

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Galin pæling að leggja niður heiðurslaun listamanna
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja leggja niður heiðurslaun listamanna á Íslandi. Þeim finnst þau úrelt og ekki þjóna neinum tilgangi. Galin pæling, segir talsmaður listamanna.

Úkraínsk börn dönsuðu þjóðdansa til fjáröflunar
Glatt var á hjalla í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í dag þar sem haldin var fjáröflun til styrktar fjölskyldum sem komnar eru hingað til lands frá Úkraínu.

Fylltu Hörpu af innfluttum áhorfendum þrjú kvöld í röð
Hljómsveitin Umphrey‘s McGee fyllti Eldborgarsal í Hörpu af áhorfendum þrjú kvöld í röð um seinustu helgi. Fæstir hér á landi þekkja hljómsveitina en 1.500 Bandaríkjamenn lögðu leið sína til Íslands til að fylgjast með hljómsveitinni.

Bræður í einvígi á toppnum
Ástsælu bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir standa ansi nálægt hvor öðrum á íslenska listanum þessa vikuna. Friðrik Dór trónir enn á toppnum með silkimjúka smellinn Bleikur og blár en Jón fylgir fast á eftir með ástarlagið Lengi lifum við og hefur hækkað sig um eitt sæti frá því í síðustu viku.

Harry Styles með nýjan slagara í fyrsta sinn í tvö ár
Tónlistarmaðurinn Harry Styles hefur gefið út nýtt lag, það fyrsta í tvö ár. Lagið og tónlistarmyndbandið sem fylgir því var frumsýnt í gær á Youtube og hefur þegar fengið meira en 21 milljón áhorf.

Gefur hlutum sem enginn vill sjá né vita af fagurfræðilegt gildi
Listakonan Lilja Birgisdóttur opnar sýninguna It’s not you, It’s me í dag, laugardaginn 2. apríl. Opnunin fer fram á milli klukkan 14:00 og 18:00 og stendur til 24. apríl næstkomandi.

Minnir sig reglulega á að gjörsamlega allt er geranlegt
Ragga Hólm er ofurtöffari sem leggur mikið upp úr lífsgleðinni. Hún er tónlistarkona, útvarpskona og lífskúnstner og hefur hvað sérstaklega vakið athygli sem meðlimur í hljómsveitinni Reykjavíkurdætur. Tónlistin er hennar helsti innblástur í lífinu en Ragga er einmitt viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Röskun á umferð í Reykjavík vegna Netflix-myndar
Víðtækar vegalokanir eru í Reykjavík um helgina, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, í tengslum við kvikmyndatökur á myndinni Heart of Stone. Gal Gadot, Jamie Dornan og fleiri stórstjörnur leika í Netflix-myndinni og verða við störf í miðbæ Reykjavíkur næstu daga.

Kveður bókaútgáfuna eftir 36 ár: „Maður þarf að vera með sálina í þessu“
Nanna Rögnvaldardóttir lét af störfum sem ritstjóri Forlagsins síðastliðinn fimmtudag eftir 36 ár í bókaútgáfu en hún hefur komið víða við á sínum ferli, ritstýrt hundruð bóka og skrifað á þriðja tug sjálf. Hún hefur þó ekki endanlega sagt skilið við bækurnar, þó hún útiloki að hún muni skrifa aðra matreiðslubók.

„Innblásturinn kemur bara af öllu sem við gerum“
Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 en galleríið opnaði fyrst dyrnar fyrir um sex árum síðan. Árni Már er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna hér:

Hættur í akademíunni eftir löðrunginn
Leikarinn Will Smith hefur sagt sig úr bandarísku kvikmyndaakademíunni vegna hegðunar sinnar á óskarverðlaunahátíðinni á dögunum þegar hann löðrungaði grínistann Chris Rock.

Söfnuðu stórfé þegar kvikmyndakempur í misgóðu formi tókust á
Íslenskir kvikmyndargerðarmenn tóku höndum saman við erlenda í dag og söfnuðu á fjórðu milljón króna fyrir kvikmyndargerðarmann sem slasaðist við tökur um árið. Farin var óhefðbundin leið; þeir spiluðu fótbolta til fjáröflunar.

„Þríeykið“ kiknaði undan álagi rétt fyrir meinta afhjúpun
Auglýst afhjúpun á styttu af „þríeykinu“ svokallaða í dag reyndist aprílgabb og heppnaðist með ágætum. En undirbúningur á vettvangi gekk ekki þrautalaust fyrir sig, eins og myndband hér neðar í fréttinni sýnir.

Blint stefnumót Skúla og Birtu endaði með bíómyndakossi
Þau elska bæði Harry Potter, spila sömu tölvuleiki, segjast bæði vera Nexus-nördar og horfa á sömu kvikmyndirnar. Birta Rós og Skúli voru eitt tveggja para í stefnumótaþættinum Fyrsta blikið síðasta föstudagskvöld.

