

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

„Ég leyfi mér að dreyma“
Leikkonan og lífskúnstnerinn Katla Þórudóttir Njálsdóttir hefur vakið athygli fyrir sköpunargleði sína í íslensku samfélagi, meðal annars með þátttöku sinni í Söngvakeppni Sjónvarpsins og í hlutverki sínu í sjónvarpsseríunni Vitjanir. Katla leyfir sér að dreyma, reynir alltaf að hafa eitthvað að gera og reynir að hafa húmorinn í fyrirrúmi. Katla er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Zelensky ávarpar gesti Glastonbury
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu ávarpaði gesti Glastonbury fyrr í dag. Zelensky birtist í formi upptöku áður en hljómsveitin The Libertines hóf flutning sinn. Hann hvatti áhorfendur til þess að beita stjórnmálafólk þrýstingi.

Doctor Victor, Daníel Ágúst og Bomarz sameina krafta sína með dansvænu lagi
Tónlistarmennirnir Doctor Victor, Daníel Ágúst og Bomarz fara dansandi inn í sumarið þar sem þeir voru að senda frá sér lagið Dansarinn (Club Edit). Upprunalega lagið var gefið út eftir samnefnda bók eftir Óskar Guðmundsson á vegum Storytel en ákveðið var að gera glænýja útgáfu.

„Fallegt og unglegt viðhorf til ástarinnar og mistakanna sem maður getur gert þegar maður er skotinn“
Tónlistarkonan Una Schram sendi frá sér smáskífuna Mess mixtape fyrr í dag og er hún unnin í samtarfi við pródúserinn Young Nazareth og listræna stjórnandan Júlíu Grönvald. Blaðamaður tók púlsinn á Unu.

Brekkusöngurinn: „Það er sannur heiður að fá þetta verkefni“
Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun leiða brekkusönginn á Þjóðhátíð í ár. Hann er góðkunnur hátíðinni en hefur komið þar fram síðan 2016 og stýrði brekkusöngnum í fyrra fyrir tóma brekkuna.

„Þarna eru „gamlir“ jaxlar og stórstjörnur ásamt leikurum framtíðarinnar“
Trölladans er frumsaminn rokksöngleikur, um Jonna sem lendir í tröllabyggð, eftir Guðmund Ólafsson en meðhöfundur og höfundur tónlistar er Friðrik Sturluson. Með aðalhlutverk fara Mikael Emil Kaaber, Birna Pétursdóttir, og Eyþór Ingi Gunnlaugsson.

Samdi lagið eftir að hafa dreymt að hún væri með risavaxið typpi sem úr yxu blóm
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Sölku Valsdóttur, neonme, við lagið The Flower Phallus. Blaðamaður tók púlsinn á Sölku og fékk að heyra nánar frá laginu.

Daníel Ágúst er fjórði Idol-dómarinn
Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.

Frumsýnir „The Flower Phallus“ á Vísi á morgun
Tónlistarkonan Salka Valsdóttir gengur undir listamannsnafninu neonme í nýju tónlistarverkefni. Á morgun sendir hún frá sér sitt fyrsta lag sem ber nafnið The Flower Phallus og mun hún frumsýna tónlistarmyndband sitt hér á Lífinu hjá Vísi klukkan 11:30.

Birgitta Haukdal, Herra Hnetusmjör og Guðrún Árný mæta í dalinn
Dagskráin fyrir Þjóðhátíð stækkar enn og er ljóst að brekkan mun loga af stemningu en Herra Hnetusmjör, Birgitta Haukdal og Guðrún Árný hafa bæst við landslið listafólks sem mun koma fram á stóra sviðinu í Herjólfsdal á þjóðhátíð.

Bríet er þriðji Idol-dómarinn
Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.

Fyrrverandi hljómborðsleikari Fleetwood Mac látinn
Brett Tuggle, fyrrverandi hljómborðsleikari sveitarinnar Fleetwood Mac og liðsmaður David Lee Roth Band, er látinn, sjötugur að aldri. Hann lést af völdum krabbameins.

Beyoncé gefur út fyrsta lagið af væntanlegri plötu
Söngkonan Beyoncé gaf út fyrsta lagið af væntanlegri plötu sinni í gær og heitir lagið Break My Soul. Platan sem kemur út í lok júlí mun bera heitið Renaissance og verður fyrsta sóló platan hennar síðan 2016.

Svana Gísla framleiðir ABBA sýninguna í London: „Þetta hefur aldrei verið gert áður“
Framleiðandinn Svana Gísla hefur á undanförnum árum unnið hörðum höndum að því að láta stórsýninguna ABBA Voyage verða að veruleika. Svana og Ludvig Andersson framleiða sýninguna saman og unnu þau náið með leikstjóranum Baillie Walsh. Blaðamaður tók púlsinn á Svönu og fékk að heyra nánar frá þessu spennandi ferli.

Birgitta Haukdal er annar Idol-dómarinn
Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.

