
Reykjavík

Mjög mikil vonbrigði með bankasöluna
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, kveðst hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með sölu ríkisins á Íslandsbanka. Hún segir að það sé óþolandi fyrir hana sem nýjan oddvita að þurfa að svara fyrir söluna.

Úr tvö hundruð starfsmönnum í þrjá
Tímamót urðu í faraldrinum í dag þegar sýnatökur heilsugæslunnar voru fluttar frá Suðurlandsbraut en starfsemin verður opnuð í Mjóddinni á morgun.

Sköpum pláss fyrir mannlíf
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í miðborginni síðustu ár, við Hverfisgötu, Hafnartorg og Austurhöfn og víðar.

Vilja hraða borgarlínu og skipuleggja lóðir fyrir tvö þúsund íbúðir á ári
Viðreisn í Reykjavík kynnti helstu stefnumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, kostnað við þau og útreikninga, á blaðamannafundi í dag.

Aukin lífsgæði og umhverfismál í forgrunni hjá Vinstri grænum í borginni
Vinstri græn í Reykjavík kynntu í gær kosningaáherslur sínar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Vinstri græn leggja áherslu á að auka lífsgæði borgarbúa, tryggja öllum öruggt heimili, heilbrigt umhverfi og tækifæri til að njóta lífsins í borginni í leik og starfi.

Vill borgarstjóri selja Félagsbústaði?
Borgarstjóri stærði sig að því á dögunum að Reykjavíkurborg hefði skilað 23 milljarða hagnaði á á síðasta ári. Þegar nánar er að gáð er staðan hins vegar allt önnur.

Náttúra Reykjavíkur í göngufæri
Græn svæði á borð við Laugarnestanga, Elliðaárdal, Vatnsendahvarf, Skerjafjörð og Öskjuhlíð eru einstök tækifæri fyrir borgarbúa til að vera í náttúrulegu umhverfi. Það er margsannað að náttúra bætir andlega og líkamlega heilsu fólks og lyftir upp nærliggjandi íbúabyggð.

Fossvogslaug verður staðsett á milli grunnskólanna tveggja
Fyrirhuguð sundlaug í Reykjavík sem gengið hefur undir nafninu Fossvogslaug verður staðsett á svæðinu á milli Fossvogsskóla og Snælandsskóla í Fossvogsdal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Bein útsending: Viðreisn kynnir kosningaáherslur í borginni
Viðreisn hefur boðað til kynningafundar á stefnu sinni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Fundurinn fer fram í garðinum hjá Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur oddvita flokksins í Reykjavík og hefst klukkan 15.

Velkomin frá Úkraínu
Í kjölfar innrásar í Úkraínu hafa yfir fjórar milljónir manna þurft að yfirgefa landið sitt, að stórum hluta konur og börn. Sjálfsagt er að Ísland, rétt eins og önnur evrópuríki, taki þátt í að veita þessu fólki alþjóðlega vernd og heimili.

Bein útsending: Ársfundur Orkuveitunnar
Ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur fer fram í dag milli klukkan 14 og 15:30. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er „Hluti af lausninni“ og verður hægt að fylgjast með honum í streymi í spilara að neðan.

Kallað út vegna elds í íþróttahúsi í Breiðholti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds innan í klæðingu íþróttahússins í Austurbergi í Breiðholti í Reykjavík skömmu eftir hádegi í dag.

Skepta heldur tónleika á Íslandi í sumar
Einn stærsti tónlistarmaður Bretlands, rapparinn Skepta, er væntanlegur til landsins til að halda sínu fyrstu sólótóleika á Íslandi. Hann er ein stærsta stjarna rappheimsins sem hefur haldið tónleika á Íslandi.

Silja Rós og Kusk á upphitunargleði RVK Feminist Film Festival
Laugardaginn 30. apríl mun RVK Feminist Film Festival bjóða til upphitunargleði á LOFT Hostel. Þar verður í boði markaður, tónlist, húðflúr og söfnun fyrir nýrri rannsókn.

Hverjir eru valkostirnir í vor?
Valið fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor er skýrt. Að kjósa annan flokk en Sjálfstæðisflokkinn er ávísun á að núverandi vinstri meirihluta haldi velli, eftir atvikum með einhverjum nýjum meðreiðarsveinum

Meirihlutinn heldur velli og Sjálfstæðisflokkurinn missir þrjá samkvæmt nýrri könnun
Meirihlutinn í Reykjavík heldur velli í nýrri könnun Fréttablaðsins sem Prósent framkvæmdi fyrir blaðið. Þeir flokkar sem mynda núverandi meirihluta – það er Samfylking, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn – fá 52,2 prósent og tólf af 23 borgarfulltrúum.

Þú átt 5.741.000 kr.
Já þú last þetta rétt. Sem Reykvíkingur átt þú tæpar sex milljónir króna. Þær eru samt ekkert í vasanum þínum eða heimilisbókaldinu, þó svo að það geti hentað mér að setja þetta svona fram til að ná athygli þinni. Ekkert frekar en að þú finnir fyrir skuldum Reykjavíkurborgar á eigin skinni, líkt og stjórnarmeðlimur SUS vildi meina í grein sinni á Vísi fyrr í vikunni.

Fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar eftir mikið vatnstjón: „Þetta lýsir því bara hvað aðstæður eru óviðunandi“
Tjón í húsnæði Listaháskóla Íslands í Þverholti virðist minna en á horfðist í fyrstu þegar mikill vatnsleki kom þar upp í gær. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að vinna að húsnæðismálum háskólans og flutning þess í Tollhúsið. Eektor segir það löngu tímabært og hlakkar til að glæða miðbæinn lífi aftur.

Ráðningarstyrkur Reykjavíkurborgar
Eftir að heimsfaraldurinn læsti klóm sínum í heimsbyggðina gripu stjórnvöld um allan heim til efnahagsaðgerða án fordæma. Sem við var að búast reyndust ólík úrræði misvel. Ein vinnumarkaðsaðgerða sem virkaði afskaplega vel voru ráðningarstyrkir Vinnumálastofnunar.

Sýnatakan færð af Suðurlandsbraut yfir í Mjóddina
Sýnataka vegna Covid-19 á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) mun færast af Suðurlandsbraut í Mjóddina á föstudag. Þar mun hún fara fram í anddyri húsnæðis heilsugæslunnar að Álfabakka 16.

Gert að greiða konu 3,5 milljónir vegna slyss í Sundhöll Reykjavíkur
Reykjavíkurborg hefur verið dæmd til að greiða konu 3.529.622 krónur í skaðabætur auk vaxta vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir þegar hún féll á sundlaugarbakka í Sundhöll Reykjavíkur.

Félagsbústaðir geta byggt 3000 íbúðir
Sósíalistar vilja að Félagsbústaðir byggi þrjú þúsund nýjar íbúðir sem allra fyrst.

Yfirlýsing vegna listaverksins Farangursheimild – Fyrsta hvíta móðirin í geimnum
Verkið Farangursheimild – Fyrsta hvíta móðirin í geimnum var afhjúpað þann 9. apríl sl. fyrir framan Marshallhúsið í Reykjavík. Verkið samanstendur annars vegar af geimflaug, skotpalli og skilti úr brotajárni; hinsvegar af bronsafsteypu af styttunni Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku eftir Ásmund Sveinsson frá árinu 1938.

Borgaryfirvöld samþykkja Kænugarð og Kýiv-torg skammt frá sendiráði Rússa
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi í morgun að nefna torgið á horni Garðastrætis og Túngötu Kænugarð. Til að koma til móts við óskir um notkun úkraínsks heitis höfuðborgarinnar mun það einnig verða kallað Kýiv-torg.

Ákærður fyrir að hafa skorið í sundur þríhöfða annars manns
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa skorið í sundur handleggsvöðva á karlmanni á fimmtugsaldri í Breiðholti haustið 2019.

Sjaldan býr einn þá tveir deila
Hópbúseta, þegar margir aðilar sem eru ekki endilega tengdir fjölskylduböndum deila heimili að einhverju eða öllu leyti, hefur marga kosti fram yfir hefðbundna einangraða búsetu. Hún auðveldar fólki að deila kostnaði og eykur möguleika á samvinnu og félagslegum tengslum.

Þetta er spurning um traust
Þegar öllu er á botninn hvolft, þá hljóta kosningar að snúast um traust. Hverjum treystum við til að fara með sameiginlegt vald og hugsa um sameiginlegar eignir okkar, og hverjum ekki?

Handtekinn vegna líkamsárásar og hótana
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók um miðnætti mann vegna líkamsárásar og þar sem hann hafi haft í hótunum við aðra í hverfi 110 í Reykjavík.

Foreldrar hafðir að fíflum
Í nýlegri frétt sagði móðir frá því þegar barni hennar var loks eftir langa bið boðið leikskólapláss í nýjum leikskóla í Reykjavík sem reyndist svo bókstaflega ekki vera til nema fundargerðum borgarinnar.

Sagði skilið við fjármálaheiminn til að gerast vínbóndi
Íslenskur doktor í stærðfræði ákvað að segja skilið við fjármálaheiminn, láta drauminn rætast og gerast vínbóndi í Sviss. Hann er nú á landinu að kynna vín sitt fyrir Íslendingum og býður öllum sem vilja að koma að smakka.