Ólympíuleikar

Fylgjendur hennar meira en tífölduðust á nokkrum klukkutímum
Chloe Kim er ekki lengur bara efni í stórstjörnu því þessi sautján ára stelpa er þegar orðin ein af stærstu íþróttastjörnum heims eftir að hafa unnið Ólympíugullið í snjóbrettafimi í nótt.

Fyrsta lyfjamálið komið upp í Pyeongchang
Japaninn Kei Saito varð fyrsti íþróttamaðurinn til þess að falla á lyfjaprófi á Vetrarólympíuleikunum sem nú fara fram í Pyeongchang í Suður Kóreu.

Fagnaði Ólympíugullinu sínu með því að borða ís í beinni
Chloe Kim endurskrifaði snjóbrettasögu Ólympíuleikanna á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í morgun þegar hún varð yngsta konan til að vinna Ólympíugull.

Ólympíumeistarar dagsins í Pyeongchang | Myndir af meisturunum
Sjö Ólympíugull unnust á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður Kóreu í dag en þetta var þriðji keppnisdagur leikanna.

Grét af gleði eftir sögulegan sigur
Hollenska skautahlauparinn Ireen Wüst endurskrifaði Ólympíusöguna í dag þegar hún varð fyrsti skautahlauparinn til að vinna tíu verðlaun á Ólympíuleikum.

„Við erum hér og við erum hommar. Sættið ykkur við það“
Tveir meðlimir bandaríska Ólympíuliðsins eru stoltir sendiherrar samkynhneigða á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu.

Endaði næstum því á brjóstunum í beinni á ÓL þegar búningurinn hennar bilaði
Suður-Kóresku listdanskonunni Yuru Min tókst á einhvern hátt að bjarga sér frá einu vandræðalegasta mómenti í sögu Ólympíuleikanna um helgina. Hún hafði síðan mikinn húmor fyrir öllu saman eftir keppnina.

Bruni karla frestað
Bruni karla, sem átti að fara fram í dag á vetrarólympíuleikunum í Pyongyang, hefur verið frestað vegna veðurfars. Stjórnendur mótsins telja aðstæður ekki við hæfi.

Stal aftur senunni á setningarhátíð ÓL og mætti ber að ofan í frostinu
Tongamaðurinn Pita Taufatofua vakti mikla athygli á setningarhátíð vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang í dag. Hann leggur það í vana sinn að stela senunni þegar Ólympíuleikar eru settir.

Freydís fór með íslenska fánann í 360 gráðu myndavél | Myndband
Freydís Halla Einarsdóttir og félagar hennar í íslenska Ólympíuliðinu á vetrarólympíuleikunum í PyeongChang eru komin inn á leikvanginn og allt gekk vel.

„Íslenska“ liðið sem vann Ólympíugull fyrir næstum því hundrað árum
Það eru 98 ár síðan „Íslendingar“ unnu sitt fyrsta og eina Ólympíugull en þrátt fyrir íslensku áhrifin í sigurliðinu þá er titilinn skráður í metabækur Kanadamanna.

Lindsey Vonn brotnaði niður og grét á fyrsta blaðamannafundi sínum í PyeongChang
Það var tilfinningarík stund á blaðamannafundi Lindsey Vonn í PyeongChang í Suður-Kóreu í nótt en bandaríska skíðakonan hélt þá sinn fyrsta blaðamannafund eftir komuna til Suður-Kóreu.

Rússarnir komast ekki inn á ÓL í gegnum bakdyrnar
Vetrarólympíuleikarnir í Pyeongchang í Suður Kóreu verða settir í hádeginu í dag en í nótt varð það loksins endanlega ljóst hversu margir rússneskir íþróttamenn fá að keppa á leikunum.

Hélt að boð um að keppa á Ólympíuleikunum væri ruslpóstur
Ólympíufari las póstinn sinn í tæka tíð og keppir í Pyeongchang.

Vetrarólympíuleikarnir eru hættulegri en sumarólympíuleikarnir
Einn af hverjum tíu sem keppir á vetrarólympíuleikunum meiðist á leikunum. Þetta kemur fram í rannsókn sem Alþjóðaólympíunefndin lét gera á undanförnum tveimur vetrarleikum.

