

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Arthur sagði strax já við Liverpool
Brasilíski miðjumaðurinn Arthur Melo er á leið til Liverpool í dag á lokadegi félagaskiptagluggans í evrópskum fótbolta.

United kynnir Antony til leiks
Manchester United hefur tilkynnt um kaup félagsins á Brasilíumanninum Antony frá Ajax í Hollandi. Skiptin hafa legið í loftinu um hríð.

„Ég veit ekki hvenær þessi regla dó“
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum ánægður með dramatískan 2-1 sigur liðsins á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Hann setur hins vegar spurningarmerki við það hvernig reglum leiksins er framfylgt.

Ronaldo vildi Maguire á bekkinn
The Athletic hefur greint frá því að Cristiano Ronaldo, ásamt nokkrum öðrum leikmönnum Manchester United, hafi fundað með þáverandi þjálfari Ralf Rangnick til að finna lausnir á slakri spilamennsku liðsins. Ronaldo stakk upp á því að setja Harry Maguire, fyrirliða liðsins, á varamannabekkinn.

Helstu félagaskipti kvöldsins: Dest til AC Milan, Alfreð til Lyngby og Chelsea í leit að leikmönnum
Félagaskiptaglugginn í flestum stærstu knattspyrnudeildum Evrópu lokar á morgun og enn er fjöldi liða í leit að nýjum leikmönnum. Hér að neðan má sjá helstu félagaskipti kvöldsins sem og háværustu orðrómana.

Arteta súr að hafa ekki skorað fjögur eða fimm
„Ég er mjög ánægður með sigurinn, það er svo erfitt að vinna leiki í þessari deild,“ sagði sigurreifur Mikel Arteta eftir að Arsenal vann sinn fimmta leik í röð í kvöld. Liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga.

Enginn skoraði fleiri mörk í fyrstu fimm leikjum sínum en Håland
Erling Braut Håland skoraði þrennu í stórsigri Englandsmeistara Manchester City á nýliðum Nottingham Forest. Håland hefur nú skorað níu mörk í fyrstu fimm leikjunum sínum í deildinni en það er met.

Carvalho tryggði Liverpool sigur með síðustu spyrnu leiksins
Liverpool vann hádramatískan sigur á Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 2-1 Liverpool í vil en Newcastle var yfir í hálfleik.

Allt jafnt í Lundúnaslagnum
West Ham United og Tottenham Hotspur gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Martinelli sá til þess að Skytturnar eru enn með fullt hús stiga
Gabriel Martinelli skoraði það sem reyndist sigurmark Arsenal er Aston Villa mætti á Emirates-völlinn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 2-1 og lærisveinar Mikel Arteta enn með fullt hús stiga.

Håland skoraði þrjú í fyrri hálfleik er Man City rótburstaði nýliðana
Englandsmeistarar Manchester City rótburstuðu nýliða Nottingham Forest er liðin mættust á Etihad-vellinum í Manchester í kvöld. Lokatölur 6-0 eftir að Erling Braut Håland sá til þess að heimamenn voru 3-0 yfir í hálfleik.

Tuchel fær sekt fyrir ummæli sín um Taylor
Thomas Tuchel, þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, hefur verið sektaður um tuttugu þúsund pund fyrir ummæli sem hann lét falla eftir leik sinna manna gegn Tottenham Hotspur á dögunum.

Nóg um að vera á skrifstofu Southampton
Þó svo að enska úrvalsdeildarfélagið Southampton hafi unnið góðan 2-1 sigur á Chelsea um liðna helgi þá ætlar liðið heldur betur að styrkja sig áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Kviðdómur í máli Giggs komst ekki að niðurstöðu
Búið er að leysa frá störfum kviðdóminn sem skera átti úr um sekt eða sakleysi Ryan Giggs, sem ákærður var fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína og yngri systur hennar líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Í fyrsta sinn í tuttugu ár sem Ronaldo spilar ekki í Meistaradeildinni
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, fullyrti á blaðamannafundi í dag að með komu Antony og Martin Dubravka yrðu ekki frekari breytingar á leikmannahópi liðsins fyrir lok félagaskiptagluggans.

