

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Hatar síma og reynir að svara aldrei í þá
Höfuðfat af tegundinni Sigzon, eftir íslenska hönnuðinn Sixson, er einn af þeim tíu hlutum sem tónlistarmaðurinn Mugison gæti vart lifað án. Hann segir hattanotkunina einfalda honum hárumhirðuna og ætlar hann að safna hári áður en hann verður sköllóttur.

Young Karin með endurkomu inn í íslenskt tónlistarlíf
Tónlistarkonurnar Young Karin og Fríd voru að senda frá sér lagið NOT INTO ME. Þetta er fyrsta samstarfsverkefnið sem Fríd vinnur að og sömuleiðis fyrsta lagið sem Karin sendir frá sér í rúm fjögur ár. Blaðamaður tók púlsinn á tvíeykinu.

Frumsýning á Vísi: Stikla úr söngleiknum Eitruð lítil pilla
Söngleikurinn Eitruð lítil pilla sem byggður er á tónlist af plötu Alanis Morissette, Jagged Little Pill, verður frumsýndur annað kvöld á stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri verksins er Álfrún Helga Örnólfsdóttir.

Iceland Airwaves kynnir listamenn á 25 ára afmæli hátíðarinnar
Shygirl, Bar italia, Charlotte Adigéry & Bolis Pupul, Joy (anonymous), Saya Gray, Klemens Hannigan og Inspector Spacetime eru á meðal þeirra sem koma fram á 25 ára afmælishátíð Iceland Airwaves í miðbæ Reykjavíkur 7. til 9. nóvember.

Sænska poppstjarnan sem lifir venjulegu lífi í Garðabæ
Sænska hljómsveitin A*Teens, sem fór sigurför um heiminn upp úr aldamótum, kom nýverið saman á Melodifestivalen í Malmö í fyrsta sinn í tuttugu ár. Einn meðlimur sveitarinnar er búsettur á Íslandi með íslenskri konu sinni og börnum - og talar reiprennandi íslensku. Við hittum hann í Garðabænum í Íslandi í dag.

Dýri Guðmundsson er látinn
Dýri Guðmundsson endurskoðandi, fyrrverandi knattspyrnukappi og gítarleikari er látinn. Hann fæddist 1951 en lést eftir veikindi þriðjudagskvöldið 20. febrúar. Fjölmargir samferðamenn Dýra hvort sem er vinir eða ættingjar hafa minnst hans á samfélagsmiðlum.

Maðurinn á bak við Æði þættina
Rapparinn og leikstjórinn Jóhann Kristófer er maðurinn á bak við Æði seríurnar fimm. Það urðu straumhvörf í lífi hans árið 2017 þegar að hann ákvað að svara kalli Patreks Jaime um raunveruleikaþátt og ekkert varð eins aftur. Blaðamaður spjallaði við Jóhann og fékk að heyra meira frá viðburðaríku lífi hans, sögunni á bak við Æði þættina og ferlinu.

Frikki þurfti að sækja Jón svo hann kæmist á Edrúartónleika
Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir tróðu upp á Edrúartónleikum SÁÁ í Bæjarbíói í kvöld. Jón sprengdi dekk á leiðinni á tónleikana og því þurfti bróðir hans að koma og sækja hann.

Tígrísdýr stökk á Gústa B í Dubai
Tónlistarmennirnir Patrik Atlason, þekktur sem Prettyboitjokkó, og Daniil eru staddir í Dubai við tökur á nýju tónlistarmyndbandi þar sem tígrisdýr og hlébarði eru í aðalhlutverki. Með þeim eru útvarpsmaðurinn Gústi B, Víkingur Heiðar Arnórsson, Logi Snær plötusnúður og Arnar Dór Ólafsson myndatökumaður.

Ye þakkaði stuðningsmönnum Inter fyrir sig og sá liðið vinna
Bandaríski rapparinn Kanye West, eða Ye, var meðal áhorfenda á San Siro er Inter tók á móti Atlético Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Nýr kór þingmanna ætlar að troða upp eftir tvær vikur
Mikil leynd hvílir yfir starfsemi nýstofnaðs Alþingismannakórs en Jakob Frímann Magnússon, Flokki fólksins, er kórstjóri.

„Þetta er alveg ótrúlega leiðinlegt“
Guðmundur Andri Thorsson tónlistarmaður með meiru er ekki ánægður með nýju gervigreindartónlist Stefáns S. Stefánssonar sem hann hefur kynnt til sögunnar undir nafninu Robo Steve. „Þetta er alveg ótrúlega leiðinlegt,“ segir Guðmundur Andri um nýjar tónsmíðar Robo Steves.

Hóstandi Eldborgargestir í samkeppni við Víking Heiðar
Hvorki gagnrýnandi Vísis né tónleikagestir virðast hafa neitt nema afar gott að segja um frammistöðu Víkings Heiðars Ólafssonar píanista á þrennum tónleikum hans í Hörpu á dögunum. Eina gagnrýnin snýr að hóstandi tónleikagestum sem spilltu fyrir hljóðvistinni.

Dani hafi grætt milljónir á streymissvindli
Réttað verður yfir 53 ára gömlum dönskum karlmanni í Árósum í dag en honum er gefið að sök að hafa stolið 689 lögum eða hluta úr lögum og dreift þeim undir eigin nafni á streymisveitum líkt og Spotify og Apple Music.

