Everest

Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki
Aðeins reynt fjallgöngufólk fengi leyfi til þess að klífa Everest, hæsta fjalls heims, samkvæmt lagafrumvarpi sem er til meðferðar í Nepal. Frumvarpinu er ætlað að draga úr umferð um fjallið og bæta öryggi göngufólks.

Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu
Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu um það hvort fjallagarparnir Andrew Comyn Irvine og George Mallory hafi náð að toppa Everest, hæsta fjall heims, fyrstir í sögunni.

Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa
Þúsundir göngugarpa hafa klifið Everest, hæsta fjall jarðar, frá því að toppnum var fyrst náð árið 1953. Einhverjir þeirra hafa hins vegar skilið eftir sig fleira en bara fótsporin. Nepölsk yfirvöld áætla að það taki mörg ár að fjarlægja rusl frá tjaldbúðum sem þau telja á bilinu 40-50 tonn.

Sló eigið met á Everest
Nepalski Sherpinn Kami Rita sló heimsmet í gær þegar þegar hann komst á topp hæsta fjalls í heimi, Everest, í tuttugasta og níunda sinn.

Everest-farar skikkaðir til að hirða eftir sig skítinn og safna í poka
Óhemjumikið magn sorps og úrgangs hefur safnast saman á Everest síðustu ár og áratugi, samfara auknum ágangi klifurgarpa á fjallið. Nú er svo komið að yfirvöld á svæðinu hafa fengið nóg og verða menn héðan í frá skikkaðir til að hirða upp eftir sig skítinn.

Klifu fjórtán hæstu tinda heims á þremur mánuðum
Norski fjallgöngugarpurinn Kristin Harila hefur sett heimsmet með því að klífa á tinda þeirra fjórtán fjalla heims sem eru hærri en átta kílómetrar. Þetta gerði hún með Tenjen Sherpa og á einungis þremur mánuðum og einum degi eða 92 dögum.

Sló met yfir fjölda ferða á topp Everest
Nepalski sjerpinn Kami Rita hefur slegið met yfir fjölda ferða á topp Everest, hæsta fjall heims. Hann komst á topp Everest í 27. sinn fyrr í dag, þremur dögum eftir að annar sjerpi, Pasang Dawa, hafði jafnað met hans.

Grunnbúðir Everest færðar vegna hverfandi jökuls
Yfirvöld í Nepal hafa hafið undirbúning á tilfærslu grunnbúðanna við Everestfjall. Að sögn yfirvalda er það vegna þess að búðirnar eru orðnar hættulegar vegna áhrifa loftslagsbreytinga og ágangs manna á svæðinu.

Bætti sitt eigið met með 26. ferðinni
Sjerpinn Kami Rita bætti sitt eigið heimsmet í morgun þegar hann kleif Mount Everest í 26. skiptið. Rita er 52 ára gamall og fór fyrst upp á toppinn árið 1994.

Aftur með veiruna eftir að hafa smitast á Everest
Heimir Fannar Hallgrímsson, lögfræðingur og fasteignasali sem kleif Everest með félaga sínum í fyrra, er kominn með kórónuveiruna – sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Heimir er smitaður í annað sinn. Hann var í hlíðum Everest þegar hann sýktist í fyrra skiptið og aðstæður í einangruninni nú þess vegna nokkuð frábrugðnar því sem áður var.

„Ég hélt að þetta væri búið hjá mér“
“Ég hélt þetta væri búið hjá mér. Ég sá svipinn hjá Heimi og Ank og ég sagði að þetta væri mjög slæmt,“ segir Everestfarinn og göngugarpurinn Sigurður Barni Sveinsson í hlaðvarpinu 24/7 með Begga Ólafs.

Íslendingur á gjörgæslu eftir Covid-smit á Everest
Íslensk-kúbverski fjallgöngumaðurinn Yandy Nunez Martinez, sem reyndi að klífa að toppi Everest í síðasta mánuði, er nú á gjörgæslu í Katmandú í Nepal eftir að hafa fengið blóðtappa í lungu ofan í Covid-19 smit. Eiginkona hans segir hann heppinn að vera á lífi en hann er nú á batavegi.

Að ganga fram hjá nýdánum klifrurum breytti ímyndinni af Everest
Sigurður B. Sveinsson og Heimir Hallgrímsson, sem klifu Everest í maí, segja upplifunina við það að ná á toppinn ekki hafa verið eins og þeir ímynduðu sér. Toppur fjallsins hafi verið skrítinn staður til að vera á.

Hugsuðu til langveikra barna þegar þeir klifu toppinn með Covid-19
Tveir Íslendingar sem klifu topp Everest með Covid-19 fengu aukakraft þegar þeir hugsuðu til langveikra barna og hvað þau þyrftu að þola. Þetta segir framkvæmdastjóri Umhyggju en ferðin er til styrktar félaginu. Hún segir þá hafa lent í ótrúlegum hrakningum en sigrast á hverri raun.

