Kjaramál

Einstök staða á almenna vinnumarkaðnum
Verkfallsaðgerðir Eflingar og VR marka ákveðin kaflaskipti í samskiptum deiluaðila á almenna vinnumarkaðnum þar sem friður hefur ríkt nánast allt frá gerð þjóðarsáttarsamninganna fyrir tæplega þrjátíu árum.

Hóteleigendur hóti starfsfólki og reyni á verkfallslöggjöf
Efling hefur fengið margar ábendingar frá félagsmönnum um verkfallsbrot vinnuveitenda. Félagsfulltrúi hjá Eflingu segir dæmi um að hótelstarfsfólki hafi verið hótað að vinnustaður þeirra verði gjaldþrota ef til verkfalls kemur.

Ekki rætt um frestun verkfalls
Ríkissáttasemjari segir ágætis samtal hafa átt sér stað á fundi í dag en afar ólíklegt sé að samningar náist í kvöld.

Möguleiki á háum skaðabótum ef fólk utan félaga verður truflað við störf
Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, segist vita að atvinnurekendur í ferðamannageiranum muni láta reyna á bótaskyldu stéttarfélaga ef afskipti verða höfð af bílstjórum sem ekki eiga að vera í verkfalli.

Sótti um undanþágu fyrir næturverðina í yfirvofandi verkföllum
Einhvers misskilnings virðist þó gæta um það hvort stéttarfélagið, Efling eða VR, eigi að taka beiðnina til afgreiðslu.

Enn fundað hjá sáttasemjara
Enn er fundað í húsakynnum ríkissáttasemjara í kjaradeilu VR, Eflingar, LÍV, VLFG, VLFA og Framsýnar við Samtök atvinnulífsins.

Leigubílar munu aldrei anna aukningu meðal ferðalanga
Leigubílsstjórar sjá fram á annasama tíð en taka uppgripunum ekki fagnandi.

Mögulegt að fresta verkföllum með skömmum fyrirvara
Lögfræðingur Alþýðusambands Íslands segir að fræðilega sé hægt að fresta verkföllum VR og Eflingar með skömmum fyrirvara. Samningafundur stendur enn yfir hjá ríkissáttasemjara milli Samtaka atvinnulífsins og viðsemjenda en fjölmiðlabann var sett skyndilega á eftir upphaf fundar í morgun.

Búast við verkfallsvörslu en ætla ekki í nein átök
Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, segir að fyrirtækið muni fókusera á að halda flugrútunni á milli BSÍ og Keflavíkurflugvallar gangandi á morgun komi til verkfalla félagsmanna Eflingar og VR sem boðað hefur verið á miðnætti og áætlað er að standi í sólarhring.

Breyti titlum starfsfólks til að komast hjá verkfalli
Eflingu-stéttarfélagi hefur borist fjölmargar ábendingar frá starfsfólki einnar hótelkeðju á Íslandi um að hæstráðendur séu þessa dagana að uppfæra titla starfsfólks í því skyni að komast hjá verkföllum. Þannig sé verið að titla starfsfólk hinum ýmsu millistjórnendanöfnum þrátt fyrir að hvorki kjör né ábyrgð breytist.

Spennuþrungið andrúmsloft og fjölmiðlabann í Karphúsinu
Fjölmiðlabann var sett á skyndilega hjá ríkissáttasemjara stuttu eftir að fundur hófst í kjaradeilu VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness, Verkalýðs Grindavíkur og Framsýnar við Samtök atvinnulífsins.

Misræmi í afgreiðslu kjararáðs
Kjararáð tók ekki til afgreiðslu erindi tuga embættismanna áður en það var lagt niður. Hluti síðustu ákvarðana ráðsins ekki birtur. Forstjóri Landspítalans sá eini sem hlaut hulduhækkun árið 2011.

Túlka verkfallsboðun ekki með sama hætti
Efling og SA túlka með mismunandi hætti til hvaða starfsmanna boðuð verkföll, sem hefjast eiga á miðnætti, nái til. Verkfallið myndi ná til um 2.600 félagsmanna Eflingar og VR á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum.

Segir SA hafa boðið ríflega 40 prósenta launahækkun
Guðbrandur Einarsson segir að hægt hafi verið að ná kjarasamningi við SA í síðustu viku sem fært hefði lægst launaða hópnum rúmlega 40 prósenta launahækkun á samningstímanum og styttingu vinnutímans.

Gerir ekki lítið úr alvarlegri stöðu kjaraviðræðna
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ábyrgð samningsaðila beggja vegna borðsins mikil að aflétta óvissu sem liggi eins og mara á samfélaginu.

Verkfallsbrot „alvarleg árás á mannréttindi vinnandi fólks“
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir stuðningi við boðaðar verkfallsaðgerðir Eflingar-stéttarfélags og VR sem fara fram á félagssvæði beggja félaga næstu vikur.

SA segja verkfallsboðunina einungis eiga við um félagsmenn
Boðuð verkföll ná einungis til starfsmanna sem eiga aðild að þeim stéttarfélögum sem hafa boðað verkföll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins sem send var til fjölmiðla til að bregðast við orðum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar.

Ekki sammála því að menn hafi verið við það að loka samningi
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og nýkjörinn formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, segist ekki sammála Guðbrandi Einarssyni, fyrrverandi formanni LÍV, að sambandið hafi verið með ágætis samning innan seilingar.

Forsætisráðherra hefur þungar áhyggjur af stöðunni í kjaraviðræðum
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kveðst hafa þungar áhyggjur af þeirri stöðu sem nú er komin í kjaraviðræðum á almenna vinnumarkaðnum.

SGS segir miður að Framsýn beri sambandið þungum sökum
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem SGS sendi frá sér í dag vegna málsins.

„Ágætis samningur“ innan seilingar en viðræðum samt slitið
Landssambands íslenskra verslunarmanna sleit í morgun kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins, þrátt fyrir að ekki hafi verið langt á milli félaganna.

Formaður LÍV segir af sér í kjölfar „verulegs meiningarmunar“ milli hans og VR
Guðbrandur Einarsson formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna hefur sagt af sér sem formaður sambandsins.

Ragnar segir forystu SA vera að stórskaða samfélagið að óþörfu
Verkfall meðal félagsmanna VR og Eflingar sem starfa á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum er áætlað á föstudag.

Vinnudeilurnar hangi eins og sverð Damóklesar yfir hagkerfinu
Næsta föstudag hefjast sólarhringsverkföll hjá hótelstarfsmönnum og rútubílstjórum sem eru félagsmenn Eflingar og VR. Aðgerðahópur Starfsgreinasambands Íslands leggja í dag drög að verkfallsaðgerðum um 20.000 félagsmanna og laust fyrir hádegisbilið í dag sleit samninganefnd iðnaðarmanna viðræðum við SA eftir að hafa setið fund hjá ríkissáttasemjara.

Formaður VR um Ölmu: „Fyrsta skrefið í að reyna frysta eða koma í veg fyrir frekari hækkanir“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR segir það ánægjuefni að komið sé leigufélag sem tryggi framfærslu- og búsetuöryggi en segir leiguverð of hátt.

Iðnaðarmenn slíta viðræðum
Samninganefnd iðnaðarmanna hafa slitið viðræðum við Samtök atvinnlífsins eftir fund hjá ríkissáttasemjara sem hófst klukkan 11.

Leggja drög að verkfallsaðgerðum 20.000 félagsmanna í dag
Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri SGS segir að það kæmi honum ekki á óvart ef félagsmenn myndu samþykkja allsherjarverkföll.

SGS teiknar upp næstu skref og aðgerðir eftir viðræðuslit
Starfsgreinasambandið (SGS) sleit í gær kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins (SA) eftir árangurslausan fund hjá ríkissáttasemjara. Aðgerðahópur SGS kemur saman í dag til að teikna upp aðgerðir.

Árlegri veislu Alþingis frestað vegna verkfalls
Árlegri veislu þingmanna hefur verið frestað vegna fyrirhugaðra verkfalla sem hefjast á föstudag. Upphaflega stóð til að halda veisluna næsta föstudag á Hótel Sögu.

SGS hefur slitið viðræðum við SA
Fundur í kjaradeilunni hófst klukkan 11 í húsakynnum sáttasemjara.