Vinnumarkaður

„Mátti segja hvað sem er um mig“
Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, segir fáar manneskjur hafa þurft að þola jafn ósvífnar atlögur að persónu sinni og hún. Hún hafi ekki átt neina aðra úrkosti nema að segja af sér eftir að trúverðugleiki hennar skaðaðist.

Hvað gerðist eiginlega í Eflingu?
„Margir starfsmenn Eflingar hafa leitað til okkar á síðustu dögum og lýst yfir áhyggjum, óöryggi og ótta. Þeir upplifa starfsöryggi sitt brostið og eru með sífelldar áhyggjur af því að fyrirvaralausar uppsagnir séu yfirvofandi eða séu jafnvel þegar orðnar.“

Afsögn Sólveigar Önnu kom Drífu í opna skjöldu
Drífa Snædal forseti ASÍ hefur ekki viljað tjáð sig um væringar innan Eflingar þar til nú. Hún segir í pistli að trúnaðarmönnum beri að tala fyrir máli starfsfólks.

Vinnan heldur áfram
Afsögn Sólveigar Önnu Jónsdóttur úr embætti formanns Eflingar kom mér eins og flestum öðrum á óvart. Sólveig Anna kom með krafti inn í verkalýðshreyfinguna. Hún var og er ötul baráttukona fyrir lægst launuðu hópa samfélagsins og átti ríkan þátt í að setja þeirra málefni á dagskrá síðustu kjarasamninga.

Vissu að þeim var líklega óheimilt að afhenda ekki ályktun trúnaðarmannanna
Lögfræðingur Alþýðusambands Íslands komst að þeirri niðurstöðu að Sólveigu Önnu Jónsdóttur, þáverandi formanni Eflingar, kynni að vera óheimilt að neita að afhenda Guðmundi J. Baldurssyni, stjórnarmanni í stjórn Eflingar, ályktun trúnaðarmanna félagsins.

Stöndum þriðju vaktina saman!
VR er þessa dagana að fara í gang með herferð um hugtakið þriðju vaktina og það andlega álag sem fylgir henni. En hvað er þriðja vaktin og af hverju er VR að vekja athygli á þessu?

Færri atvinnulausir og styttri vinnutími en í fyrra
Um 8.500 manns voru að meðaltali án atvinnu á þriðja ársfjórðungi þessa árs, samkvæmt tölum frá Hagstofu. Það jafngildir um 4% af heildarvinnuafli 16 til 74 ára. Á sama tíma í fyrra voru um 12.000 einstaklingar atvinnulausir, eða um 5,8%.

Segir starfsfólk Eflingar lokað inni í skrifstofuvirki og aftengt veruleika félagsmanna
Sólveig Anna Jónsdóttir segir starfsfólk Eflingar hafa þegið góð laun og haft allt til alls, „lokuð inní einhverskonar skrifstofuvirki, aftengd efnahagslegum veruleika þeirra sem greiddu félagsgjöldin“.

Leikarinn Þórir Sæmundsson: „Fyrsta síðan á Google setur mig fram sem eitthvað skrímsli“
Leikarinn Þórir Sæmundsson segist ekki hafa fengið vinnu í fjögur ár síðan hann var rekinn úr starfi frá Þjóðleikhúsinu, eftir að upp komst að hann hafði sent ungum stúlkum kynferðislegar myndir.

Engar hópuppsagnir í október
Annan mánuðinn í röð barst Vinnumálastofnun engin tilkynning um hópuppsögn í október.

Á von á því að Sólveig Anna segi af sér sem varaforseti ASÍ
Drífa Snædal, forseti ASÍ, reiknar með að Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, segi af sér sem annar varaforseti ASÍ í dag. Drífa segir að afsögn Sólveigar Önnu sem formaður Eflingar hafi komið sér á óvart. Þá reiknar hún með að varaformaður félagsins taki við sem formaður.

Mögulegt verkfall í miðri loðnuvertíð til umræðu á þingi SSÍ
Að sögn Valmundar Valmundarsonar, formanns Sjómannasambands Íslands, er lítil hreyfing á kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Verkfallsboðun verði meðal þess sem rætt verður á þingi sambandsins á fimmtudag og föstudag.

Sólin að setjast á stormasama, tíðindamikla, róttæka og herskáa formannstíð Sólveigar Önnu
Óhætt er að segja að formannstíð Sólveigar Önnu Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar í fyrradag, hafi verið viðburðarrík þótt hún hafi aðeins setið sem formaður í þrjú ár. Sólveig Anna boðaði herskáa og róttæka stéttabaráttu frá upphafi formannstíðar hennar, sem var bæði stormasöm og tíðindamikil.

Viðar fylgir Sólveigu og segir upp í dag
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, hyggst segja upp störfum í dag. Fylgir hann þar með Sólveigu Önnu Jónsdóttur, sem tilkynnti í gær að hún hefði sagt af sér sem formaður stéttarfélagsins.

„Fólk bara gefst upp“
Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni segir ríkja algjörlega ótækt ástand. Álagið hafi vaxið mikið undanfarin ár.

