Reyndu að spila kvennalandsleik í einum stórum polli Leikur Albaníu og Írlands í Þjóðadeild kvenna fór fram við hræðilegar aðstæður á Loro Borici leikvanginum í Shkodër í Albaníu. Fótbolti 2. nóvember 2023 15:30
Neville lætur Martial heyra það: „Hann ætti ekki að byrja leiki í neinni keppni“ Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur látið franska framherjann Anthony Martial heyra. Að mati Nevilles á Martial ekki að spila fyrir United. Enski boltinn 2. nóvember 2023 14:31
Ronaldo bað um að dómara yrði skipt út af Cristiano Ronaldo var langt frá því að vera sáttur við dómara leiksins Al-Nassr og Al-Ettifaq og bað um að honum yrði skipt af velli. Fótbolti 2. nóvember 2023 13:31
Sædís Rún æfir með Chelsea Íslenska landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir er flogin til Englands þar sem hún mun æfa með Englandsmeisturum Chelsea næstu daga. Fótbolti 2. nóvember 2023 13:00
Viðbrögð Klopp við tapi Man. United segja meira en þúsund orð Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fékk að vita það á blaðamannafundi eftir sinn leik í enska deildabikarnum í gærkvöldi að Manchester United hafði á sama tíma steinlegið á heimavelli sínum á móti Newcastle. Enski boltinn 2. nóvember 2023 12:31
Sagði Albert uppgötvun tímabilsins og kallaði hann hinn íslenska Dybala Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í vetur og fékk skemmtilegt hrós í vinsælu hlaðvarpi. Fótbolti 2. nóvember 2023 11:31
„Langar ekkert að fara þaðan sem manni líður vel“ Ísak Bergmann Jóhannesson nýtur lífsins út í ystu æsar hjá Fortuna Düsseldorf. Hann vonast til að spila með liðinu í þýsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Fótbolti 2. nóvember 2023 11:00
Ólöf valin nýliði ársins í Ivy League Íslenska knattspyrnukonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir var heiðruð með flottum verðlaunum eftir fyrsta tímabil sitt með Harvard-háskólanum. Fótbolti 2. nóvember 2023 10:31
Hafði ekki skorað í ár en gerði svo þrennu: „Þetta eru tómatsósuáhrifin“ Ísak Bergmann Jóhannesson segir að leikur Fortuna Düsseldorf gegn Unterhaching í þýsku bikarkeppninni í fyrradag sé einn af hans eftirminnilegustu á ferlinum. Skagamaðurinn skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum í leiknum og lagði auk þess upp eitt mark. Fótbolti 2. nóvember 2023 09:01
Alexander á leið í grill til Arons Einars þegar hann lendir í Katar Handboltamaðurinn Alexander Petersson leikur næsta mánuðinn með Al Arabi í Katar en Valsmenn hafa lánað leikmanninn út nóvember. Hann er líka í stóra hóp íslenska landsliðsins fyrir EM í Þýskalandi í janúar. Handbolti 2. nóvember 2023 08:00
Gagnrýnir forseta FIFA fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð í bakherbergjum Hin röggsama Lise Klavenes frá Noregi er vön því að láta forystumenn Alþjóða knattspyrnusambandsins heyra það og hún er mjög ósátt með fyrirkomulagið við valið á næstu gestgjöfum HM. Fótbolti 2. nóvember 2023 07:41
Kristinn Jónsson segir bless við KR Kristinn Jónsson mun ekki spila áfram með KR í Bestu deild karla í fótbolta og félagið hefur því misst tvo reynslubolta á stuttum tíma. Íslenski boltinn 2. nóvember 2023 07:20
Liverpool og Chelsea fá bæði heimaleik í átta liða úrslitunum Sextán liða úrslit enska deildabikarsins kláruðust í gærkvöldi þar sem Newcastle fylgdi því eftir að slá út Englandsmeistara Manchester City í 32 liða úrslitunum með því að slá nágranna þeirra í Manchester United út í sextán liða úrslitum. Enski boltinn 2. nóvember 2023 07:01
„Verðum að biðja stuðningsmennina afsökunar“ Erik Ten Hag bað stuðningsmenn Manchester United afsökunar eftir 3-0 tap liðsins gegn Newcastle í 16-liða úrslitum deildabikarsins í gær. Þetta var annað þriggja marka tap liðsins á heimavelli í röð. Enski boltinn 2. nóvember 2023 06:44
