Skoða hvort hægt sé að ráðast í frekari tilslakanir á föstudaginn Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, segir að hann muni nýta næstu daga til að ræða við sóttvarnalækni og forsvarsmenn heilbrigðisstofnana um hvort hægt verði að ráðast í frekari tilslakanir á sóttvarnaraðgerðum vegna Covid-19 næstkomandi föstudag. Innlent 1. febrúar 2022 23:11
Flugumferð nálgast það sem var fyrir faraldurinn Flugumferð yfir Norður-Atlantshafið er farin að nálgast það sem var áður en kórónuveirufaraldurinn tók að breiðast út. Isavia auglýsir nú í fyrsta sinn, frá því fyrir faraldur, eftir umsækjendum í flugumferðarstjóranám. Innlent 1. febrúar 2022 22:01
Danir felldu grímuna á miðnætti þegar öllum takmörkunum var aflétt Danir köstuðu af sér grímunum á miðnætti þegar öllum samkomutakmörkum var aflétt þar í landi. Bareigandi sagðist spenntur að fá að taka á móti fólki á ný og segir Íslendingur að háskólanemar ætli að djamma fram á nótt. Sóttvarnalæknir vill ekki fara sömu leið og Danir. Innlent 1. febrúar 2022 21:00
Norðmenn stíga stórt skref í átt að takmarkaleysi Norðmenn áætla að vera búnir að afnema allar takmarkanir vegna kórónuveirunnar þann 17. febrúar næstkomandi. Strax í kvöld verður stórum hluta takmarkana þó aflétt. Erlent 1. febrúar 2022 20:27
Sýndi fram á meintan fáránleika aðgerða í beinni Framkvæmdastjóri Senu kallar eftir því að stjórnvöld afnemi eins metra fjarlægðarreglu á skipulögðum viðburðum. Hann er gagnrýninn á að ekki megi selja áfengi á viðburðum, meðan fólk geti farið gagngert á barinn til þess að drekka áfengi. Innlent 1. febrúar 2022 20:01
Forsætisráðherra í smitgát á afmælisdaginn Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er í smitgát vegna kórónuveirunnar, eftir að sonur hennar fékk jákvæða niðurstöðu úr heimaprófi. Frá þessu greinir Katrín á Facebook, en hún á afmæli í dag. Innlent 1. febrúar 2022 18:21
Boðað til upplýsingafundar á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar á morgun, miðvikudaginn 2. febrúar, klukkan ellefu. Innlent 1. febrúar 2022 16:26
Landspítalinn færður af neyðarstigi Landspítalinn hefur verið færður af neyðarstigi á hættustig. Þetta er til marks um að betri stöðu í baráttunni við kórónuveiruna. Innlent 1. febrúar 2022 16:13
Leggja til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra Lagt er til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra líkt og landlæknir og heyri því beint undir yfirstjórn ráðherra en ekki landlækni í nýju frumvarpi að sóttvarnalögum. Innlent 1. febrúar 2022 16:12
Nýtt undirafbrigði ómíkron sagt smitast auðveldar manna á milli Danskir vísindamenn segja nýtt undir-afbrigði ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar sem greinst hefur þar í landi smitast enn auðveldar manna á milli. Undirafbrigðið nefnist BA.2 og vísindamennirnir segja það vera um þriðjungi líklegra til að smitast manna á milli en BA.1. Erlent 1. febrúar 2022 14:15
Af neyðarstigi niður á hættustig Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að færa almannavarnastig úr neyðarstigi niður á hættustig vegna Covid-19. Neyðarstigi var lýst yfir 11. janúar síðastliðinn. Innlent 1. febrúar 2022 13:43
Ari Eldjárn frestar aftur: Sóttvarnahringekjan heldur áfram að koma á óvart Áramótaskopi Ara Eldjárns hefur verið frestað aftur. Ari segir þetta miður en ekki sé hægt með góðu móti að uppfylla sóttvarnir í salnum. Þá segir hann sóttvarnahringekjuna halda áfram að koma öllum á óvart. Lífið 1. febrúar 2022 13:09
Bið eftir niðurstöðu úr sýnatöku lengist Til skoðunar er að aflétta neyðarstigi almannavarna vegna kórónuveirufaraldursins. Sóttvarnalæknir segir verið að kalla eftir upplýsingum til að meta hvort það sé tímabært. Þá hefur bið eftir niðurstöðu úr sýnatöku lengst. Innlent 1. febrúar 2022 12:53
Vilja fá heimild fyrir notkun bóluefnisins meðal barna yngri en 5 ára Pfizer og BioNTech munu fara þess á leit við Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna í þessari viku, jafnvel strax í dag, að stofnunin heimili notkun bóluefnis fyrirtækjanna til að bólusetja börn 5 ára og yngri. Erlent 1. febrúar 2022 12:35
Sætir harðri gagnrýni samflokksmanna en er hólpinn um sinn „Niðurstaðan var afdráttarlaus en ekki persónuleg, gagnrýnin hnitmiðuðu en almenn,“ segir Laura Kuenssberg, pólitískur ritstjóri BBC um svokallaða Gray-skýrslu, sem birt var í gær. Erlent 1. febrúar 2022 11:17