Forseti ASÍ segir markmið um kaupmáttaraukningu hafa náðst
Áhrif af styttingu vinnuvikunnar eru mun meiri hjá opinberum starfsmönnum en fólki á almennum vinnumarkaði samkvæmt skýrslu kjaratölfræðinefndar sem kynnt var í morgun. Laun kvenna hafa hækkað meira á yfirstandandi samningstíma en karla.

Atvinnuleysi í september 3,5 prósent
Atvinnuleysi á landinu í september síðastliðinn, árstíðaleiðrétt, mældist 3,5 prósent samkvæmt nýrri vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands.

Þegar karlmenn grípa fram í fyrir konum
Rannsóknir hafa sýnt að það er oftar gripið fram í fyrir konum þegar þær eru að tala, í samanburði við karlmenn.

9,5 prósent einstaklinga 16 til 24 ára hvorki í námi né vinnu
Um 9,5% einstaklinga á aldrinum 16 til 24 ára eru hvorki í námi né vinnu. Þetta er sama hlutfall og stóð utan menntakerfisins og vinnumarkaðarins árin 2014 og 2015 en fækkun varð í hópnum árin 2016 til 2018.

Flosi og Nóbelsverðlaunin í hagfræði
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins (SGS) skrifaði nýlega ágætis grein hér á Vísi og óskaði eftir vitrænni umræðu um hvernig mætti bæta hag landsmanna. Það er auðvelt að verða við þeirri bón.

Daggæsla á vinnustað
Það er skortur á úrræðum fyrir fjölskyldufólk í Reykjavík. Leikskólapláss eru af skornum skammti, biðlistar á frístundaheimili langir og dagforeldrum fer árlega fækkandi. Fjölskyldur flytja til annarra sveitarfélaga þar sem þjónusta er trygg og lífsgæði mælast betri.

Telur mansal falinn vanda á Íslandi
Þrettán tilfelli komu upp á síðasta ári þar sem grunur var um mansal, og tvö tilfelli þar sem um var að ræða smygl á fólki. Þetta kom fram í erindi teymisstjóra Bjarkarhlíðar á ráðstefnu félagsráðgjafa í dag. Hún telur að um sé að ræða falinn vanda og grunar að í raun séu mun fleiri tilfelli sem varða mansal.

Frídagar barna komi niður á jafnrétti og kjörum
Foreldri og atvinnurekandi segir launþega ekki eiga inni fyrir þeim dögum þar sem börn eru ekki í skóla vegna vetrarleyfis eða skipulagsdaga. Lítið samræmi sé milli skóla og innan sveitarfélaga um þær dagsetningar sem kemur niður á atvinnulífinu í heild.

„Hryllingssagnabeiðni“ ASÍ var hvatning um að skipta um stéttarfélag
Í tölvupósti sem Alþýðusamband Íslands (ASÍ) sendi á flugliða sem starfa hjá flugfélaginu Play voru þeir hvattir til að ganga í Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) og þeim heitið trúnaði sem vildu hafa samband við sambandið. „Það er alltaf velkomið að hafa samband við okkur persónulega, í síma eða tölvupósti,“ stóð í lok póstsins. Birgir Jónsson, forstjóri Play, hélt því fram í Silfrinu í dag að ASÍ hafi af fyrra bragði sent starfsmönnum hans tölvupósta þar sem væri óskað eftir „hryllingssögum“.

Fimm mýtur um launasamninga og góð ráð til að fá launahækkun
Flestum finnst erfitt að biðja um launahækkun. Reyndar finnst flestum tilhugsunin um að biðja um launahækkun erfið ein og sér! En hví ekki að reyna að semja um hærri laun, ef okkur svo sannarlega finnst við standa undir því sem starfsmenn?

Bauð sátt tveimur dögum áður en 167 milljóna dómsmál átti að hefjast
Stjórn Sorpu bauð Birni Halldórssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtæksins, sátt í máli sem hann höfðaði gegn fyrirtækinu tveimur dögum áður en aðalmeðferð þess, þar sem hann krafðist 167 milljóna í bætur fyrir ólöglega uppsögn, átti að hefjast.

Sorpa og Björn ná sáttum
Sorpa mun greiða Birni Halldórssoni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, laun í sex mánuði til viðbótar auk lögfræðikostnaðar sem hluti af sátt eftir að Björn höfðaði mál gegn Sorpu vegna uppsagnar sinnar á síðasta ári.

Leggja til verulega fækkun presta á landsbyggðinni
Tillaga um fækkun stöðugilda presta hjá Þjóðkirkjunni um 10,5 verður lögð fyrir kirkjuþing sem fram fer í um helgina og í byrjun næstu viku. Flest stöðugildin sem lagt er til að verði aflögð eru á landsbyggðinni. Samkvæmt tillögum verða stöðugildi presta á landinu þá alls 134,7 og fækkar þeim um 10,5.

Eru Íslendingar lélegir neytendur?
Verðlagseftirlit ASÍ og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um samkeppnis- og neytendamál í dag klukkan 8:30 til 10 á Grand Hótel.

Ísland með besta lífeyriskerfið í alþjóðlegum samanburði
Íslenska lífeyriskerfið er í efsta sæti í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu sem ráðgjafarfyrirtækið Mercer og samtökin CFA Institute standa að og birt var í morgun.