
Vinnumarkaður

Ætlar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Nýsköpunarráðherra ætlar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands um næstu áramót og finna nýjan farveg þeim verkefnum sem haldið verður áfram. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra tilkynnti þetta á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Boðað til fundar í deilu Eflingar og borgarinnar
Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar klukkan 13 á morgun.

Sölvi um kulnun: „Fólk er ekki að taka ábyrgð í einkalífinu“
Hvað er kulnun? Hverjir upplifa kulnun og hvernig er hægt að koma í veg fyrir hana? Sölvi Tryggvason hefur sterkar skoðanir á því.

Segir marga foreldra í þröngri stöðu gagnvart vinnuveitendum
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar hefur mestar áhyggjur af einstæðum foreldrum og foreldrum með lítið bakland vegna yfirstandandi verkfalls Eflingarstarfsfólks. Staðan sé einna verst í Breiðholti.

Foreldrar með börnin sín í vinnunni út af verkfalli
Foreldrar leikskólabarna um alla Reykjavík hafa misst úr vinnu, tekið börnin með sér í vinnunna eða leitað til foreldra eða annarra vandamanna til að bregðast við verkfalli Eflingar. Móðir leikskólabarns segir vikuna hafa verið mikið púsluspil til að láta allt ganga upp.

Það er ekki svo einfalt að komast út af örorku
Þegar ég loksins náði tökum á öllum þeim krónísku kvillum og sjálfsofnæmissjúkdómum sem höfðu stýrt lífi mínu og líðan á síðustu árum og áratugum, þá fór ég að huga að því að afþakka þann stuðning sem ég hafði fengið frá ríkinu í formi örorkubóta á síðustu árum.

„Óviðunandi að lögum sé ekki fylgt“
Það er óviðunandi að lögum um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja sé ekki fylgt segir forsætisráðherra.

Lykilfólki hjá Isavia sagt upp störfum
Flugvallarstjóra Reykjavíkurflugvallar, viðburðarstjóra og aðstoðarkonu forstjóra hjá Isavia var sagt upp störfum í dag. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við Vísi að fyrirtækið sé í skipulagsbreytingum.

Ekkert verður til úr engu
Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er forsenda velferðar. Fjölbreytt atvinnulíf skapar störf, verðmæti og tekjur sem eru grundvöllur þess að hægt er að reka öflugt velferðarkerfi á Íslandi.

Aldrei hafa fleiri nýtt bótaréttinn erlendis
Vinnumálastofnun gaf á síðasta ári út rúmlega 1.400 leyfi til atvinnuleitenda til að leita sér að vinnu erlendis á sama tíma og þeir fá atvinnuleysisbætur greiddar frá Íslandi.

Uppsagnir hjá Eimskip og TVG-Zimsen
Stöðugildum hjá Eimskip og dótturfélagi þess TVG-Zimsen fækkar um fjórtán í skipulagsbreytingum sem taka gildi í dag.

Greiða atkvæði um verkföll allt að 18 þúsund opinberra starfsmanna
Atkvæðagreiðsla þeirra aðildarfélaga BSRB, sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg, um verkfallsboðun hefst í dag og stendur fram á miðvikudag.

Vaxandi atvinnuleysi og raforkusala til útlanda í Víglínunni
Víglínan er í beinni útsendingu klukkan 17:40.

Iðnaðarráðherra myndi fagna því að orkuverð til stóriðju yrði opinbert
Iðnaðarráðherra segir að það myndi hjálpa ef allt væri upp á borðum við mat á stöðu Isal, þar með raforkuverðið.

Formaður SI segir ruðningsáhrif af lokun Isal verða gríðarleg
Formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði segir stöðuna hjá Isal grafalvarlega og óttast um hag starfsmannanna. Það yrði mikið högg fyrir þá og bæjarfélagið hætti fyrirtækið starfsemi. Formaður Samtaka iðnaðarins segir að lokun Isal myndi hafa gríðarleg áhrif á fjölmörg önnur fyrirtæki og starfsmenn þeirra.

Starfsfólk Isal í tvöföldu áfalli vegna mögulegrar lokunar og kjarasamninga
Starfsfólk Isal er slegið yfir fréttum af mögulegri lokun álversins í Straumsvík og segir áfallið tvöfalt þar sem eigendur hafi stoppað undirritun kjarasamninga.

