
Arna spilar með FH næstu þrjú árin
Arna Eiríksdóttir hefur samið við FH í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Hún skrifar undir samning næstu þrjú árin.
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.
Arna Eiríksdóttir hefur samið við FH í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Hún skrifar undir samning næstu þrjú árin.
París Saint-Germain vann öruggan 3-0 sigur á BK Häcken í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu. PSG vinnur einvígið 5-1 samanlagt og mætir Lyon í undanúrslitum.
Barcelona lagði Brann 3-1 í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu. Vann Barcelona einvígið samtals 5-2. Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi sat allan tímann á varamannabekk Brann.
Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson spilar ekki meira á þessari leiktíð vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leik Íslands og Ísrael á dögunum.
Sandro Tonali, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle United hefur verið ákærður fyrir fimmtíu meint brot á veðmálareglum enska knattspyrnusambandsins. Frá þessu greinir sambandið í yfirlýsingu.
Breiðablik er Lengjubikarmeistari karla árið 2024 eftir sigur á ÍA í úrslitaleik mótsins sem fram fór á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Svo fór að Blikar unnu leikinn nokkuð örugglega, lokatölur 4-1 sigur.
Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá því í morgun í færslu á samfélagsmiðlinum X að forráðamenn Genoa búist við nokkrum tilboðum frá öðrum félögum í íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson, sem farið hefur á kostum bæði með liði Genoa og nú síðustu daga með íslenska landsliðinu.
Luis Rubiales, fyrrverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, gæti verið að horfa fram á allt að þrjátíu mánaða fangelsisdóm eftir að hafa verið ákærður í tveimur mismunandi liðum tengdum athæfi sínu í kjölfar sigurs spænska kvennalandsliðsins í knattspyrnu á HM á síðasta ári.
Stjórnarmenn hjá Fulham eru stórhuga varðandi endurbyggingu á heimavelli félagsins Craven Cottage. Taka á eina aðalstúku vallarins algjörlega í gegn.
Óviðeigandi brandari Jamie Carragher um samband Kate Abdo og Malik Scott vakti athygli nýverið. Scott varaði Carragher við því að grínast með ástarlíf annarra. Netverjar telja sambandinu frekar standa ógn af Thierry Henry, öðrum kollega Abdo. Spurningin er, hvenær rýnir maður um of í hlutina, hvenær teygir maður sig of langt og hvenær byrjar maður að skálda?
PUMA og KSÍ hafa í dag opinberað nýjar treyjur landsliða Íslands í knattspyrnu. Í tilkynningu frá KSÍ segir að nýju treyjurnar séu hannaðar með framsækni og sjálfbærni í huga.
José Mourinho er tilbúinn í næstu áskorun. Þessu greinir Portúgalinn frá í viðtali.
Brasilíumaðurinn Juan Jesus er æfur út í knattspyrnuyfirvöld á Ítalíu fyrir að refsa ekki Francesco Acerbi, leikmanni Inter, fyrir meint kynþáttaníð í hans garð.
Halldór Árnason, þjálfari nýkrýndra Lengjubikarmeistara í fótbolta karla, Breiðabliks, var sáttur við spilamennsku lærisveina sinna þegar liðið bar sigurorð af Skagamönnum, 4-1, í úrslitaleik mótsins á Kópavogsvelli í kvöld.
Chelsea komst í kvöld í undanúrslit Meistaradeildar kvenna í fótbolta eftir jafntefli við Ajax í Lundúnum.
Breiðablik er Lengjubikarmeistari karla í fótbolta árið 2024 eftir þægilegan 4-1 sigur á ÍA í Kópavogi í kvöld.
Lyon varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Benfica féll úr leik.
Knattspyrnudeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem greint er frá því að ekki verði unnt að starfrækja starf yngri flokka hjá félaginu í ljósi stöðunnar í bænum.
Knattspyrnumaðurinn Rasmus Christiansen hefur gengið til liðs við ÍBV og skrifaði undir samning við knattspyrnudeild félagsins til loka þessa tímabils. Þetta kemur fram í tilkynningu ÍBV
Lionel Messi segir að aldur hans muni ekki hafa úrslitaáhrif þegar kemur því að ákveða að setja fótboltaskóna upp á hillu. Hann segist muni vita það sjálfur þegar rétti tíminn er kominn.
Breiðablik tekur á móti ÍA í kvöld í úrslitaleik Lengjubikars karla í knattspyrnu en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5.
Goðsagnir úr heimi knattspyrnunnar í bland við þjálfara, leikmenn og bransastjörnur úr auglýsingageiranum sameinuðust í Smárabíó í gær þar sem árleg auglýsing fyrir Bestu-deildirnar var frumsýnd. Góð stemning var á sýningunni líkt og myndirnar bera með sér.
Manchester City mætir toppliði Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola hefur ekki fengið góðar fréttir af sínum mönnum í þessum landsleikjaglugga.
Úkraína tryggði sér sæti á Evrópumótinu í fótbolta í sumar með 2-1 endurkomusigri á Íslandi í úrslitaleik umspilsins í gærkvöldi.
Gary O'Neil, knattspyrnustjóri Wolverhampton Wanderers, er á óskalista nýja eiganda Manchester United ef marka má fréttir frá Englandi.
Albert Guðmundsson skoraði fjögur mörk í umspilinu og tvö þeirra voru með frábærum skotum fyrir utan vítateig.
Norski framherjinn Erling Braut Haaland klúðraði víti í jafntefli á móti Slóvakíu í vináttulandsleik í gærkvöldi.
Ísland tapaði í gær, þriðjudag, fyrir Úkraínu í úrslitaleik um sæti á EM 2024 í knattspyrnu. Hér að neðan má sjá myndir úr leiknum.
Þór/KA hefur samið við Shelby Money um að leika með liðinu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Sem stendur er hún ekki komin með leikheimild en sú ætti að vera gengin í gegn áður en leikar hefjast þann 21. apríl næstkomandi.
Pólland lagði Wales í vítaspyrnukeppni um sæti á EM 2024 í knattspyrnu.