Hinsegin

Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn
Tónlistarkonan Chappell Roan kom sem stormsveipur inn í tónlistarheiminn í fyrra þegar hún gaf út plötuna The Rise And Fall of a Midwest Princess. Tvö lög af plötunni klífa nú vinsældarlista um allan heim og Chappell, sem á mjög áhugaverða sögu, skín skærar en nokkru sinni fyrr.

Ætla að fylla Borgarnes með mörgþúsund manns
Guðrún St. Guðbrandsdóttir, forseti Hinsegin Vesturlands, segir heilan helling framundan á Brákarhátíð og Hinseginhátíð Vesturlands sem fer fram um helgina.

„Sláandi fordómar í kosningabaráttunni“
Jafnrétti eru ekki sjálfgefið og halda þarf baráttunni gangandi sagði forseti borgarstjórnar þegar blómsveigur var lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í morgun. Haldið er upp á kvenréttindadaginn í dag.

Fjöldi Reykvíkinga með kynhlutlausa skráningu tvöföldaðist milli ára
Fjöldi Reykvíkinga með hlutlausa kynskráningu tvöfaldaðist milli áranna 2022 og 2023. Þá hækkaði hlutfall innflytjenda af íbúafjölda í Reykjavík á tímabilinu 1996 til 2023 úr 2,6 prósent í 25 prósent.

Enn þrætt um þróun íslenskunnar: „Fjögur slösuðust í hörðum árekstri“
Höskuldur Þráinsson, fyrrverandi prófessor í íslensku nútímamáli, vill gjalda varhug við því sem hann kallar tilraunastarfsemi í notkun íslenskunnar.

Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“
Frans páfi hefur beðist afsökunar vegna niðrandi orða sem hann er sagður hafa látið frá sér í umræðu um það hvort hleypa ætti samkynhneigðum körlum í prestaskóla. Hann segist ekki hafa viljað særa neinn.

Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi
Frans páfi er sagður hafa notað lítilsvirðandi orð þegar viðræður stóðu yfir innan kaþólsku kirkjunnar um hvort hleypa ætti samkynhneigðum körlum inn í prestaskóla.

„Oft sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn“
„Þetta er ekkert svo flókið og snýst ekkert um það að fólk þurfi að passa sig á því hvort það eigi að segja hún, hann eða hán. Þetta snýst meira um þá sem rangkynja meðvitað, sem oft eru sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn,“ útskýrir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns.

Varfærnisleg fagnaðarlæti
Ísland náði þeim mikilvæga áfanga á dögunum að lenda í öðru sæti á Regnbogakorti ILGA Europe, sem metur lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum Evrópu. Þetta er árangur sem við megum vera stolt af og sýnir vilja okkar til að tryggja jöfn réttindi og vernd fyrir öll í okkar samfélagi, óháð kynhneigð eða kynvitund.

Ísland hástökkvari í málefnum hinsegin fólks
Þær gleðifréttir bárust í gær að Ísland hefur tekið stökk upp í 2. sæti á nýuppfærðu Regnbogakorti Evrópusamtaka hinsegin fólks (ILGA Europe) og er áfram í efsta sæti á réttindakorti trans fólks í Evrópu. Frá 2018 hefur Ísland því farið upp um 16 sæti á Regnbogakortinu en það ár var Ísland í 18. sæti.

Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu
Ísland er einn af hástökkvurunum Regnbogakorts ILGA-Europe, regnhlífarsamtaka yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu í ár, og fer upp í annað sæti úr því fimmta. Í tilkynningu kemur fram að Ísland uppfylli nú um 83 prósen af þeim viðmiðum sem ILGA-Europe setur.

Ísland í öðru sæti Regnbogakortsins um réttindi hinsegin fólks
Í dag fögnum við hjá Samtökunum ’78 þeim árangri sem náðst hefur í að bæta réttindastöðu hinsegin fólks á Íslandi. Árlega birtir ILGA-Europe, regnhlífarsamtök yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu, nýja útgáfu regnbogakortsins en kortið mælir lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum.

Fögnuðu heimkomu Nemo
Nokkur hundruð manns voru saman komin á alþjóðaflugvellinum í Zürich í Sviss í gær til að taka á móti söngvaranum Nemo sem vann sigur í Eurovision á laugardagskvöldið.

Köllum það réttu nafni: Fordóma
Hinsegin samfélagið er ekki þetta einsleita regnbogalið sem mörg virðast hugsa. Við erum fjölbreyttur og litríkur hópur fólks sem hefur eins fjölbreyttar skoðanir, en mörg okkar erum sammála einu: fyrsta skrefið til að uppræta fordóma gegn okkur er það að horfast í augu við þá.

Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling
Daniel Radcliffe, stjarna kvikmyndanna um Harry Potter, segir að sér þyki ákaflega dapurlegt hvernig fór fyrir sambandi hans við J.K. Rowling, höfund Potter-bókanna, eftir að hann og fleiri leikarar lýstu sig ósammála henni um trans fólk.

Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar?
Formaður Samtakanna '78 segir það áhyggjuefni þegar reynt er að nota kynhneigð forsetaframbjóðanda til að gera hann tortryggilegan. Baldur Þórhallsson var spurður í viðtali í vikunni hvort mynd af honum á stað sem sagður er vera kynlífsklúbbur geti skaðað ímynd forsetaembættisins.

„Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“
Samtökin 78 hvetja íslenskt samfélag í heild sinni til að halda sig í málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninga. Það gera þau í tilefni af umfjöllun um einkamálefni Baldurs Þórhallssonar.

Spurningar til Baldurs minni á árið 1980
Sólborg Guðbrandsdóttir rithöfundur og meðlimur í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir hann þurfa að svara spurningum sem aðrir forsetaframbjóðendur þurfi ekki að svara vegna kynhneigðar sinnar.

„Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“
„Textarnir mínir fjalla um mína upplifun af ástinni og þar fer ekki á milli mála að ég sé að tala um stráka,“ segir tónlistarmaðurinn Torfi Tómasson eða TORFI. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu á sumardaginn fyrsta. Platan ber titilinn EITT og er tilraunakennd poppplata sem inniheldur hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem að fyrirfinnast ekki á Íslandi.

Sophia Bush kemur út úr skápnum
Sophia Bush hefur komið út úr skápnum og staðfest að hún sé í sambandi með Ashlyn Harris, fyrrverandi landsliðskonu í landsliði Bandaríkjanna í fótbolta. Bush segist loksins geta andað og segist finna fyrir miklum létti.

Forsetakosningar 2024 og fóbía hinsegin fólks: Erum komin í tímavél aftur í tímann?
Í ljósi komandi kosninga um hinn nýja Forseta Íslands hef ég tekið eftir ýmsri orðræðu á samfélagsmiðlum sem að mínu mati hefur vakið mig til undrunar að undanförnu. Hér á ég við hatursherferðina gegn Baldri, einum forsetaframbjóðendanna.

Frelsið til að vera ég
Ef það er einn hlutur sem ég ætti að nefna sem hefði getað bætt lífsgæði mín og hamingju sem barn og unglingur, þá væri það aðgangur að upplýsingum um trans fólk, og sá stuðningur og þjónusta sem transteymi Barna- og unglingageðdeildar Landspítala veitir ungmennum nú.

Blöskrar fordómafull ummæli um pabba sinn
Álfrún Perla Baldursdóttir, dóttir Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda, segir að sér hafi blöskrað ummæli og almenn leiðindi byggð á fordómum í kosningabaráttunni. Þetta segir Áfrún í pistli á Facebook.

Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur
Ný skýrsla Dr. Hilary Cass um þjónustu við börn með kynmisræmi og/eða kynama á Bretlandi er þungur áfellisdómur yfir kerfinu. Cass segir langa biðlista og ógagnreyndar meðferðir hafa komið harkalega niður á börnum og ráðleggur víðtækar breytingar.

Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ
Stjórnmálafræðiprófessorinn Baldur Þórhallsson vill verða næsti forseti Íslands en hann og Felix Bergsson hafa eftir mikla umhugsun með fjölskyldunni tekið þessa ákvörðun.

Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar
Joanne Rowling, höfundur bókanna um galdradrenginn Harry Potter, er fjarri því búin að fyrirgefa aðalleikurunum úr kvikmyndunum um Potter fyrir að vera ósammála henni um trans fólk. Hún heldur áfram að lýsa trans fólki sem hættulegu konum.

Fordæma kynleiðréttingaraðgerðir og staðgöngumæðrun
Páfagarður lýsir kynleiðréttingaraðgerðum og staðgöngumæðrun sem alvarlegu broti gegn mannlegri virðingu í nýrri stefnuyfirlýsingu sem var birt í dag að skipan páfa. Afstaða kaþólsku kirkjunnar til þess er þannig sú sama og til þungunarrofs og líknardráps.

Homminn Baldur
Tugir einstaklinga hafa lýst sig reiðubúna til að gegna því mikilvæga verkefni að vera forseti lýðveldisins. Það endurspeglar eflaust heilbrigt lýðræði hve margir eru boðnir og búnir í starfið þó sumum finnist það orðið skrípaleikur.

Rowling ekki sótt til saka fyrir að kalla trans konur „karlmenn“
Lögregluyfirvöld í Skotlandi segja rithöfundinn JK Rowling ekki hafa brotið lög þegar hún kallaði trans konur „karlmenn“ á X/Twitter. Rowling var að gagnrýna nýja haturslöggjöf sem tók gildi á mánudag og sagði hana aðför að tjáningarfrelsinu í Skotlandi.

Hægt að fagna bæði upprisu Jesú og trans fólki á sama tíma
Forseti Trans Ísland segir ekkert óvænt við orðræðu Repúblikana í Bandaríkjunum um að forseti landsins, Joe Biden, taki trans fólk fram yfir Jesú með því að mæla með því að almenningur standi með trans fólki á alþjóðlegum sýnileikadegi þeirra, í dag Páskadag.