Frakkland

Vill samkomulag um að skíðasvæði í Evrópu verði lokuð fram yfir áramót
Þýsk stjórnvöld leitast nú eftir samkomulagi við önnur aðildarríki ESB um að halda skíðasvæðum lokuðum fram í byrjun janúar. Skuli það gert til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Ruðningsheimurinn í sárum eftir andlát franskrar hetju
Frakkar syrgja ruðningskappann Christophe Dominici sem lést í gær.

Segir myndefni af lokun tjaldbúða í París vera sláandi og heitir rannsókn
Innanríkisráðherra Frakklands segir myndefni af lögregluþjónum loka tjaldbúðum í París í gær vera sláandi og heitir því að málið verði rannsakað. Búðirnar voru reistar af aðgerðasinnum og stjórnmálamönnum í mótmælaskyni við því að sambærilegum búðum annarsstaðar í borginni var lokað í síðustu viku.

Ferðalög innanlands bönnuð í Portúgal fyrir jólin
Portúgölsk yfirvöld hafa ákveðið að banna ferðalög innanlands og loka öllum skólum í kring um tvo hádegisdaga í von um að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar fyrir jólin.

Myrti konuna sína og brenndi líkið
Frakkinn Jonathann Daval hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og brennt lík hennar.

Dánartilkynningar heimsfrægra birtar fyrir slysni
Á heimasíðu frönsku útvarpsstöðvarinnar Radio France Internationale birtust tilkynningar um andlát margra þekktustu einstaklinga í heimi.

Felldu alræmdan vígamann í Malí
Hernaðaryfirvöld Frakklands segja að franskir hermenn hafi fellt háttsettan leiðtoga al-Qaeda í Malí.

Vara almenning við því að skipuleggja ferðalög um jólin
Yfirvöld í nokkrum Evrópuríkjum hafa varað fólk við að skipuleggja ferðalög um jólin, enda sé kórónuveirufaraldurinn enn í sókn víða í álfunni.

Segir Rússa gruna að eitrað hafi verið fyrir Navalní á leið til Þýskalands
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir að ríkisstjórn Rússlands gruni að taugaeitrið Novichok, hafi borist í rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní þegar verið var að flytja hann til Þýskalands.

Sjúkrahúsforstjóri í París hvetur til að jólunum verði aflýst
Julien Lenglet, forstjóri sjúkrahússins Hôpital privé d'Antony í París, hefur hvatt til þess að hátíðahöldum vegna jóla og áramóta verði öllum aflýst í ár vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveirunnar á franskt samfélag.

Rúmlega 270 létust í gær í Frakklandi vegna Covid
271 létust síðasta sólarhringinn vegna Covid-19 í Frakklandi. Nú hafa alls 40.439 látist af völdum veirunnar þar í landi og hafa tæplega 1,8 milljónir manna greinst smitaðir af veirunni en rúmlega 38 þúsund manns greindust síðasta sólarhringinn.

Skaut prestinn vegna gruns um framhjáhald
Maðurinn sem grunaður var um að hafa skotið prest grísku rétttrúnaðarkirkjunnar í borginni Lyon í Frakklandi fyrir rúmlega viku síðan hefur játað verknaðinn.

Metdagur í Frakklandi
Alls greindust 60.486 manns með kórónuveiruna í Frakklandi í gær. Aldrei hafa jafn margir greinst með veiruna á einum sólarhring.

Rúmlega fimmtíu féllu í loftárásum Frakka í Malí
Varnarmálaráðherra Frakklands segir að rúmlega fimmtíu hryðjuverkamenn hafi fallið í loftárásum franska hersins í Malí í síðustu viku.

Stöðva réttarhöld vegna kórónuveirusmits sakbornings
Einn sakborningur í réttarhöldum vegna árásarinnar gegn franska tímaritinu Charlie Hebdo hefur greinst með kórónuveirusmit.

Handtekinn grunaður um árásina í Lyon
Einn er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa skotið prest í frönsku borginni Lyon í dag.

Leita árásarmanns í Lyon eftir að prestur var skotinn
Prestur í Lyon í Frakklandi er sagður í lífshættulegu ástandi eftir að hafa verið skotinn tvisvar í kviðinn.

Maður handtekinn í tengslum við árásina í Nice
Lögregla í Frakklandi hefur handtekið 47 ára karlmann vegna gruns um að tengjast hryðjuverkaárásinni í Nice í gær. Er hinn handtekni grunaður um að hafa aðstoðað árásarmanninn við undirbúning árásarinnar.

Árásarmaðurinn kom frá Túnis fyrir nokkrum dögum
Árásarmaðurinn sem stakk tvær konur og karl til bana í Nice í Frakklandi í morgun kom til landsins fyrir nokkrum dögum síðan að sögn franskra yfirvalda.

Tvöfalt fleiri hermenn munu gæta öryggis Frakka
Þjóðaröryggisráðstafanir voru færðar á hæsta stig í Frakklandi eftir að 21 árs karlmaður frá Túnis stakk þrennt til bana í Nice.

Lögregla skaut árásarmann til bana í Avignon
Maður vopnaður hnífi var skotinn til bana af lögreglu í frönsku borginni Avignon um klukkan 11:15 í morgun að staðartíma eftir að sá hafði reynt að stinga lögreglumenn á götu úti.

Þrír látnir eftir árás við kirkju í Nice
Að minnsta kosti þrír eru látnir og nokkrir eru særðir eftir hnífstunguárás við Notre Dame í miðborg frönsku borgarinnar Nice í morgun. Borgarstjóri segir að um mögulega hryðjuverkaárás sé að ræða.

Stór jólaboð mögulega bönnuð í Bretlandi
Breski dómsmálaráðherrann, Robert Buckland, hefur varað við því að stór jólaboð verði hugsanlega bönnuð í Bretlandi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Frakkar skella í lás í annað sinn
Hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins í Frakklandi munu gilda út nóvember. Þá hafa þýsk stjórnvöld jafnframt ákveðið að grípa til frekari aðgerða.

Smituðum fjölgar á Skáni og Frakkar bíða eftir Macron
Skánn slapp nokkuð vel út úr fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins í vor.

Heathrow missir fyrsta sætið
Heathrow-flugvöllur í London hefur misst efsta sætið á listanum yfir umferðarþyngstu flugvelli Evrópu.

Tyrkir í hart vegna skopmyndar af Erdogan
Tyrklandsstjórn ætlar að grípa til bæði lagalegra og diplómatískra aðgerða vegna nýrrar skopmyndar franska blaðsins Charlie Hebdo af Recep Tayyip Erdogan forseta.

Tæplega fimmtán þúsund Þjóðverjar greindust með kórónuveiruna í gær
Rétt tæplega fimmtán þúsund manns greindust með kórónuveiruna í gær í Þýskalandi og hefur fjöldinn aldrei verið meiri frá upphafi faraldursins þar í landi.

Börn meðal þeirra sem létust þegar bátur sökk á Ermarsundi
Fjórir flóttamenn, þar af tvö börn, átta og fimm ára, eru látnir eftir að bátur sem átti að fyltja þá til Bretlands sökk.

Hríðversnandi staða í Evrópu
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Spáni og hertar takmarkanir voru kynntar á Ítalíu vegna kórónuveirufaraldursins.