Allt í steik hjá United sem tapaði stórt á heimavelli Manchester United er úr leik í enska deildabikarnum eftir slæmt 3-0 tap gegn Newcastle á heimavelli í kvöld. Þetta er annað þriggja marka tap United á heimavelli í röð. Enski boltinn 1. nóvember 2023 22:12
Bayern úr leik eftir tap gegn liði í þriðju deild Stórlið Bayern Munchen er úr leik í þýska bikarnum eftir 2-1 tap gegn þriðjudeildarliði Saarbrucken. Sigurmark heimamanna kom á sjöttu mínútu uppbótartíma. Fótbolti 1. nóvember 2023 22:00
Nunez tryggði Liverpool sæti í næstu umferð Liverpool er komið í næstu umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu eftir 2-1 útisigur á Bournemouth. Jóhann Berg Guðmundsson og Arnór Sigurðsson eru báðir úr leik eftir töp Burnley og Blackburn. Enski boltinn 1. nóvember 2023 21:48
Skytturnar töpuðu Lundúnaslagnum og eru úr leik West Ham vann í kvöld góðan 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Arsenal þegar liðin mættust í enska deildabikarnum í knattspyrnu. Enski boltinn 1. nóvember 2023 21:32
Neitar að hafa beðist afsökunar og Mainz skilur ekkert Deila Anwar El Ghazi og þýska úrvalsdeildarliðsins Mainz virðist aftur vera komið í hnút. El Ghazi var á dögunum settur í agabann hjá félaginu vegna innleggs hans á samfélagsmiðlum um átökin á Gaza. Fótbolti 1. nóvember 2023 20:31
Íslendingalið í eldlínunni í bikarkeppnum Evrópu Þrjú Íslendingalið hafa lokið leikjum í bikarkeppnum víðsvegar um Evrópu nú í dag. Stefán Fótbolti 1. nóvember 2023 19:01
Fundinn sekur um rasisma gagnvart Rio Ferdinand á leik United Stuðningsmaður Wolves í ensku úrvalsdeildinni hefur verið fundinn sekur um rasisma gagnvart Rio Ferdinad þegar sá síðarnefndi var við störf fyrir sjónvarpsstöðina BT Sport. Enski boltinn 1. nóvember 2023 17:46
Sjáðu markið: Albert reyndist hetja Genoa í framlengdum leik Albert Guðmundsson reyndist hetja Genoa er liðið bar 2-1 sigur úr býtum gegn Reggiana í framlengdum leik í 32-liða úrslitum ítalska bikarsins í fótbolta í dag. Fótbolti 1. nóvember 2023 16:33
The Rock mætti sem David Beckham á hrekkjavökunni Hrekkjavakan kallar fram skemmtilega búninga hjá fólki og margir sækja hugmyndir í íþróttaheiminn. Fótbolti 1. nóvember 2023 16:08
Þorlákur að taka við þjálfarastöðu í efstu deild Portúgals Þorlákur Árnason er næsti þjálfari kvennaliðs portúgalska félagsins SF Damaiense. Fótbolti 1. nóvember 2023 14:15
„Þetta hefði getað endað sem harmleikur“ Ítalski knattspyrnustjórinn Fabio Grosso hefur þakkað fyrir stuðninginn sem hann hefur fengið eftir að hann stórslasaðist í andliti eftir árás stuðningsmanna Marseille á liðsrútu Lyon á sunnudagskvöldið. Fótbolti 1. nóvember 2023 14:00
Sir Bobby Charlton lést af slysförum Sir Bobby Charlton lést af slysförum eftir að hafa misst jafnvægið og dottið á hjúkrúnarheimilinu sem hann bjó á. Frá þessu er greint á vefsíðu BBC og vitnað í niðurstöður réttarmeinafræðings. Fótbolti 1. nóvember 2023 13:02
Reifst við þjálfarann eftir að hafa pantað hamborgara upp á hótelherbergi Tanguy Ndombele, leikmaður Galatasaray, lenti í harkalegu rifrildi við þjálfara liðsins á dögunum. Ástæðan er nokkuð skondin. Fótbolti 1. nóvember 2023 12:00
Leikmenn United kvarta undan of þröngum búningum Nánast allt virðist í ólagi hjá Manchester United, meðal annars búningamálin. Leikmenn liðsins hafa nefnilega kvartað undan of þröngum búningum. Enski boltinn 1. nóvember 2023 11:31
Mun ekki klippa hárið til að fá stjórastarf Gifton Noel-Williams er ekki beint stjóratýpan þegar kemur að útlitinu. Hann ætlar heldur ekki að breyta því og í grein hjá BBC er bent á hvort að það sé kominn tími til að breyta þessu. Enski boltinn 1. nóvember 2023 11:01
Alltof mikil ringulreið hjá VAR til að leyfa okkur að hlusta Reglusmiðirnir hjá International Football Association Board, IFAB, hafa útilokað möguleikann á því að samskipti dómara og myndbandadómara verði spiluð í beinni. Enski boltinn 1. nóvember 2023 10:01
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti