Lyf

Fyrrum Ólympíumeistari dæmdur í bann fyrir lyfjamisnotkun
Brasilíski stangarstökkvarinn og fyrrum Ólympíumeistarinn Thiago Braz hefur verið dæmdur í 16 mánaða keppnisbann fyrir lyfjamisnotkun.

Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna
Klínískur næringarfræðingur hefur áhyggjur af stóraukinni notkun þyngdarstjórnunarlyfja hér á landi. Hún þekkir dæmi um að fólk hljóti af þeim alvarlegar aukaverkanir á borð við garnalömun. Þá telur hún lækna sæta mikilli pressu frá skjólstæðingum sínum um að skrifa upp á lyfin.

Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu
Sérfræðilæknir í meðferð offitu hefur áhyggjur af því að nokkur hópur fólks noti þyngdarstjórnunarlyf án þess að þurfa þau. Með lyfjunum sé hins vegar loksins komin meðferð við offitu og mikil fjölgun notenda þeirra sé aðeins byrjunin á því sem koma skal.

Of þung en annars hraust á Ozempic
Íslendingum sem nota sykursýki- og þyngdarstjórnunarlyf hefur fjölgað um rúm sextíu prósent á aðeins sextán mánuðum. Notendur lyfjanna sem fréttastofa hefur rætt við segjast flestir eingöngu á lyfjunum til að léttast en eru hraustir að öðru leyti. Ung kona sem notaði Ozempic segir sligandi kostnað einu ástæðu þess að hún hætti á lyfinu.

Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund
Sprenging hefur orðið í sölu á megrunarlyfinu Ozempic hér á landi síðustu ár. Seldar pakkningar af lyfinu voru tuttugu og þrisvar sinnum fleiri á mánuði í fyrra en árið 2019. Forstjóri Lyfjastofnunar telur að minnsta kosti tíu þúsund manns noti lyfið á Íslandi.

Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum?
Notkun lyfjanna Ozempic og Wegovy, sem njóta sívaxandi vinsælda í baráttunni við aukakílóin, virðist draga verulega úr líkunum á hjartaáfalli ef marka má nýja rannsókn.

Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar
Lyfjafyrirtækið AstraZeneca hefur ákveðið að innkalla bóluefni sitt gegn Covid-19 vegna dvínandi eftirspurnar á heimsvísu. Fyrirtækið var áður hætt að framleiða og dreifa bóluefninu sem var eitt það fyrsta sem var þróað gegn veirunni skæðu.

Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“
„Þetta eru lyf sem fólk fær gjarnan eftir aðgerðir. Sjálfur var ég að skrifa allt að þrjátíu lyfseðla á viku þegar ég starfaði á bæklunarskurðdeild Landspítalans,“ segir Kjartan Þórsson læknir og stofnandi Prescriby.

Þekking á naloxone nefúða getur bjargað lífi
Undanfarin ár hefur verið vaxandi ópíóíðavandi hér á landi og jafnvel talað um faraldur í því sambandi. Afleiðing tengd misnotkun ópíóíða er m.a. aukning ótímabærra dauðsfalla, oft vegna ofskömmtunar þeirra. En það er til lyf sem getur auðveldlega bjargað lífi þeirra sem hafa ofskammtað og það er einfalt í notkun.

Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum
Freyja Jónsdóttir, lektor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, segir ákveðna hópa þurfa að fara varlega þegar þau ferðast erlendis í mikinn hita. Eldra fólk hafi til dæmis minni viðnámsþrótt í miklum hita. Það þurfi að passa upp á sólarvörn og drykki. Það eigi þó alls ekki að hætta að taka lyfin án samráðs við heilbrigðisstarfsmann.

Landa stórum sölusamningi
Alvotech tilkynnti í dag að nýgerður samningur í Bandaríkjunum um dreifingu og sölu á líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech í háum styrk með útskiptileika við Humira (adalimumab) sé við Quallent Pharmaceuticals, dótturfélag Cigna. Samningurinn sé gerður með samþykki Teva Pharmaceuticals, sem er samstarfsaðili Alvotech í Bandaríkjunum.

Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af starfsumhverfi lyfjafræðinga. Svo virðist sem uppákomur eins og vopnuð rán séu að færast í aukana.

Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki
Ólafur Adolfsson, eigandi Reykjavíkurapóteks, segir mennina sem frömdu vopnað rán í apótekinu í dag hafa tekið annan starfsmannanna hálstaki og heimtað að fá ávana- og fíknilyf. Hann segir það taka á starfsmennina að verða fyrir slíku ráni.

Heilbrigðistryggingafélag tekur lyf Alvotech upp á sína arma
Bandaríska heilbrigðistryggingafélagið Cigna hyggst bjóða upp á líftæknilyfjahliðstæður af gigtarlyfinu Humira án þess að viðskiptavinir þurfi að greiða sérstaklega fyrir lyfið. Alvotech, sem er býður upp á slíkt lyf, hefur hækkað um 3,7 prósent það sem af er degi.

Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum
Þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár og sérstaklega í kringum heimsfaraldur Covid. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir yfirlæknir bólusetninga segir ákveðnar bólusetningar hafa verið settar á bið þá vegna annarra forgangsverkefna. Enn sé verið að vinna það upp.

Skráning Oculis á Aðalmarkað má rekja til áhuga frá fjárfestum
Skráning augnlyfjaþróunarfélagsins Oculis í Kauphöll Íslands er viðbragð við áhuga frá innlendum fjárfestum og byggð á óskum hluthafa, segir framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu. Mögulega mun fyrirtækið byrja að afla tekna árið 2026. Hann segir að það sé unnið að því að auka veltu með hlutabréfin á Nasdaq. Hún hafi verið að aukast og við það verði verðmyndun vonandi betri en markaðurinn ráði verðinu þegar öllu sé á botninn hvolft.

Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun
Bréf í augnlyfjaþróunarfyrirtækisins Oculis Holding AG verða tekin til viðskipta í Kauphöllinni á morgun.

ADHD: Eru greiningar og lyfjamál í ólestri?
ADHD samtökin hafa ekki farið varhluta af háværri umræðu varðandi meintar ofgreiningar og ofskömmtun lyfja, sem mikið til byggist á órökstuddum fullyrðingum fagaðila og stríðsfyrirsögnum fréttamiðla. Jafnvel fullyrt að verið sé að ala upp kynslóðir amfetamínfíkla.

Um tvö hundruð fengið aðstoð við að minnka lyfjanotkun
Yfir tvö hundruð manns hafa fengið aðstoð hjá Reykjanesapóteki við að minnka lyfjaskammta, meðal annars á ávanabindandi lyfjum. Eigandi apóteksins segir mikilvægt að taka réttan skammt af lyfjum.

Féllu á lyfjaprófi skömmu áður en þau unnu til verðlauna á Ólympíuleikunum
23 sundkappar af 30 manna sundliði Kína féllu á lyfjaprófi sjö mánuðum fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2021. Lyfjaeftirlit Kína sagði ólöglega efnið hafa smitast til keppenda sem innbyrtu það óviljandi. Alþjóðalyfjaeftirlitið, WADA, samþykkti þá niðurstöðu eftir sjálfstæða rannsókn og aðhafðist ekki frekar.

Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum
Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur gert langtímasamning við „leiðandi innkaupaaðila lyfja í Bandaríkjunum“ um sölu og markaðssetningu á Simlandi (adalimumab-ryvk), fyrstu líftæknilyfjahliðstæðunni í háum styrk með útskiptanleika við Humira.

Landlæknir rannsaki ummæli formanns Geðlæknafélagsins
ADHD-samtökin segja að bregðist Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ekki við mikilli lengingu biðlista fullorðna eftir ADHD-greiningu geti biðtími fólks farið vel á annan áratug. Um fjögur þúsund einstaklingar bíði nú eftir greiningu. Einnig er óskað eftir því að landlæknir rannsaki fullyrðingar formanns Geðlæknafélags Íslands.

Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt Alvotech markaðsleyfi fyrir Selarsdi (ustekinumab-aekn), líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara. Gert er ráð fyrir að Selarsdi komi á markað í Bandaríkjunum um eða eftir 21. febrúar 2025 í samræmi við samkomulag við framleiðanda frumlyfsins Stelara

Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast
Samkeppniseftirlitið hefur fallist á beiðni Festi um að hefja sáttaviðræður um möguleg skilyrði vegna kaupa félagsins á öllu hlutafé Lyfju hf. Gert er ráð fyrir að viðræður hefjist í vikunni.

Oculis að klára milljarða hlutafjárútboð og áformar skráningu í Kauphöllina
Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, stofnað af tveimur íslenskum prófessorum, er núna á lokametrunum með að klára stóra hlutafjáraukningu frá meðal annars íslenskum fjárfestum og setur stefnuna í kjölfarið á skráningu í Kauphöllina hér heima. Félagið yrði þá tvískráð – því var fleytt á markað í Bandaríkjunum fyrir rétt rúmlega einu ári – en það er í dag með markaðsvirði upp á liðlega sextíu milljarða króna.

Lítill hópur heldur uppi sölunni í ÁTVR
Takmarkaður hópur fólks kaupir langmest af því áfengi sem selt er í Vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. En þetta er sama fólk og glímir við áfengisvanda.

Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu: Algeng, alvarleg og langvarandi fráhvörf frá þunglyndislyfjum
Næstum allir sem hætta á þunglyndislyfjum upplifa mikil fráhvarfseinkenni samkvæmt nýrri breskri rannsókn. Þá var stór hluti þátttakenda enn með fráhvarfseinkenni eftir tvö ár. Vanlíðan var meiri en fyrir töku lyfjanna hjá mörgum þeirra sem tóku þátt. Geðhjálp kallar eftir vitundarvakningu um áhrif slíkra lyfja

Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Alvotech fékk kaupauka að andvirði rúmlega þrjú hundruð milljóna króna á dögunum.

Skaðaminnkun, lækning, hroki og hleypidómar
Það var áhugavert að hlusta á útvarpsþátt um skaðaminnkun sunnudaginn 3. mars á RÚV og ekki síst viðtal við Árna Tómas Ragnarsson gigtarlækni, sem nú er greinilega „persona non grata“ hjá kollegum sínum og heilbrigðisyfirvöldum vegna lyfjagjafa hans til fólks með fíknivanda til skaðaminnkunar.

Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið
Festi hefur óskað eftir formlegum sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið um möguleg skilyrði vegna kaupa félagsins á Lyfju.