
Heimir Hallgríms þegar búinn að tryggja sambandinu 277 milljónir
Suðurameríkukeppnin í fótbolta, Copa América, fer fram í sumar og við Íslendingar eigum þar flottan fulltrúa.
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.
Suðurameríkukeppnin í fótbolta, Copa América, fer fram í sumar og við Íslendingar eigum þar flottan fulltrúa.
Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir snéri aftur inn á fótboltavöllinn í gær eftir níu mánaða fjarveru.
Kieran McKenna, knattspyrnustjóri Ipswich Town mun ekki taka við Chelsea sem er í stjóraleit eftir að Mauricio Pochettino var sagt upp störfum á dögunum. Frá þessu greinir Sky Sports en talið er að þrír stjórar standi eftir sem mögulegir arftakar Pochettino á Brúnni.
Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen nefndu son sinn við fallega athöfn um helgina. Drengurinn heitir Theodór Sindri Christiansen.
Spánverjar eru að gera sig klára fyrir stórmót sumarsins og mæta með athyglisvert lið á EM í fótbolta.
Fjölmörg mistök voru gerð á nýlokinni leiktíð hjá Burnley að mati Jóhanns Berg Guðmundssonar sem féll með liðinu á dögunum. Segja má að menningarbylting hafi átti sér stað hjá félaginu síðustu misseri.
Á laugardag vann Barcelona 2-0 sigur á Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Barcelona hefur nú unnið Meistaradeildina tvö ár í röð, keppni sem Lyon einokaði lengi vel.
Barcelona vann 2-1 útisigur á Sevilla í lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeildar karla í fótbolta. Um var að ræða síðasta leik liðsins undir stjórn Xavi nema honum og stjórn félagsins snúist aftur hugur.
Atalanta vann Torino 3-0 í Serie A, ítölsku úrvalsdeildar karla í fótbolta, í dag og á enn möguleika á að enda í 3. sæti deildarinnar þar sem liðið á enn einn leik eftir á meðan nær öll önnur lið hafa nú lokið leik á tímabilinu 2023-24. Þá hélt Empoli sér í deild þeirra bestu þökk sé sigurmarki í uppbótartíma.
Breiðablik vann sinn þriðja leik í röð í Bestu deild karla í fótbolta þegar það lagði Fram örugglega á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í Grafarholti.
Breiðablik vann Val í stórleik 6. umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta. Mörkin úr þeim leik og öllum hinum má sjá hér að neðan.
Breiðablik gerðu sér góða ferð í Úlfarsárdalinn þar sem þeir heimsóttu Fram og höfðu betur 1-4 í 8.umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Viktor Karl Einarsson skoraði tvö mörk í liði gestanna.
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA var sársvekktur eftir stórt tap gegn Stjörnunni í 8. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Lokastaðan í Garðabæ 5-0 þar sem KA hreinlega sá ekki til sólar.
Jökull Elísabetarson var kampakátur með gríðarlega öruggan 5-0 sigur Stjörnunnar á KA í 8. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Stjarnan fór hamförum á sínum heimavelli gegn lánlausum Akureyringum sem sáu ekki til sólar.
Stjarnan tók á móti KA í 8. umferð Bestu deildar karla á Samsung-vellinum í dag. Fyrir leikinn mátti búast við hörkuleik þar sem KA virtist vera að finna taktinn eftir afleitlega byrjun á tímabilinu. Á sama tíma hafði Stjarnan tapað síðasta leik í deildinni og komu særðir til leiks. Til að gera langa sögu stutta hafði það engin áhrif.
Logi Tómasson heldur áfram að gera það gott hjá Strømsgodset í efstu deild norska fótboltans. Logi lagði upp eitt mark í 3-1 sigri á Sarpsborg í dag.
Lokaumferð umspilsins um Danska meistaratitilinn í fótbolta fór fram í dag. Midtjylland stendur uppi sem Danmerkurmeistari eftir hreint út sagt ruglaða lokaumferð þar sem liðið lenti 2-0 undir og allt stefndi í að Bröndby yrði danskur meistari.
Southampton tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri gegn Leeds á Wembley í dag.
Þórdís Elva Ágústsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni fyrir Vaxjö í 1-1 jafntefli gegn Djurgarden. Guðrún Arnardóttir og stöllur í Rosengard héldu hreinu og eru með fullt hús stiga.
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í KV Kortrijk tókst með ótrúlegum hætti að halda sæti sínu í belgísku úrvalsdeildinni eftir 4-2 sigur gegn Lommel þar sem þrenna var skoruð í uppbótartíma.
Það kastaðist heldur hressilega til milli öfgastuðningsmanna PSG og Lyon fyrir úrslitaleik franska bikarsins í gær.
Heiðursvörður var staðinn fyrir Toni Kroos sem spilaði í gær sinn síðasta leik á Santiago Bernabéu.
Það er ekki oft sem helflúraðir þjálfarar rífa sig úr að ofan og tryllast af gleði en David Nielsen, þjálfari Íslendingaliðsins Lyngby, fer sínar eigin leiðir í fagnaðarlátum.
Það var heldur stuttorður Pep Guardiola sem mætti í viðtal eftir 2-1 tap Manchester City gegn nágrönnum sínum í Manchester United í úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta á laugardag.
Það er töluvert síðan Íslandsmeistarinn fyrrverandi Arnþór Ingi Kristinsson lét að sér kveða inn á fótboltavellinum en hann lætur nú til sín taka á öðrum vettvangi. Hann hefur nefnilega gefið út það sem mætti kalla sumarsmell ársins með félaga sínum frá Akranesi, Bjarka Sigmyndssyni.
Wayne Rooney er snúinn aftur í þjálfun. Hann var í gær ráðinn þjálfari B-deildarliðs Plymouth Argyle. Liðið rétt hélt sér í deildinni á nýafstaðinni leiktíð á kostnað Birmingham City, sem er síðasta liðið sem Rooney þjálfaði.
Celtic er deildar- og bikarmeistari í Skotlandi eftir hádramatískan 1-0 sigur á erkifjendum sínum í Rangers í úrslitum skosku bikarkeppninnar í knattspyrnu fyrr í dag. Celtic hafði þegar tryggt sér skoska meistaratitilinn og fullkomnaði tvennuna í dag, Rangers til mikils ama.
Táningarnir Alejandro Garnacho og Kobbie Mainoo voru á skotskónum þegar Manchester United lagði nágranna sína í Man City í úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Þeir eru fyrstu táningarnir til að skora í úrslitaleik keppninnar síðan Cristiano Ronaldo gerði það árið 2004.
Real Madríd gerði markalaust jafntefli við Real Betis í lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Nágrannar þeirra í Atlético lögðu Real Sociedad 2-0.
París Saint-Germain lagði Lyon 2-1 í úrslitum frönsku bikarkeppni karla í knattspyrnu. Var leikur kvöldsins að öllum líkindum síðasti leikur Kylian Mbappé fyrir félagið. Hann var ekki á skotskónum að þessu sinni.