Keppir á Ólympíuleikunum rúmu ári eftir að hann hálsbrotnaði
Wojtek Wolski hefur þegar fagnað sigri á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang þrátt fyrir að það sé ekki enn búið að flauta til leiks á leikunum.

Íslenski hópurinn gaf borgarstjóra Ólympíuþorpsins eggið „Móðir jörð“
Ólympíuleikarnir verða settir í PyeongChang á morgun en í dag fékk íslenski Ólympíuhópurinn smá forskot á sæluna.

Flugvél með einni þekktustu íþróttakonu heims á leið á ÓL fékk ekki að fara á loft
Lindsey Vonn er fyrrum Ólympíumeistari og ein þekktasta íþróttakona heims. Hún er á leiðinni á sína fjórðu Ólympíuleika en það hefur ekki gengið snuðrulaust að komast til Suður-Kóreu.

Norskir Ólympíufarar pöntuðu óvart 15 þúsund egg
Vetrarólympíuleikarnir hefjast í Suður Kóreu á morgun.

Er þessi eitt mesta hörkutólið á ÓL í Pyeongchang?
Breska snjóbrettakonan Katie Ormerod ætlar ekki að láta neitt koma í veg fyrir að hún keppi á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang. Ekki einu sinni meiðsli.

Systur spila með sitthvoru landsliðinu á Ólympíuleikunum
Marissa og Hannah Brandt eru systur og báðar að fara að keppa á vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í Suður-Kóreu. Þær munu hinsvegar ekki ganga saman inn á setningarhátíðina eða spila í sama liði á leikunum.

Freydís fyrsta konan í tólf ár sem verður fánaberi Íslands
Freydís Halla Einarsdóttir verður fánaberi Íslands á setningarhátíð XXIII vetrarólympíuleikanna í PyeongChang 2018.

Drónar passa upp á dróna á Ólympíuleikunum í Pyeongchang
Ólympíuleikarnir hefjast í Pyeongchang á föstudaginn og það er að mörgu að hyggja þegar kemur að öryggismálum í kringum leikana.

Systir Kim Jong-un mætir á setningarhátíð Ólympíuleikanna
Keppendur Norður- og Suður-Kóreu munu ganga inn á völlinn á setningarhátíðinni undir sameiginlegum fána, en nokkurrar þíðu hefur gætt í samskiptum ríkjanna að undanförnu.

Breskur sjónvarpsmaður hljóp um á stuttbuxunum í sextán gráðu frosti
Rob Walker er mættur til Pyeongchang í Suður-Kóreu þar sem hann mun lýsa því sem gerist á 23. vetrarólympíuleikunum fyrir BBC.

Allt sem þú þarft að vita um Ísland á Ólympíuleikunum í PyeongChang
Það eru aðeins þrír dagar þangað til að vetrarólympíuleikarnir í PyeongChang í Suður-Kóreu verða settir.

Öryggisverðir á Ólympíuleikunum ælandi og púandi
Það kom upp mikið vandræðaástand á Ólympíusvæðinu í Pyeongchang í Suður Kóreu þar sem vetrarólympíuleikarnir verða settir með viðhöfn á föstudaginn kemur.

Farangur íslensku Ólympíufaranna lengur á leiðinni en eigendurnir sínir
Vetrarólympíuleikarnir verða settir í PyeongChang á sunnudaginn og það berast góðar fréttir frá Suður-Kóreu.

Einstakt samband Lindsey Vonn og hundanna hennar sem elta hana líka í skíðabrekkunni
Skíðadrottniningin Lindsey Vonn er á leiðinni á Ólympíuleikanna í Pyeongchang og hún er andlit leikanna hjá NBC sjónvarpsstöðinni.

Lögðu af stað til PyeongChang í morgun
Íslendingar senda fimm keppendur til leiks á vetrarólympíuleikana í PyeongChang í Suður Kóreu og hluti af íslenska hópnum lagði af stað frá Íslandi í morgun.