
Lubos Michel dæmir úrslitaleikinn
Stuðningsmenn Chelsea eiga ekki góðar minningar í tengslum við dómarann Lubos Michel sem dæmir úrslitaleiki liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Stuðningsmenn Chelsea eiga ekki góðar minningar í tengslum við dómarann Lubos Michel sem dæmir úrslitaleiki liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið.
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður Manchester United, segist ekki hafa gert sér grein fyrir því fyrr en löngu síðar hve mikla þýðingu sigurmark hans í Meistaradeildinni árið 1999 hafði fyrir stuðningsmenn liðsins.
Nemanja Vidic, varnarmaður Manchester United, segir erfitt að dekka framherjann Didier Drogba hjá Chelsea því menn geti aldrei séð fyrir hvort hann standi í lappirnar í teigum andstæðinganna.
Joe Cole, leikmaður Chelsea, segir að Lionel Messi sé besti leikmaður heims um þessar mundir en ekki Cristiano Ronaldo.
Didier Drogba segir að bæði hann og John Terry verði klárir í slaginn gegn Manchester United í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Chelsea vonast til að John Terry og Didier Drogba verði heilir heilsu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Báðir leikmennirnir eru bjartsýnir á að geta spilað í úrslitaleiknum í Moskvu 21. maí.
Rússnesk stjórnvöld hafa ákveðið að opna landamæri sín fyrir fólki sem er með miða á úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu í kring um úrslitaleikinn í Moskvu þann 21. maí. Þetta er einsdæmi að sögn talsmanns skipuleggjenda viðburðarins.
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að það sé enginn vafi um að Wayne Rooney verði orðinn klár í slaginn þegar liðið mætir Chelsea í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Avram Grant, stjóri Chelsea, lét tilfinningum sínum lausan tauminn í kvöld þegar hann náði að gera nokkuð sem Jose Mourinho tókst aldrei - að koma Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Rafa Benitez stjóri Liverpool var að vonum súr með tapið gegn Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld. Hann segir sína menn ekki hafa verið langt frá takmarki sínu.
John Terry, fyrirliði Chelsea, var í sigurvímu eftir að hans menn tryggðu sér sæti í úrslitum Meistaradeildarinnar með 3-2 sigri á Liverpool í frábærum leik í kvöld.
Didier Drogba gat ekki stillt sig um að skjóta einu skoti enn á Rafa Benitez eftir að Chelsea sló Liverpool út í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir 3-2 sigur á Liverpool í æsilegum undanúrslitaleik í Lundúnum. Liðið mætir Manchester United í úrslitaleik í Moskvu.
Leikur Chelsea og Liverpool á Stamford Bridge er kominn í framlengingu eftir að staðan var jöfn 1-1 eftir 90 mínútur. Didier Drogba kom Chelsea yfir á 33. mínútu eftir frábæran fyrri hálfleik hjá Chelsea, en gestirnir voru miklu frískari í þeim síðari og það var Fernando Torres sem jafnaði leikinn.
Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Liverpool þegar flautað hefur verið til leikhlés í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Það var Didier Drogba sem skoraði mark Chelsea á 33. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti Salomon Kalou.
Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Chelsea og Liverpool fyrir síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Leikurinn er á Stamford Bridge í Lundúnum og er sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 18:45. John Arne Rise er í byrjunarliði Liverpool og Frank Lampard kemur inn í byrjunarlið Chelsea á ný.
Fernando Torres segist vilja leika með Liverpool það sem eftir lifir af sínum leikmannaferli.
Bandarísk heimasíða býður til sölu tvo miða á leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld á 800 þúsund krónur stykkið.
Didier Drogba segir að Rafael Benitez sé ekki frábær knattspyrnustjóri og að álit sitt á honum hafi hrapað.
Spænskir fjölmiðlar eru allt annað en sáttir við að Barcelona hafi fallið úr leik í Meistaradeild Evrópu í gær.
Rio Ferdinand, fyrirliði Manchester United, segir að agaður leikur og augnablik af snilld frá Paul Scholes hafi gert gæfumuninn í kvöld þegar enska liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Sir Alex Ferguson sagði Manchester United eiga skilið að vera komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir 1-0 sigurinn á Barcelona í kvöld.
Það er ljóst að það verða tvö ensk lið sem leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Manchester United tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum með 1-0 sigri á Barcelona í fjörugum leik á Old Trafford.
Nú er kominn hálfleikur í síðari viðureign Manchester United og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Paul Scholes skoraði sitt fyrsta mark í átta mánuði fyrir United með þrumufleyg sem skilur liðin að.
Síðari leikur Manchester United og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu hefst nú klukkan 18:45 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. United verður án tveggja lykilmanna í leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen er á bekknum hjá Barcelona.
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Chelsea sé líklegri aðilinn til að fara í úrslitaleikinn en liðin mætast í síðari viðureign undanúrslita Meistaradeildarinnar annað kvöld.
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur áhyggjur af ítalska dómaranum sem dæmir leik Chelsea og Liverpool í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að liðið sé ekki í lægð þessa stunda þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið leik í rúmar tvær vikur.
Allar líkur eru á því að Frank Lampard verði með Chelsea gegn Liverpool er liðin mætast í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn.
Hvorki Wayne Rooney né Nemanja Vidic æfðu með Manchester United í morgun en liðið mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.