
KR áfram á toppnum - loks vann Augnablik
11. umferð fór fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Toppliðin þrjú í deildinni unnu öll og þá vann botnlið Augnabliks sinn fyrsta sigur síðan í fyrstu umferð.
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
11. umferð fór fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Toppliðin þrjú í deildinni unnu öll og þá vann botnlið Augnabliks sinn fyrsta sigur síðan í fyrstu umferð.
Hvorki fleiri né færri en 24 mörk voru skoruð í leikjum gærkvöldsins í Pepsi Max-deild kvenna. Toppliðin unnu bæði fimm marka sigra og Tindastóll komst upp úr fallsæti.
Þrettándu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk á mánudag. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu stórsigur á ÍBV er liðin mættust á Kópavogsvelli í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Lokatölur 7-2 sem þýðir að um sjö marka sveiflu er að ræða frá fyrri leik liðanna sem ÍBV vann 4-2 í Vestmannaeyjum.
Það var af nógu að taka í síðasta þætti af Pepsi Max stúkunni. Kjartan Atli og Sérfræðingar þáttarins fóru í uppbótartíma þar sem meðal annars var rætt um hvaða lið hefur tekið mestum framförum, Greifavöllurinn á Akureyri og margt fleira.
Valur og Þróttur R. mættust í Pepsi Max deild kvenna á Origo-vellinum við Hlíðarenda í kvöld. Topplið Vals var of stór biti fyrir Þróttara og niðurstaðan 6-1 sigur heimakvenna.
Stjarnan eru komnar aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað tveimur leikjum í röð. Þær komust yfir snemma leiks með marki frá Ölmu Mathiesen. Aerial Chavarin jafnaði síðan leikinn undir lok fyrri hálfleiks með skalla.Gegn gangi leiksins gerði Arna Dís Arnþórsdóttir sigurmark leiksins og tryggði Stjörnunni stigin þrjú. Umfjöllun og viðtöl væntanleg
Valur tóku á móti Þrótti R. í Pepsi-Max deild kvenna á Origo-vellinum í kvöld. Leiknum lauk með 6-1 sigri Vals og Pétur Pétursson, þjálfari liðsins, var að vonum sáttur.
Stjarnan fóru með sigur af býtum 1-2 eftir að hafa skapaða sér engin færi mest allan leikinn. Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var kátur með sigurinn í leiks lok
Selfoss og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi Max deild kvenna í kvöld þar sem Selfyssingar jöfnuðu á lokamínútunum.
Tindastóll tók á móti Fylki í fallbaráttuslag í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Liðin voru tveim neðstu sætum deildarinnar fyrir leikinn, en 2-1 sigur heimakvenna lyftir þeim upp í áttunda sæti.
Heiðdís Lillýjardóttir skoraði tvö mörk þegar Breiðablik sigraði ÍBV, 7-2, í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.
Arnar Sif, fyrirliði Þór/KA, var svekkt eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Selfossi í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.
Breiðablik vann öruggan sigur á ÍBV, 7-2, þegar liðin áttust við á Kópavogsvelli í 11. umferð Pepsi Max-deildar kvenna í kvöld.
Landsliðskonan Agla María Albertsdóttir er eini leikmaðurinn í Pepsi Max-deild kvenna sem hefur lagt upp fleiri mörk en Þróttarinn ungi, Andrea Rut Bjarnadóttir, undanfarin tvö ár.
Ragnar Sigurðsson er genginn í raðir uppeldisfélagsins Fylkis. Hann skrifaði undir samning við félagið út næsta tímabil.
Andrés Ramiro Escobar fékk mikið hrós fyrir frammistöðu sína í 2-0 sigri Leiknis Reykjavíkur á Stjörnunni í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. Kjartan Atli Kjartansson, og sérfræðingar Stúkunnar voru sammála um að Escobar gæfi mikið af sér og væri skemmtilegur áhorfs.
Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Leiknir Reykjavík vann 2-0 sigur á Stjörnunni og Víkingur kom til baka gegn Keflavík og vann 2-1 seiglusigur.
Leiknir vann 2-0 sigur á Stjörnunni í fallbaráttuslag kvöldsins í Pepsi Max-deild karla í fótbolta. Leiknismenn slíta sig rækilega frá botnbaráttunni með sigrinum.
Víkingur vann 2-1 endurkomusigur á Keflavík á heimavelli þeirra síðarnefndu í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í kvöld. Víkingar eru eftir sigurinn aðeins stigi frá toppliði Vals.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings var sáttur með stigin þrjú sem lið hans fékk á móti Keflavík fyrr í kvöld.
Sigurður Höskuldsson þjálfari Leiknis var að vonum ánægður með sína menn eftir sigurinn á Stjörnunni í Breiðholti í kvöld.
ÍA vann mikilvægan og óvæntan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Vals í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á laugardag. Farið var yfir fórnfýsi leikmanna Skagaliðsins í varnarleik sínum í Pepsi Max stúkunni, og velti Baldur Sigurðsson því upp hvort lukkan væri að snúast hjá Skagamönnum.
Sérfræðingar Pepsi Max stúkunnar gáfu ekki mikið fyrir varnarleik HK í fyrra marki KA gegn þeim fyrrnefndu í leik liðanna á Akureyri í gær. KA vann leikinn 2-0.
Farið var yfir mark KR í 1-1 jafntefli liðsins við Breiðablik í Stúkunni að loknum leikjunum í Pepsi Max deild karla á sunnudagskvöld. Varnarmenn Breiðabliks virtust aðeins gleyma sér og var í kjölfarið refsað.
Íslandsmeistarar Vals töpuðu óvænt fyrir botnliði ÍA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu um helgina. Valur varð fyrir því óláni að skora tvö sjálfsmörk en varnarleikur liðsins í síðara marki ÍA var til umræðu í Stúkunni að leik loknum.
Hér að neðan má sjá mörkin úr síðustu fjórum leikjum Pepsi Max deildar karla.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var sáttur eftir leikinn á Meistaravöllum, bæði með úrslitin og frammistöðu sinna manna.
KR og Breiðablik skildu jöfn, 1-1, í stórleik 13. umferðar Pepsi Max-deildar karla á Meistaravöllum í kvöld.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, hefði viljað fá þrjú stig gegn Breiðabliki í kvöld en liðin gerðu 1-1 jafntefli á Meistaravöllum.