„Grammy verðlaunin voru ekki á radarnum mínum um raunhæfa hluti í lífinu“
Ólafur Arnalds er tilnefndur til tveggja Grammy verðlauna og segir hann í viðtali við Billboard að slík verðlaun hafi alltaf verið honum fjarri og óraunhæfur möguleiki í lífinu. Hátíðin sjálf fer fram á sunnudaginn og eru þetta hans fyrstu tilnefningar.

Overtune Showdown keppnin er í fullum gangi - sæktu appið og taktu þátt
Overtune #Showdown keppni Vísis hófst 25. mars og ef þú hefur ekki þegar tekið þátt mælum við með að drífa í því! Við leitum að besta Overtune laginu og myndbandi og eru peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

Dynjandi lófaklapp á fyrstu sýningu Skjálfta
Íslenska kvikmyndin Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur, sem byggð er á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra skjálfta, var frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi í gær.

Það sjá ekki allir það fallega sem í þeim býr
Í dag þann 1. apríl sendir tónlistarkonan Alyria frá sér lagið Wish You Could.

„Nú er kominn tími til að hafa aftur gaman“
Snjóbretta-og tónlistarhátíðin AK Extreme er snúin aftur eftir margra ára fjarveru. Hátíðin fer af stað með miklum látum en í dag verður brunkeppni og grillveisla í Hlíðarfjalli og er öllum boðið.

Bein útsending: Baltasar fyrirliði í fótboltaleik við Heart of Stone fólk
Góðgerðarfótboltaleikur þar lið skipað íslenskum kvikmyndagerðarhópi, undir forystu Baltasars Kormáks, gegn erlendu kvikmyndagerðarfólki fer fram á Fylkisvelli klukkan 13 í dag. Allur ágóði rennur til samstarfsmanns sem slasaðist við vinnu við gerð kvikmyndar fyrr á árinu.

Rottweilerhundar, Stuðmenn og Ragga Gísla á Kótelettunni í ár
Kótelettan 2022, sem haldin er á Selfossi í tólfta sinn dagana 7. -10. júlí verður er ein hin veglegasta frá upphafi samkvæmt nýrri fréttatilkynningu.

Sýndarpoppstjarna er í dag poppstjarna og kemur fram á Húrra
Á laugardagskvöld verður blásið til tilraunatónleika á skemmtistaðnum Húrra, undir yfirskriftinni The Exterior. Þar kemur fram HYD, sem lýst væri sem hvalreka í ákveðnum kreðsum, ásamt Countess Malaise, Ketracel, DJ XWIFE, Alfreð Drexler, Psalixera, Echinacea og öðru samstarfsfólki.

Listaverkauppboð til styrktar Landsbjargar
Laugardaginn 2. apríl hefst listaverkauppboð til styrktar Landsbjargar. Uppboðið mun standa yfir í sex daga, til 7. apríl, á uppboðsvef Foldar uppboðshúss.

Sænski grínistinn Sven Melander látinn
Sænski grínistinn Sven Melander er látinn, 74 ára að aldri. Hann hafði glímt við krabbamein um nokkurt skeið og segir í tilkynningu að hann hafi andast á heimili sínu í faðmi fjölskyldu sinnar.

Afhjúpuðu styttu af þríeykinu
Stytta af þríeykinu svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík í dag. Afhjúpunin hefst klukkan 10 og er almenningi boðið að vera viðstaddur. Fyrir þá sem ekki komast verður beint streymi á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Vísar í persónu Tove Jansson úr Múmínálfunum
Hljómsveitin Milkhouse hefur sent frá sér nýtt lag. Lagið heitir Snorkstelpan og er önnur smáskífa af væntanlegri plötu sveitarinnar en Milkhouse gaf einnig út lagið Dagdraumar vol. 7 síðastliðið sumar.

Úkraínski Eurovision-sigurvegarinn Jamala á leið til Íslands
Úkraínska söngkonan Jamala sem vann Eurovision 2016 með laginu 1944 kemur fram í söfnunar- og skemmtiþættinum Heimsins mikilvægasta kvöld.

Meira bíó!
Nýlega fjallaði RÚV um gott gengi kvikmyndaiðnaðarins hér á landi en áætlað er að hann hafi skilað samfélaginu 9 milljörðum króna á síðasta ári. Þá er gert er ráð fyrir áframhaldandi velgengni íslenskrar kvikmyndagerðar á næstkomandi árum.

Heltekin af þessari sögu: „Við breytum ekki fortíðinni“
„Við breytum ekki staðreyndum, við breytum ekki fortíðinni og við breytum ekki því sem gerðist,“ segir Tinna Hrafnssdóttir leikkona og leikstjóri.

Smith neitaði að yfirgefa salinn eftir kinnhestinn
Leikarinn Will Smith var beðinn um að yfirgefa Óskarsverðlaunahátíðina eftir að hann gaf grínistanum Chris Rock kinnhest. Smith neitaði að verða við beiðninni.