
Sveitarstjórnarmál

Sorpa bíður niðurstöðu Seltjarnarnesbæjar
Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu nema Seltjarnarnesbær hafa samþykkt að Sorpa taki eins milljarðs króna lán vegna viðbótarkostnaðar við gas-og jarðgerðarstöð.

Óttast ekki fjöldaúrsagnir úr Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, harmar að sveitastjórn Grýtubakkahrepps íhugi úrsögn úr sambandinu.

Fordæma vinnubrögð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og íhuga úrsögn
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps fordæmur vinnubrögð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga í tengslum við stuðning sambandsins við þingsályktunartillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sameiningu sveitarfélaga.

Stefnir í átök borgar og landsbyggðar
Samgöngumál, veggjöld, landbúnaðarmál, sameiningar sveitarfélaga. Stærstu mál nýhafins þings eru þekkt átakamál byggðapólitíkur hér á landi. Fréttablaðið ræddi við formenn fastanefnda Alþingis.

Ræddu ný drög að uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu
Drög að breyttu samkomulagi var sent á bæjarstjóra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi

Hvetur eigin samninganefnd til að hugsa viðræður upp á nýtt
Trúnaðarmannaráði stéttarfélagsins Sameykis er fullkomlega misboðið hvernig komið er fyrir yfirstandandi kjaraviðræðum félagsins við fulltrúa hins opinbera.

Styðja sameiningu sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga samþykkti á aukaþingi í dag að styðja þingsályktunartillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um sameiningu sveitarfélaga.

Sérstök regla um álag hækkar laun borgarfulltrúa verulega
Dæmi eru um að laun borgarfulltrúa í Reykjavík hafi hækkað um rúmlega 20 prósent á um sjö mánaða tímabili. Ástæða hækkana hrókeringar á embættum innan stjórnkerfisins sem og þóknanir vegna sérstakrar reglu um að seta í þremur fastanefndum veiti rétt á 200 þúsund króna álagsgreiðslu á mánuði.

Sameiningarmál verða mjög fyrirferðarmikil á aukaþingi
Á morgun fer fram sérstakt aukalandsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem fjallað verður um stefnumörkun stjórnvalda í málefnum sveitarfélaga. Formaður sambandsins á von á hreinskiptnum og góðum umræðum en segist skilja að skiptar skoðanir séu meðal sveitarstjórnarfólks um sameiningar.

Hugnast ekki þvinguð sameining
Hann vill að frekar verði horft til þeirrar samvinnu sem nú þegar sé á milli.

Telur frávísunarkröfu vanhugsað skref hjá Sambandi sveitarfélaga
Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) hefur farið fram á frávísun í máli sem Starfsgreinasambandið (SGS) vísaði til Félagsdóms.

Laun bæjar- og sveitarstjóra þurfa að endurspegla ábyrgð og álag
Sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga segir umræðuna um tekjur bæjar- og sveitarstjórnarfulltrúa ósanngjarna.

Háu laun bæjarstjóranna dæmigert mál sem geti sett Lífskjarasamninginn í uppnám
Formaður VR segir há laun bæjar- og sveitarstjóra vekja upp spurningu um yfirbyggingu sveitarfélaga.

Launamunur æðstu stjórnenda sveitarfélaga og annarra starfsmanna óréttlátur
Formaður BSRB segist vongóð um að umræðan skili sér í meira launaréttlæti innan sveitastjórna.

Sveitarstjórnarmenn frekir á fóðrum
Bæjarstjórinn í Garðabæ á talsvert betra kaupi en kollegi hans í London.

Íbúar eigi að ráða sameiningu
Oddvitar fimm fámennustu sveitarfélaga landsins eru á einu máli um að hugsanleg ákvörðun um sameiningu sveitarfélaga eigi að vera í höndum íbúanna. Í þessum sveitarfélögum er fjöldi íbúa 40 til 74.

Telur að lögbundinn lágmarksíbúafjöldi geti leitt til verri þjónustu
Sveitarstjóra Grýtubakkahrepps líst illa á tillögur um að lögbundinn lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga miðist við þúsund. Hann telur að með því muni þjónusta í mörgum sveitarfélögum versna, þvert á það sem lagt er upp með í tillögum stjórnvalda.

