
Vísuðu ferðamönnum sem áttu að vera í sóttkví frá gossvæðinu
Lögregla vísaði í gær fjórum ferðamönnum frá gönguleiðinni að Geldingadölum þegar í ljós kom að þeir áttu að vera í sóttkví.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það ellefta varð norðan Grindavíkur í apríl 2025.
Lögregla vísaði í gær fjórum ferðamönnum frá gönguleiðinni að Geldingadölum þegar í ljós kom að þeir áttu að vera í sóttkví.
Þrátt fyrir að Matvælastofnun ráðleggi fólki að taka ekki með sér hunda á gosstöðvarnar í Geldingadölum eru enn brögð að því að fólk taki hunda með sér. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það vera líkt og kanarífugl í kolanámu.
Þó nokkur fjöldi manns, þó ekki jafn mikill og í gærmorgun, var mættur í biðröð til að komast að gosinu í Geldingadölum þegar lögregla opnaði fyrir umferð um gönguleiðina klukkan sex í morgun. Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, segir veðrið gott og daginn lofa góðu.
Stríður straumur fólks barst að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag. Fjöldi var þegar mættur áður en svæðið var opnað af viðbragðsaðilum klukkan sex og segir aðalvarðstjóri lögreglunnar í Grindavík að vel hafi gengið á svæðinu í dag.
Par sem staðfesti trúlofunarheit sín við eldgosið í Geldingadölum í morgun segir það hafa verið einstaka stund. Prestur sem átti leið hjá þar sem þau voru uppábúinn bauðst til að gefa þau saman. Þau voru ekki alveg til í það en fengu blessun.
Lítið lát virðist á hraunrennsli úr gosstöðvunum í Geldingadölum. Mesta breytingin upp á síðkastið er sú að meiri kraftmunur er á virkni úr gígunum tveimur en áður. Gígarnir hafa fengið viðurnefnin Norðri og Suðri, til aðgreiningar.
Áætlað er að tvö til þrjú hundruð manns hafi verið mættir á gossvæðið klukkan sjö í morgun. Reglubundnar rútuferðir frá Grindavík upp að stikuðu gönguleiðinni að gosinu í Geldingadölum hófust í morgun.
Eldgos virðist vera heitasta umræðuefnið hér á landi þessa dagana. En hvernig er best að bregðast við eldgosi?
Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir dæmi þess að fólk mæti klukkutíma fyrir opnun Suðurstrandarvegar til þess að geta gengið í Geldingadali og séð eldgosið án þess að þar sé múgur og margmenni.
Færri komust að en vildu til að berja eldgosið í Geldingadölum á Reykjanesi augum í gærkvöldi. Þeir sem þangað komu fengu að njóta náttúruaflanna og fylgjast með rauðglóandi hrauninu vella upp úr eldkeilunni sem hefur verið að myndast.
Almannavarnir skoða nú hvort tekin verði upp grímuskylda við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Tugir þúsunda manna hafa lagt leið sína að gosinu undanfarna viku en engin grunur hefur komið upp um að kórónuveira hafi smitast á milli fólks þar enn sem komið er.
Þegar náttúran lætur til sín taka er ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, best þekktur sem RAX, ekki langt undan. Hann hefur flogið fjórum sinnum yfir eldgosinu í Geldingadal til að mynda en gosið tekur stöðugum breytingum.
Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma að gosstöðvunum í Geldingadölum til þess að koma í veg fyrir umferðaröngþveiti og til þess að auka öryggi þeirra sem gosstöðvarnar sækja. Dæmi eru um að fólk sem beðið hafi í bílum sínum í allt að þrjár klukkustundir eftir að komast inn á svæðið í gær hafi verið snúið frá þegar svæðinu var lokað.
Mikil mengun er á gossvæðinu í Geldingadölum sem getur haft skaðleg áhrif á hunda og jafnframt hætta á ýmis konar slysum. Matvælastofnun mælir eindregið gegn því að hundar séu teknir með að gossvæðinu.
