
Englandsmeistararnir slógu bikarmeistarana úr leik
Englandsmeistarar Manchester City eru á leið í átta liða úrslit enska deildarbikarsins á kostnað ríkjandi bikarmeistara Liverpool efti 3-2 sigur í frábærum leik í kvöld.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Englandsmeistarar Manchester City eru á leið í átta liða úrslit enska deildarbikarsins á kostnað ríkjandi bikarmeistara Liverpool efti 3-2 sigur í frábærum leik í kvöld.
Pep Guardiola segir að hann verði að stýra Manchester City til sigurs í Meistaradeild Evrópu til að tími hans hjá félaginu teljist fullkomnaður.
Fenway Sports Group, sem á meirihluta í enska fótboltaliðinu Liverpool, ætla að selja félagið til að demba sér í bandaríska körfuboltann ásamt körfuboltastjörnunni LeBron James sem á einnig hlut í Liverpool. Þeir hyggjast stofna nýtt lið í NBA-deildinni.
Knattspyrnukonurnar Vivianne Miedema og Beth Mead eru ekki bara tvær af bestu framherjum heims því þær eru líka í sambandi.
Manchester United lagði Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley í enska deildarbikarnum í kvöld. Lokatölur á Old Trafford 2-0 heimamönnum í vil.
Nýkrýndi heimsmeistarinn Lisandro Martínez var með tilboð frá Arsenal á borðinu síðasta sumar en vildi frekar endurnýja kynnin við Erik ten Hag, stjóra Manchester United.
Dean Holden, fyrrverandi leikmaður Vals, hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Charlton Athletic í ensku C-deildinni.
Jóhann Berg Guðmundsson segir að yngri leikmenn Burnley séu svekktir að fá ekki tækifæri til að mæta Cristiano Ronaldo þegar liðið sækir Manchester United heim í 4. umferð enska deildabikarsins í kvöld.
Forráðamenn Real Madrid eru bjartsýnir á að vinna kapphlaupið um enska landsliðsmanninn Jude Bellingham.
Leicester City, Newcastle United, Southampton og Úlfarnir eru öll komin áfram í enska deildarbikarnum í fótbolta.
Ivan Toney, framherji Brentford í ensku úrvalsdeildinni, var á dögunum kærður fyrir fjölda brota á veðmálareglum deildarinnar. Nú hafa 30 brot bæst við kæruna.
Manchester United hefur virkjað framlengingarákvæði samninga fjögurra leikmanna liðsins en forráðamenn félagsins ákváðu að gera það ekki hjá markverðinum David De Gea.
Vivianne Miedema, framherji Arsenal á Englandi og hollenska landsliðsins, sleit krossband í vikunni. Enska félagið staðfesti tíðindin í dag.
Enskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að orða miðvallarleikmenn við Liverpool síðustu daga en talið er að Jürgen Klopp muni hressa upp á miðsvæðið þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.
Sögusagnir um það að Chelsea sé að krækja í franska leikmanninn Christopher Nkunku. Nkunku kemur frá RB Leipzig og mun leika með Chelsea frá og með næsta sumri.
Manchester United þarf að fækka áhorfendum á deildabikarleik sinn á móti Burnley vegna þess að sjúkraliðar eru í verkfalli.
Liverpool þarf að styrkja miðjuna hjá sér og það helst i gær. Þrír leikmenn sem spiluðu vel á HM í Katar eru orðaðir við enska úrvalsdeildarfélagið.
Ekkert er ókeypis í lífinu og þar með talið er að leyfa leikmönnum að taka þátt á stórmóti í fótbolta. Alþjóðaknattspyrnusambandið borgar félögum leikmanna fyrir hvern dag sem þeir voru í Katar. Manchester City fékk langmest af liðunum í ensku úrvalsdeildinni.
Hollywood-leikarinn Michael B. Jordan er nýr hluteigandi enska úrvalsdeildarliðsins Bournemouth. Félagið tilkynnti um fjárfestingu Jordans í dag.
Loris Karius talar ekki illa um knattspyrnustjóra Liverpool þrátt fyrir að Jürgen Klopp hafi hent honum úr liðinu eftir mistökin dýrkeyptu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2018.
Ein af stóru sögum heimsmeistaramótsins í Katar var þegar Cristiano Ronaldo missti sæti sitt i byrjunarliði Portúgals og í staðinn kom Goncalo Ramos inn í liðið og skoraði þrennu.
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, hefur tjáð sig um fjarveru Jadon Sancho frá æfingum félagsins en Sancho æfir einn þessa dagana.
Lucas Leiva, fyrrum miðjumaður Liverpool, æfir ekki lengur með brasilíska félaginu Gremio og ástæðurnar eru heilsufarslegar.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur mikla trú á enska landliðsframherjanum Marcus Rashford.
Liverpool var að vonast eftir því að fá kólumbíska framherjann Luis Diaz sterkan inn eftir HM-fríið en af því verður ekki.
Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir og félagar hennar í West Ham unnu flottan 2-0 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Knattspyrnugoðsögnin Claude Makélélé, sem gerði góða hluti í ensku úrvalsdeildinni og með franska landsliðinu, segir að enska knattspyrnusambandið eigi að gera allt til þess að halda Gareth Southgate í stöðu landsliðsþjálfara.
Enska knattspyrnuliðið Manchester United er til sölu. Talið er að eigendur þess, Glazer-fjölskyldan, vilji á milli sex til sjö milljarða sterlingspunda fyrir félagið eða um það bil þúsund milljarða íslenskra króna.
JuJu Smith-Schuster, leikmaður Kansas City Chiefs í NFL-deildinni, virðist mikill aðdáandi Waynes Rooney ef marka má fagn Smith-Schuster í sigri Chiefs á Denver Broncos um liðna helgi.