Setur spurningarmerki við hvort tillögur um lágmarksíbúafjölda muni njóta stuðnings þingsins
Prófessor í stjórnmálafræði telur óvíst hvort þingsályktunartillaga sem kveður á um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga muni njóta stuðnings á Alþingi. Slíkar tillögur hafi í gegnum tíðina ekki notið stuðnings.

„Okkur hugnast engan veginn að það sé miðað við hausatölu“
Skiptar skoðanir eru meðal sveitarstjórnamanna um mikilvægi þess að sameina sveitarfélög. Drög að þingsályktunartillögu sem meðal annars felur í sér að lögbundinn lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga miðist við þúsund íbúa var kynnt í gær.

Viðbúið að skiptar skoðanir verði um sameiningu sveitarfélaga
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga telur það jákvætt skref að lögbinda lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga.

Þingmaður Miðflokks telur rangt að setja ramma um lágmarksíbúafjölda
Þingmaður Miðflokksins telur áætlanir ráðherra um að þvinga smærri sveitarfélög til sameiningar séu of afdráttarlausar.

Vilja fækka sveitarfélögum um 40 á sjö árum
Sett er fram tillaga um að lágmarksíbúafjöldi verði 250 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2022, en 1.000 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2026.

Vinna að því að kortleggja eignarhald á jörðum
Ríkisstjórnin vinnur að því að kortleggja eignarhald á jörðum hér á landi og er það liður í stefnumótun stjórnvalda. Þetta segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra

Lágmarksstærð sveitarfélaga verði lögfest við þúsund íbúa
Nýjar tillögur formanns Framsóknarflokksins um eflingu sveitarstjórnarstigsins fela í sér að lágmarksstærð sveitarfélaga verði sett á laggirnar, verður miðað við þúsund íbúa. Formaður Sambands sveitarfélaga segir mikilvægt að sveitarfélögum verði gert kleift að sinna lögbundnum hlutverkum sínum.

Engin búseta á einni af hverjum tíu jörðum í Þingeyjarsveit
Sveitarstjórnarmenn frá þrettán sveitarfélögum innan Eyþings sátu fund ríkistjórnarinnar í Mývatnssveit í gær.

Bregðist sveitarfélögin ekki við er hætta á að leikskólakennarar fari yfir á önnur skólastig
Formaður félags leikskólakennara hefur áhyggjur af því að leikskólakennarar flytji sig yfir á önnur skólastig vegna ólíkra starfsaðstæðna og vinnufyrirkomulags þegar lög um leyfisbréf þvert á skólastig taka gildi

Kynnir tillögu um sveitarfélög
Drög að þingsályktunartillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga voru sett inn í samráðsgátt stjórnvalda í gær. Drögin byggja á grænbók um málefni sveitarfélaga sem kynnt var síðastliðið vor.

Ætlar að þrýsta á ráðherra í sameiningarmálum og snjómokstri
Árlegur sumarfundur ríkisstjórnarinnar stendur nú yfir í Mývatnssveit. Eftir hádegi verður fundað með sveitarstjórnum á svæðinu þar sem þeim gefst tækifæri á vekja athygli á lykilmálum.

Stærri og sterkari sveitarfélög
Sveitarfélögin gegna þýðingarmiklu hlutverki fyrir stjórnskipan landsins og lýðræði. Þau eru ein elsta skipulagseining landsins. Fyrstu rituðu heimildirnar um hreppa er að finna í Grágás, lögbók Íslendinga frá 12. öld, en þar er talað um að í löghreppi skuli vera 20 bændur eða fleiri. Nýrri skipan var komið á með tilskipun frá Kristjáni IX. Danakonungi 4. maí 1872 en fyrstu sveitarstjórnarlögin voru sett árið 1905.

Yfirgnæfandi stuðningur við frekari hömlur á jarðakaup
Mikill stuðningur er við að stjórnvöld setji frekari skorður við jarðakaupum erlendra aðila samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir Fréttablaðið. Þannig segjast tæp 84 prósent mjög eða frekar sammála frekari skorðum en aðeins fimm prósent eru því ósammála. Andstaðan við jarðakaup eykst með aldri.