Karlmaður á áttræðisaldri lést af völdum Covid-19 í Sunnuhlíð Karlmaður á áttræðisaldri lést af völdum Covid-19 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi um helgina. Innlent 1. febrúar 2022 11:17
1.421 greindist innanlands í gær 1.421 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 36 á landamærum. Innlent 1. febrúar 2022 10:14
31 liggur inni með Covid-19 og þrír á gjörgæslu Landspítalinn er enn á neyðarstigi en 31 sjúklingur liggur nú inni með Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Tveir þeirra eru í öndunarvél. Innlent 1. febrúar 2022 10:00
Vakandi fólk, virkt lýðræði Að ytri ásýnd stendur lýðræðið óhaggað: Við erum með löggjafarþing, ríkisstjórn og dómstóla, stjórnarskrárfestu, lög sem verja eignarrétt, mannréttindasáttmála, fjölmiðla sem státa sig af mikilvægu lýðræðislegu hlutverki og sennilega eitt hæsta hlutfall lögfræðinga miðað við höfðatölu. Skoðun 1. febrúar 2022 09:00
Veita fullvissu um að skýrslan verði birt í heild sinni Talsmenn Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, hafa nú fullvissað þingmenn Íhaldsflokksins um að skýrsla Sue Gray, sem rannsakaði partýstand á ríkisstjórninni og starfsmönnum Downingstrætis 10 á tímum kórónuveirunnar, verði birt í heild sinni að lokinni lögreglurannsókn. Erlent 1. febrúar 2022 07:05
Danir kveðja grímuna, „kórónupassann“ og fjöldatakmarkanir Covid-19 er ekki lengur skilgreindur sem sjúkdómur sem ógnar dönsku samfélagi frá deginum í dag og hefur það í för með sér víðtækar afléttingar. Erlent 1. febrúar 2022 06:19
Til skammar fyrir stjórnvöld að leyfa þessu að gerast Menntaskólanemar segja það til skammar fyrir stjórnvöld að hafa leyft heimsfaraldri að bitna svo illa á ungu fólki. Innlent 31. janúar 2022 23:30
Yfirgnæfandi meirihluti hlynntur bólusetningum barna Um sjötíu og fimm prósent landsmanna eru hlynntir því að bólusetja yngsta aldurshópinn, fimm til ellefu ára börn, gegn Covid-19. Innlent 31. janúar 2022 21:38
Trudeau ósáttur: Þúsundir mótmæltu sóttvarnaaðgerðum Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada gagnrýnir harðlega þá sem mótmæla nú sóttvarnaaðgerðum þar í landi. Fjöldi mótmælenda safnaðist saman fyrir utan þinghúsið í Ottowa um helgina og aðrir hyggjast hvergi nærri hættir. Erlent 31. janúar 2022 20:23
Ekki sammála um hvað Klopp hefði gert Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, eru ekki á einu máli um hvernig Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri enska knattspyrnufélagsins Liverpool, myndi bregðast við breyttum aðstæðum í kórónuveirufaldrinum, væri hann við stjórnvölinn. Innlent 31. janúar 2022 19:40
Til skoðunar að stytta einangrun Til umræðu er að stytta einangrun niður í fimm daga að sögn Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Innlent 31. janúar 2022 19:07
Blóðbirgðir komnar niður fyrir öryggismörk í Blóðbankanum Síðustu þrír mánuðir hafa verið erfiðir hjá Blóðbankanum og eru öryggisbirgðir blóðs nú undir viðmiðunarmörkum. Hlutfallslega færri konur gefa blóð hérlendis en í nágrannalöndunum og telur bankinn þar leynast mikilvægt sóknarfæri til framtíðar. Innlent 31. janúar 2022 17:28
Vilja eins metra regluna burt Tónlistarmenn segja nýjar reglur um samkomutakmarkanir hafa verið vonbrigði. Ótækt sé að halda tónleika eins og núgildandi takmörkunum er háttað og eins metra regluna vilja þeir burt. Innlent 31. janúar 2022 17:19
Tekur ekki undir með Sigríði en gætu þurft að aflétta hraðar Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur ekki undir með flokkssystur sinni Sigríði Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem telur að stjórvöld brjóti lög með því að aflétta ekki strax öllum takmörkunum. Innlent 31. janúar 2022 16:01
Segir „erfitt að réttlæta“ samkvæmin og að leiðtogar hafi brugðist Sue Gray, sem hefur haldið utan um rannsókn á tíðum samkvæmum að Downingstræti tíu, þar sem heimili og skrifstofa Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er til húsa, segir erfitt að réttlæta samkvæmin. Það sé sérstaklega erfitt í ljósi þeirra sóttvarnarreglna og samkomutakmarkana sem voru þá í gildi. Erlent 31. janúar 2022 14:58