýsingafundurinn um eldgosið
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar klukkan 11 þar sem farið verður yfir stöðu mála varðandi eldgosið á Reykjanesskaga.

Göngumennirnir komnir í leitirnar
Göngumennirnir tveir sem týndust við gosstöðvarnar í Geldingadal fyrr í kvöld eru komnir í leitirnar. Mennirnir komust af sjálfsdáðum niður af fjallinu og mættu þar björgunarsveitarfólki sem hafði verið að leita að þeim.

Björgunarsveitir leita að tveimur göngumönnum við gosstöðvarnar
Allar björgunarsveitir á suðvesturhorninu og Árnessýslu hafa verið kallaðar út vegna tveggja göngumanna sem eru týndir á gossvæðinu við Geldingadali. Hjálparbeiðni barst frá göngumönnunum sjálfum rétt fyrir klukkan tíu og leit er hafin.

Möguleiki á að sprunga opnist á gönguleiðinni
Möguleiki er á því að nýjar sprungur opnist vegna eldgossins í Fagradalsfjalli og gætu nýjar sprungur opnast bæði suður- og norður af þeim sprungum sem þegar hafa opnast. Eldfjallafræðingur segir fólk þurfa að vara sig við gosstöðvarnar en þar sé nú aukin hætta á gasmengun.

„Það er ekki hægt að íslensk móðir sýni dóttur sinni ekki eldgos“
Stríður straumur fólks hefur verið að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag og eru margir að berja eldgos augum í fyrsta sinn á æfinni. Veðrið í dag hefur líklega ekki skemmt fyrir enda sólríkt þó kuldinn sé mikill og rok á svæðinu.

Ískalt á gosstöðvunum og ekki í sóttkví
Þau Leyla og Usama frá Marokkó voru mætt í gallabuxum og úlpu á Suðurstrandarveg í dag á leiðinni í fjallgöngu. Þau komu til landsins í gær en töldu sig ekki þurfa að vera í sóttkví sökum þess að þau hefðu farið í próf og sýnt vottorð við komuna til landsins.

Sprunga númer tvö bjargaði tjaldinu frá bráðum dauða
Fyrsta nýja sprungan sem myndaðist á annan í páskum í Fagradalsfjalli til viðbótar við upphaflega gíginn má segja að hafi verið lán í óláni fyrir björgunarsveitir á svæðinu, sem ákváðu vegna hennar að færa tjaldið sem komið hafði verið upp á svæðinu.

„Jökulkalt þarna upp frá og engar aðstæður til að stoppa“
Opnað var á aðgengi almennings að gosstöðvunum á Reykjanesskaga í morgun en leiðindaveður hefur gert það að verkum að fáir hafa lagt í gönguna.

Handóðu prjónararnir illa sviknir þegar Freysteinn birtist í skyrtunni einni á skjánum
Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur er heitasta prjónapeysumódel landsins.

Opið en mikilvægt að fólk mæti vel búið til göngunnar
Gosstöðvarnar á Reykjanesskaga eru nú opnar almenningi að nýju en þar var opnað fyrir umferð klukkan sex í morgun eins og reynt er að gera alla jafna.

Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman
„Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum.

Auðveldari gönguleið stikuð að gosinu framhjá kaðlinum
Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt.

Rýma gossvæðið vegna gasmengunar
Lögreglan á Suðurnesjum rýmir nú gossvæðið í Geldingadölum og nágrenni vegna mikillar gasmengunar. Allir þeir sem eru á svæðinu eru beðnir um að yfirgefa það sem fyrst.

Þingmenn fóru inn á lokað svæði sem vísindamenn
Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fóru að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær þegar svæðið var lokað almenningi. Vísindamenn og fjölmiðlamenn fengu aðgang að svæðinu eftir að því var lokað vegna hættu á nýjum sprungum.

Ekki ólíklegt að gjósi á fleiri stöðum
Hópstjóri náttúruvár á Veðurstofunni segir ekki ólíklegt að fleiri gossprungur eigi eftir að myndasta á Reykjanesi en þriðja spurngan hóf að gjósa þar um miðnætti. Ekki viðri vel fyrir almenning að fara að gosstöðvunum í dag.

„Það er þessi lína sem liggur til norðausturs sem er hættuleg“
Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur segir nýjan kafla að hefjast í eldgosinu í Geldingadölum, nú þegar nýjar sprungur hafa opnast. Hún telur ekki ólíklegt að sprunga opnist áfram í norðaustur og nær Keili. Fólk eigi ekki að vera á ferli á tiltekinni „línu“ til norðausturs sem kvikugangurinn teiknar upp.

500 milljónir í gosslóðir
Þegar eldgos brjótast út verða Íslendingar eins og börn. Auðvitað höfum við fyrst áhyggjur af lífi og limum fólks þegar byrjar að gjósa, en þegar öryggi manna og dýra virðist tryggt fyllist hvert mannsbarn spenningi og við verðum öll sérfræðingar í kvikuhólfum, þroskaðri eða vanþroskaðri kviku og setjum fram okkar eigin kenningar um hvert hraunelfurinn muni streyma næst.

Bílastæðin opin en viðbragðsaðilar funda um þróun mála kl. 9
Ekki hefur verið tilkynnt um breytingar á opnun á gossvæðinu í og umhverfis Geldingadali þrátt fyrir þróun mála í nótt. Samkvæmt stöðufærslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum frá því í gærkvöldi stóð til að opna kl. 6 í morgun.

„Þetta er þar sem fólk stóð fyrir viku síðan“
Kári Rafn Þorbergsson björgunarsveitarmaður frá Hellu er einn fjögurra sem stóð til að stæðu næturvaktina á gosstöðvunum í nótt. Fjölgað hefur í þeim hópi eftir að ný sprunga opnaðist á miðnætti.

Ný sprunga hefur opnast og hraun rennur inn í Geldingadali
Hraun streymir nú úr nýrri sprungu sem sérfræðingar á Veðurstofu Íslands tóku eftir um miðnætti. Erfitt er að greina á þessu stigi hve stór sprungan er.

Hraunrennslið að komast í fyrra horf
Dregið hefur úr hraunflæði úr eldgosinu á Reykjanesi og er það nú svipað og dagana áður en ný gossprunga opnaðist í gær. Hraunrennslið er sagt lítið í samanburði við flest önnur gos en ákaflega stöðugt.