Forstjóri Landsvirkjunar segir raforkuverð ekki aðalvandamál Isal
Forstjóri Landsvirkjunar segir verð á raforku til álversins í Straumsvík aðeins lítinn hluta af vandamálum fyrirtækisins. Raforkuverðið sé sanngjarnt en meginvandamálið sé lækkun á afurðaverði fyrirtækisins.

Mikið áfall fyrir efnahagslífið ef ISAL hættir starfsemi
Forstjóri ISAL segir það skýrast um mitt þetta ár hvort starfsemi fyrirtækisins verði lögð niður. ISAL búi við mun óhagkvæmari raforkuverðs samning við Landsvirkjun en önnur álver í landinu.

Boðar samninganefndir SA og starfsmanna ISAL á fund
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir starfsmanna ISAL – álversins í Straumsvík og Samtaka atvinnulífsins á fund næstkomandi föstudags í ljósi tíðinda morgunsins af mögulegri lokun álversins.

Fá ekki leyfi frá Rio Tinto til að undirrita nýjan kjarasamning
Reinhold Richter, aðaltrúnaðarmaður starfsmanna ISAL – álversins í Straumsvík, segir fréttir morgunsins af mögulegri lokun álversins koma mjög óvænt.

Segir aðalvanda álversins í Straumsvík liggja í of háu raforkuverði
Rannveig Rist, forstjóri ISAL – álversins í Straumsvík, segir viðræður Rio Tinto, eiganda álversins, um nýjan raforkusamning við Landsvirkjun nýhafnar. Það sé því of snemmt að segja til um árangurinn af þeim viðræðum.

Bankarnir: Hvað verður um störfin?
Þorvaldur Henningsson segir mikilvægt að bankarnir þjálfi starfsfólk í að sinna nýjum verkefnum því það er leið til að sporna við uppsögnum. Þorvaldur segir hér frá helstu niðurstöðum nýrrar rannsóknar um áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á störf í fjármálageiranum.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar: „Þetta er grafalvarlegt mál“
Rósa Guðbjartsdóttir bregst við fréttum að mögulegt sé að álverinu í Straumsvík verði lokað.

Skoða mögulega lokun álversins í Straumsvík
Rio Tinto ætlar að hefja sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins í Straumsvík (ISAL) svo meta megi rekstrarhæfi þess til framtíðar.

Könnun Samtaka iðnaðarins: 88 prósent svarenda ætla að grípa til hagræðinga á árinu
Niðurstöðurnar benda til þess að framhald verði á þeirri þróun sem þegar er hafin en launþegum í framleiðsluiðnaði hefur fækkað undanfarið.

SA hvetur fyrirtæki til að sýna starfsfólki skilning vegna fjarveru
Verkfallsaðgerðir Eflingar sem staðið gætu í tæpa þrjá sólarhringa hefjast í hádeginu í dag og munu hafa áhrif á þúsundir fjölskyldna á höfuðborgarsvæðinu. Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að sýna starfsfólki sínu tillitsemi vegna fjarveru.

Var sendur fótbrotinn úr landi eftir vinnuslys á Akureyri
Radenko Stanisic, bosnískur ríkisborgari sem kom hingað til lands í febrúar í fyrra til þess að starfa í byggingarvinnu, hefur sótt um gjafsókn til dómsmálaráðuneytisins vegna máls sem hann ætlar að höfða gegn fasteignafélaginu H-26 ehf. á Akureyri.

Telja Arion banka hafa brotið lög um hópuppsagnir
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hafa sent inn kvörtun til eftirlitsstofnunar EFTA vegna það sem samtökin telja vera brotalamir á framkvæmd hópuppsagna á Íslandi.

Deildu um höfrungahlaup á vinnumarkaði
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, ræddu kjarabaráttu félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg í Víglínunni.

Miklar líkur á nærri þriggja daga verkfalli
Miklar líkur eru á að tæplega þriggja daga verkfall Eflingar hefjist á þriðjudag. Ekkert hefur miðað í kjaraviðræðum Eflingar og borgarinnar. Borgarstjóri segist ekki hafa eins miklar áhyggjur af neinum kjarasamningum og samningnum við Eflingu, enda erfitt að verða við ýtrustu kröfum félagsins.