Klopp: Rosalega harkalegt hjá stressuðum eigendum
Jürgen Klopp segir það með hreinum ólíkindum að eigendur Bournemouth hafi rekið knattspyrnustjórann Scott Parker í byrjun vikunnar, eftir 9-0 tap liðsins gegn lærisveinum Klopp í Liverpool.

Chelsea gerði Fofana að einum dýrasta varnarmanni sögunnar
Chelsea hefur gengið frá kaupunum á franska varnarmanninum Wesley Fofana frá Leicester City.

Innbrotsþjófar kjálkabrutu Aubameyang og skiptin til Chelsea í uppnámi
Pierre-Emerick Aubameyang, leikmaður Barcelona, er kjálkabrotinn eftir að innbrotsþjófar réðust á hann á heimili hans. Þetta setur möguleg félagaskipti hans til Chelsea í uppnám.

City að fá stærðfræðiséní í vörnina
Manchester City er við það að ganga frá kaupum á svissneska miðverðinum Manuel Akanji frá Borussia Dortmund. Hann verður þá annar leikmaðurinn sem fer þá leið í sumar á eftir Norðmanninum Erling Braut Haaland.

„Hann vill að ég fái fleiri stelpur til að taka upp mínar hefðir“
Dagný Brynjarsdóttir segir að nú sé mögulega síðasti sénsinn hennar til að komast með íslenska landsliðinu í lokakeppni HM í fótbolta. Hún mætir í landsleikina við Hvíta-Rússland og Holland eftir að hafa nýverið fengið nýtt ábyrgðarhlutverk hjá West Ham.

Leedsarinn lastar Lampard: „Þetta er hörmulegt“
Bandaríkjamaðurinn Jesse Marsch var vonsvikinn eftir 1-1 jafntefli lærisveina sinna í Leeds við Everton í ensku úrvalsdeildinni gærkvöld. Sérstaklega var hann ósáttur við það hvernig Everton nálgaðist leikinn.

Klopp segist vilja taka meiri áhættu á leikmannamarkaðnum
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vilja taka meiri áhættu á leikmannamarkaðnum nú þegar félagið er í leit að miðjumanni rétt áður en félagsskiptaglugginn í flestum deildum evrópu lokar á morgun.

Tuchel: „Þarf ekki mikið til að vinna okkur“
Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, var sár og svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Southampton í fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Hann segir að liðið eigi erfitt með einbeitingu og að önnur lið þurfi ekki að gera mikið til að vinna Chelsea eins og staðan er núna.

Jóhann Berg og félagar unnu annan leikinn í röð
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley annan leikinn í röð í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld er liðið vann sinn annan deildarleik í röð. Lokatölur 2-0 gegn Millwall og Burnley situr nú í þriðja sæti deildarinnar.

Leeds og Everton skiptu stigunum á milli sín
Leeds United og Everton skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Southampton snéri taflinu við gegn Chelsea
Southampton vann óvæntan 2-1 sigur er liðið tók á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Góð byrjun nýliðanna heldur áfram | Wissa bjargaði stigi fyrir Brentford
Tveimur leikjum af fjórum sem fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er nú lokið. Nýliðar Fulham halda áfram á sinni góðu byrjun, en liðið vann 2-1 sigur gegn Brighton. Á sama tíma gerðu Crystal Palaze og Brentford 1-1 jafntefli þar sem Yoane Wissa reyndist hetja gestanna.

Fulham að fá fyrrverandi leikmann Arsenal og Chelsea
Brasilíski miðjumaðurinn Willian er að öllum líkindum á leið í ensku úrvalsdeildina á ný eftir árs fjarveru. Þessi fyrrverandi leikmaður Arsenal og Chelsea er nú líklega á leið til Fulham.

Reynolds gagnrýnir streymisbann og segir liðið verða af umtalsverðum tekjum
Hollywood-stjarnan Ryan Reynolds, annar eigenda enska utandeildarliðsins Wrexham, hefur gagnrýnt streymisbannið sem í gildi er fyrir lið í neðri deildum Englands og segir það verða til þess að félögin missi af umtalsverðum tekjum.

Dýrasti félagaskiptagluggi Man United frá upphafi
Með tilkomu Brasilíumannsins Antony hefur Manchester United bætt félagsmet er kemur að eyðslu í einum og sama félagaskiptaglugganum. Félagið hefur eytt fúlgum fjár í leikmenn undanfarin ár án þess þó að ná tilætluðum árangri.