Barn Jennifer Lopez notar kynhlutlaus fornöfn
Jennifer Lopez kynnti barnið sitt Emme Maribel á svið með kynhlutlausum fornöfnum á góðgerðartónleikum nú nýverið. Emme hefur áður komið fram með móður sinni en síðast var það þegar Lopez kom fram í hálfleik á Super Bowl árið 2020.

Kunna ekkert að syngja en ætla að flytja Shallow hundrað sinnum í sumar
Elínborg Una og María Jóngerð ætla að flytja lagið Shallow hundrað sinnum fyrir áhorfendur í sumar og rannsaka viðbrögðin við flutningnum. Þær hafa þegar flutt lagið 24 sinnum fyrir áhorfendur, þar á meðal gesti nokkurra World Class-stöðva, viðskiptavini Bónuss og einn vinnuskólahóp.

Lizzo í fyrsta sæti: „Kominn tími til“
Söngkonan Lizzo trónir á toppi íslenska listans um þessar mundir með nýjasta lagið sitt About Damn Time. Lagið, sem hefur náð miklum vinsældum um allan heim, hefur hækkað sig upp listann á undanförnum vikum.

Sól og sumardans ásamt myrkari hliðum tilverunnar
Benni Hemm Hemm var að gefa út lagið Eitthvað leiður í dag, á 17. Júní. Lagið er unnið með hópi öflugs tónlistarfólks sem leika á hin ýmsu hljóðfæri. Blaðamaður tók púlsinn á Benna.

„Persónulegt og hrátt“
Íslenska rokkhljómsveitin Tragically Unknown var að senda frá sér lagið In Between í dag, á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Hljómsveitin er skipuð þeim Helenu Hafsteinsdóttur, Oddi Mar Árnasyni og Þórgný Einari Albertssyni. Blaðamaður hafði samband við þau og fékk að heyra nánar frá nýja laginu.

„Er í fyrsta skipti að semja lög út frá hjartanu en ekki bara að syngja um Dicks“
Tónlistarmaðurinn Ingi Bauer var að gefa út lagið HUGSANIR en þetta er fyrsta lag af væntanlegri plötu frá honum sem mun bera nafnið ÁST.

Beyoncé tilkynnir næstu plötu sína
Beyoncé hefur tilkynnt næstu plötu sína, Renaissance, sem kemur út þann 29. júlí næstkomandi. Platan er sjöunda sóló-plata tónlistarkonunnar og sú fyrsta frá 2016 þegar hin mjög svo vinsæla Lemonade kom út.

Eitrað ástarsamband í stöðugri hringrás
Hin fjölhæfa Sigrún Stella gaf út glænýtt lag þann 10. júní sem ber heitið „Circles.“

Lizzo lagfærir textabút í nýju lagi eftir mikla gagnrýni
Tónlistarkonan Lizzo lenti í vandræðum nú á dögunum vegna niðrandi textabútar í nýútgefna laginu „Grrrls.“ Textinn var gagnrýndur harðlega á samfélagsmiðlum og voru margir aðdáendur hennar miður sín yfir orðnotkuninni.

„Alltaf gaman að styðja og vinna með öðrum tónlistarkonum“
Tónlistarkonurnar Áslaug Dungal, Fríd og Karítas halda saman tónleika í rýminu Mengi í kvöld. Blaðamaður tók púlsinn á þeim og fékk að heyra nánar frá sköpunargleði þeirra.

BTS sveitin hætt í bili
Hin geisivinsæla Suður-Kóreska hljómsveit BTS mun taka sér ótímabundið hlé frá störfum. Þetta tilkynntu þeir í beinu streymi nú í dag en þar segjast þeir ætla að einbeita sér að sólóferlum sínum.

Dóttir Beyoncé og Jay Z sláandi lík móður sinni
Jay Z mætti með dóttur sína Blue Ivy á úrslitaleik í NBA í gær og beindust allra augu að dótturinni sem þykir nú orðin sláandi lík móður sinni, poppgyðjunni Beyoncé.

Christina Aguilera kom fram með gervilim í Hulk-búning
Söngkonan Christina Aguilera kom fram í allri sinni dýrð á tónlistarhátíðinni LA Pride In The Park þann 11. júní síðastliðinn.

Vilja vekja athygli á því að rusl er gull
RUSL Fest er lista- og hönnunarhátíð sem haldin verður dagana 27. júní - 2. júlí næstkomandi í Gufunesi, nýju hverfi skapandi greina í Reykjavík. Blaðamaður hafði samband við Narfa, einn af forsvarsmönnum hátíðarinnar, og fékk að heyra nánar frá ferlinu á bak við RUSL Fest.

Dua Lipa stödd á Íslandi
Breska tónlistarkonan Dua Lipa virðist vera á Íslandi ef marka má Instagram-sögu hennar. Þar birtir hún mynd af manni að dansa á rauðum sandi og í bakgrunn má sjá glitta í bíla frá kvikmyndatækjaleigunni Kukl.