„Löngu tímabært að taka þetta skref“
„Einhvern tímann þurftum við að taka þetta skref,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra um fyrirhugaða Þjóðaróperu. Lilja hefur verið gagnrýnd af forsvarsmönnum Íslensku óperunnar fyrir áformin.

Íslenska óperan heyrir sögunni til: „Við höfum kallað þetta menningarslys“
Íslenska óperan heyrir sögunni til í kjölfar ákvörðunar menningarmálaráðherra um að stofna Þjóðaróperu. Þær sýningar sem áformað var að sýna á þessu ári falla niður. „Menningarslys,“ segir stjórnarformaður sem furðar sig á framkvæmdinni.

VÆB og Aníta komust áfram í Söngvakeppninni
Fyrra undanúrslitakvöld söngvakeppnis Ríkisútvarpsins fór fram í kvöld. Flytjendurnir VÆB og Aníta komust áfram og keppa í úrslitum keppninnar þann 2. mars næstkomandi.

Íslendingar „eigi að skammast sín“ fái hann ekki stig í Eurovision
Isaak Guderian bar í gær sigur úr býtum í Söngvakeppni Þýskalands og mun því keppa fyrir hönd landsins í Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Isaak er hálf-íslenskur en móðir hans er íslensk.

„Hluti af mér dó með honum“
„Ég er enn að syrgja pabba í dag og ég hætti því aldrei. Sorgin fylgir manni alla tíð,“ segir Dagmar Øder Einarsdóttir. Hún var á táningsaldri þegar faðir hennar, Einar Öder Magnússon lést af völdum krabbameins. Hann var einungis 52 ára gamall.

Mátti kenna Leoncie við nektardans
Landsréttur hefur staðfest sýknu Helga Jónssonar, eiganda og umsjónarmanns Glatkistunnar, af öllum kröfum tónlistarkonunnar Leoncie. Hún höfðaði meiðyrðamál á hendur Helga vegna lýsinga hans á ferli hennar sem tónlistarkonu og nektardansmær.

Skilaði Bítlabassa sem er metinn á tæpa tvo milljarða króna
Paul McCartney hefur endurheimt bassa sem var stolið árið 1972. McCartney keypti bassann í Hamborg í Þýskalandi, þegar Bítlarnir voru að stíga sín fyrstu skref, á þrjátíu pund. Talið er að bassinn sé allt að tíu milljóna punda virði í dag, jafnvirði um 1,75 milljarða króna.

Langaði að ramma inn örvæntinguna
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við ástsæla lagið Hvers vegna varst’ekki kyrr, hér í ábreiðu Sölku Valsdóttur, neonme, fyrir kvikmyndina Natatorium.

Úlfur Úlfur endurgerði senu úr tónlistarmyndbandi Queen
„Við höfum gert nokkur helvíti góð myndbönd með Magga Leifs en þetta er okkar besta verk hingað til, ekki spurning,“ segir Arnar Freyr Frostason annar af forsprökkum hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur.

Ferskur andblær í hlustunarpartýi Ízleifs
Beðið er eftir fyrstu plötu tónlistarmannsins Ízleifs með eftirvæntingu. Ízleifur, sem er bæði pródúsent og rappari, hélt hlustunarpartý fyrir vini og vandamenn í Þjóðleikhúsinu í vikunni.

Miðasala hafin á hlustendaverðlaunin
Hlustendaverðlaunin 2024 verða haldin fimmtudaginn 21. mars næstkomandi í Gamla Bíói en þetta er í ellefta skipti sem hátíðin fer fram.

Unaðsstund Elizu og Guðna
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson skelltu sér á tónleika Víkings Heiðars Ólafssonar í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Goldberg-tilbrigðin voru flutt fyrir fullum sal. Unaðsstund að sögn Elizu.

Ástarjátningar og húðflúr á Valentínusardaginn
Rómantíkin sveif yfir landinu á Valentínusardeginum í gær, eða degi elskenda, þar sem fallegar kveðjur og ástarjátningar rigndu inn á samfélagsmiða. Þekktir Íslendingar voru ófeimnir að tjá ást sína á makanum fyrir allra augum líkt og sjá má hér að neðan.

Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar
Friðrik Dór Jónsson, einn afkastamesti tónlistarmaður landsins, var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur. Friðrik Dór segist vera persónulegri á nýju plötunni en nokkru sinni fyrr.

Einn stærsti teknó plötusnúður heims spilar á Radar
Rússneski teknó-plötusnúðurinn Nina Kraviz spilar á skemmtistaðnum Radar næstu helgi. Ekki er um að ræða fyrstu heimsókn Ninu til Íslands því áður hefur hún spilað á tónlistarhátíðinni Sónar og á skemmtistaðnum Paloma auk annarra viðburða.

Draumar geta ræst í morgunsöng Laugarnesskóla
Nemendur Laugarnesskóla sungu lagið Draumar geta ræst eftir tónlistarmanninn Jón Jónsson í morgunsöngnum í morgun. Krakkarnir voru að sjálfsögðu klæddir í búninga enda Öskudagur haldinn hátíðlegur í dag.