Opnað verður fyrir umferð að gosstöðvum klukkan sex að morgni fram yfir páska, að því gefnu að það viðri vel til útivistar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum sem minnir einnig á að sóttvarnalæknir hefur hvatt fólk til að fara ekki að gosinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Fólk var á gosstöðvunum fram á nótt og voru síðustu gestirnir ekki farnir af svæðinu fyrr en um tvöleytið að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er óljóst hvenær gossvæðið verður opnað í dag en líkt og í fyrrakvöld var því lokað á miðnætti og hófst þá rýming.
Átta sjálfboðaliðar frá sjö löndum tíndu upp rusl við eldstöðina í Geldingadölum í dag. Fyrir utan sígarettustubba, munntóbakspoka, dósir og annað smálegt hirtu þeir upp leifar hundraða mannbrodda frá göngufólki.
Lokað hefur verið fyrir bílaumferð að gossvæðinu í Geldingadölum. Mikil bílaröð myndaðist síðdegis og náði hún alla leiðina að afleggjaranum að Bláa lóninu á Grindavíkurvegi.
Eldgos í Geldingadölum gæti varað í marga mánuði ef ekki nokkur ár, að mati Þorvalds Þórðarsonar, prófessors í eldfjallafræði. Hann segir að enn sé nóg í tankinum.
Sex sinnum fleiri komur og brottfarir verða um Keflavíkurflugvöll um páskana en í fyrra. Þær eru þó tífalt færri en árið 2019. Ferðamálastjóri telur eldgosið í Geldingadölum verða fjölfarnasta ferðamannastað landsins næstu misseri en er ekki bjartsýnn á sumarið.
Ákveðið hefur verið að loka fyrir umferð að eldstöðinni í Geldingadali tímabundið og óvíst er hvort að opnað verði aftur í kvöld. Gríðarleg bílaröð hefur myndast frá bílastæðum við upphaf gönguleiðarinnar og í gegnum Grindavík.
Þegar Thelma Dögg Grétarsdóttir, landsliðskona í blaki og félagar hennar í landsliðshópnum gerðu sér leið að gosstöðvunum í Geldingadölum var lítil spurning um að taka með sér blakboltann.
„Þetta var nú bara stutt rafmagnsleysi núna,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, en nú fyrir stundu sló rafmagninu út í bænum í um 20 mínútur. Orsakirnar eru ókunnar en heppilegt að það gerðist ekki seinna í dag, þegar fjarbæjarstjórnarfundur er á dagskrá, segir Fannar.
Mikið mæðir nú á viðbragðsaðilum á Suðurnesjum. Nú þegar hafa 16 þúsund manns komið að sjá gosið í Geldingadölum og það hefur kallað á mikla viðveru við umferðarstjórnun og almenna gæslu.
Mannbroddar hafa verið nefndir sem nauðsynlegur búnaður fyrir göngu inn í Geldingadali. Og ekki að ástæðulausu. Fjölmargir hafa slasast á leið sinni til og frá gosstöðvunum og virðast flestir hafa slasast í hálku.
Jóhann Issi Hallgrímsson, veitingamaður og eigandi Issi Fish and Chips, mun hefja sölu á veitingum á bílastæði í Nátthagakrika við stikuðu gönguleiðina að gosstöðvunum í Geldingadal síðar í dag.
Kolbeinn Óttarsson Proppé er að senda frá sér um þessar mundir bók um eldgos og fjallar þar meðal annars um það gos sem nú er yfirstandandi í Geldingadölum á Reykjanesi – sem er reyndar kjördæmi þar sem Kolbeinn ætlar sér að sækja fram í.
Um 18400 manns hafa sótt gosstöðvarnar heim frá því að Ferðamálastofa setti upp teljara sinn á gönguleiðinni inni í Geldingadal á miðvikudag. Þetta segir Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri í samtali við Vísi.
Töluverður fjöldi beið eftir því að geta gengið inn að gosstöðvum í Geldingardölum þegar lögregla opnaði svæðið fyrir almennri umferð klukkan níu í morgun. Hjálmar Hallgrímsson, lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir fólk hafa verið þolinmótt.
Stefnt er að því að gönguleiðirnar að gosstöðvunum í Geldingadölum verði opnaðar klukkan níu en þeim var lokað klukkan níu í gærkvöldi.