
„Eru ekki með framherja né markmann sem vinna fyrir þá deildina“
Jamie Carragher, fyrrum knattspyrnumaður og nú álitsgjafi í sjónvarpi, segir að Arsenal muni eiga erfitt með að veita Manchester City alvöru samkeppni um ensku úrvalsdeildina.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Jamie Carragher, fyrrum knattspyrnumaður og nú álitsgjafi í sjónvarpi, segir að Arsenal muni eiga erfitt með að veita Manchester City alvöru samkeppni um ensku úrvalsdeildina.
Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, fór fögrum orðum um Bernardo Silva eftir sigur liðsins gegn Bournemouth í gær.
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, var virkilega ósáttur með myndbandsdómgæsluna í leik liðsins gegn Newcastle í kvöld.
Anthony Gordon reyndist hetja Newcastle er liðið lagði Arsenal af velli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Dramatíkin var allsráðandi í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sheffield Utd. sótti sinn fyrsta sigur á tímabilinu með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma, Jóhann Berg spilaði í tapi Burnley gegn Crystal Palace, Mohamed Kudus skoraði glæsimark úr bakfallsspyrnu en Brentford komu til baka og sóttu sigurinn.
Manchester City fór létt með Bournemouth í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Jeremy Doku var tvímælalaust maður leiksins eftir að hafa skorað opnunarmarkið og lagt svo upp næstu fjögur mörk.
Manchester United sótti langþráðan sigur gegn Fulham í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Allt stefndi í markalaust jafntefli eftir að mark Scott McTominay var dæmt af en Bruno Fernandes tókst að skora sigurmarkið í uppbótartíma.
Marcus Rashford bað þjálfara sinn og liðsfélaga afsökunar á því að hafa skellt sér út á lífið eftir 3-0 tap Manchester United gegn Manchester City síðustu helgi. Erik Ten Hag, þjálfari liðsins, sagði slíka hegðun vera „óásættanlega“.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að kólumbíski kantmaðurinn Luis Diaz fái sjálfur að ákveða hvort hann treysti sér til að spila í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir að föður hans var rænt í heimalandi þeirra.
Eftir sex sigurleiki í röð er sigurganga Leicester á enda í ensku B-deildinni í knattspyrnu á enda eftir 0-1 tap gegn Leeds í kvöld.
Enska knattspyrnusambandið, FA, rannsakar nú hvort Sandro Tonali, leikmaður Newcastle, hafi brotið veðmálareglur eftir að hann gekk í raðir liðsins frá AC Milan í sumar.
Manchester United vill fá framherja í janúar til að létta undir með hinum tvítuga Rasmus Højlund. Ivan Toney er meðal þeirra sem er í sigti United.
Silfurlið ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, Arsenal, færist nær því að kaupa einn efnilegasta leikmann Belgíu. Sá heitir Arthur Vermeeren og er átján ára miðjumaður hjá Belgíumeisturum Antwerp.
Manchester United hefur fengið fleiri stig í ensku úrvalsdeildinni en þeir hafa átt skilið ef marka má tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar yfir xG eða áætluð mörk.
Hinn 32 ára gamli Henri Lansbury lagði knattspyrnuskóna nýverið á hilluna. Í viðtali við Sky Sports staðfesti þessi fyrrverandi miðjumaður að hann hefði sigrast á eistnakrabbameini árið 2016 er hann var leikmaður Nottingham Forest í ensku B-deildinni.
Faðir Liverpool leikmannsins Luis Diaz er vonandi á heimleið sem fyrst. Honum var rænt af skæruliðasamtökum sem segjast nú ætla að sleppa honum.
Ekki nóg með að Manchester United hafi steinlegið á heimavelli gegn Newcastle United í leik liðanna í enska deildarbikarnum heldur fór brasilíski miðjumaðurinn Casemiro meiddur af velli í hálfleik. Ólíklegt er að hann verði með liðinu um komandi helgi.
Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur látið franska framherjann Anthony Martial heyra. Að mati Nevilles á Martial ekki að spila fyrir United.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fékk að vita það á blaðamannafundi eftir sinn leik í enska deildabikarnum í gærkvöldi að Manchester United hafði á sama tíma steinlegið á heimavelli sínum á móti Newcastle.
Sextán liða úrslit enska deildabikarsins kláruðust í gærkvöldi þar sem Newcastle fylgdi því eftir að slá út Englandsmeistara Manchester City í 32 liða úrslitunum með því að slá nágranna þeirra í Manchester United út í sextán liða úrslitum.
Erik Ten Hag bað stuðningsmenn Manchester United afsökunar eftir 3-0 tap liðsins gegn Newcastle í 16-liða úrslitum deildabikarsins í gær. Þetta var annað þriggja marka tap liðsins á heimavelli í röð.
Manchester United er úr leik í enska deildabikarnum eftir slæmt 3-0 tap gegn Newcastle á heimavelli í kvöld. Þetta er annað þriggja marka tap United á heimavelli í röð.
Liverpool er komið í næstu umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu eftir 2-1 útisigur á Bournemouth. Jóhann Berg Guðmundsson og Arnór Sigurðsson eru báðir úr leik eftir töp Burnley og Blackburn.
West Ham vann í kvöld góðan 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Arsenal þegar liðin mættust í enska deildabikarnum í knattspyrnu.
Stuðningsmaður Wolves í ensku úrvalsdeildinni hefur verið fundinn sekur um rasisma gagnvart Rio Ferdinad þegar sá síðarnefndi var við störf fyrir sjónvarpsstöðina BT Sport.
Hrekkjavakan kallar fram skemmtilega búninga hjá fólki og margir sækja hugmyndir í íþróttaheiminn.
Sir Bobby Charlton lést af slysförum eftir að hafa misst jafnvægið og dottið á hjúkrúnarheimilinu sem hann bjó á. Frá þessu er greint á vefsíðu BBC og vitnað í niðurstöður réttarmeinafræðings.
Nánast allt virðist í ólagi hjá Manchester United, meðal annars búningamálin. Leikmenn liðsins hafa nefnilega kvartað undan of þröngum búningum.
Gifton Noel-Williams er ekki beint stjóratýpan þegar kemur að útlitinu. Hann ætlar heldur ekki að breyta því og í grein hjá BBC er bent á hvort að það sé kominn tími til að breyta þessu.
Reglusmiðirnir hjá International Football Association Board, IFAB, hafa útilokað möguleikann á því að samskipti dómara og myndbandadómara verði spiluð í beinni.