Voru Covid-smitaðir á toppi Everest
Sigurður B. Sveinsson og Heimir F. Hallgrímsson, íslensku fjallagarparnir sem náðu á topp Everest um síðustu helgi, greindust með Covid-19 í Nepal gær. Þeir byrjuðu að finna fyrir einkennum í efstu búðum Everest, áður en þeir komust á toppinn, og eru nú í einangrun í grunnbúðum Everest.

Komnir niður í aðrar búðir Everest
Fjallgöngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson eru komnir í aðrar búðir á Everest-fjalli, sem eru í 6.405 metra hæð yfir sjávarmáli. Þeir náðu toppi fjallsins í gær og eru á niðurleið.

„Pínu með í maganum“ að fylgjast með háskaförinni
Fjallgöngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson komust á topp Everest-fjalls í gærkvöldi. Félagarnir hafa safnað áheitum fyrir Umhyggju en framkvæmdastjóri félagsins segist oft hafa verið hrædd um þá á ferðalaginu, sem ekki gekk áfallalaust fyrir sig.

Heimir og Sigurður náðu toppi Everest-fjalls
Fjallgöngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson hafa náð toppi Mount Everest, hæsta fjalls í heimi.

Láta reyna á fjórða hnéð og halda á topp Everest
Klukkan 19:15 að íslenskum tíma leggja fjallgöngukapparnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson af stað úr grunnbúðum Mount Everest. Stefnan er sett á tindinn þótt óvissa sé um ástandið á einu hnéi af fjórum.

Íslensku garparnir stefna á tind Everest í kvöld
Íslensku göngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson hyggjast reyna að klífa tind Everest-fjalls í kvöld.

Göngumenn létust á Everest-fjalli
Tveir fjallgöngumenn örmögnuðust og létust á Everest-fjalli í gær. Þetta eru fyrstu dauðsföllin á fjallinu á göngutímabilinu í vor. Metfjöldi göngumanna hefur fengið leyfi til að klífa fjallið á þessu tímabili.

Skilja að fjallgöngumenn á Everest vegna faraldursins
Kínversk yfirvöld ætla að láta koma upp línu til að koma í veg fyrir að fjallgöngumenn sem ganga á Everest-fjall frá Tíbet annars vegar og Nepal hins vegar komist í snertingu hver við aðra. Kórónuveirusmit hafa komið upp á meðal göngumanna í grunnbúðum í Nepal að undanförnu.

Hvergi bangnir þrátt fyrir faraldur í grunnbúðum
Nokkur fjöldi fjallagarpa hefur þurft að hætta við að ganga á Everest-fjall síðustu daga vegna útbreiðslu kórónuveirunnar í grunnbúðum. Íslendingar á svæðinu segjast gæta vel að sóttvörnum en að faraldurinn hafi ekki haft mikil áhrif á þeirra leiðangur.

Fjallgöngumenn fá aftur að klífa Everest
Nokkur hundruð fjallgöngumanna munu leggja leið sína að Everest-fjalli í Nepal í næsta mánuði, en fjallinu hefur verið lokað síðasta árið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Settir í sex ára bann eftir að hafa þóst sigra Everest
Nepölsk yfirvöld hafa bannað tveimur indverskum fjallgöngumönnum og leiðangursstjóra þeirra að stunda fjallamennsku í landinu í sex ár. Ákvörðunin kemur í kjölfar rannsóknar þar sem í ljós kom að þau hafi logið því til að hafa klifið Everest, hæsta fjall heims, árið 2016.

Eftir ár áfalla ákvað Heimir að fara á Everest og svona er undirbúningurinn
Heimir Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson eru að undirbúa sig fyrir að klífa hæsta tind veraldar Everest.

Opinber hæð Everest hækkar um nærri metra
Kínversk og nepölsk yfirvöld hafa náð samkomulagi um opinbera hæð Everest, hæsta fjalls í heimi. Opinber hæð fjallsins er nú 8.848,86 metrar.

Ná loks saman um opinbera hæð Everest
Stjórnvöld í Kína og Nepal hafa lengi verið ósammála um hæð Everest-fjalls, hæsta fjalls heims, sem er að finna á landamærum ríkjanna. Samkomulag hefur hins vegar nú náðst milli ríkjanna um opinbera hæð fjallsins.

Loka Everest-fjalli vegna kórónuveirunnar
Yfirvöld í Nepal hafa ákveðið að loka Everest-fjalli og fleiri tindum fyrir fjallgöngumönnum á komandi tímabili af ótta við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Sjerpar deila á áform um að hreinsa til á Everest-tindi
Nepölsk stjórnvöld ætla að hreinsa um 35 tonn af rusli af Everest og fleiri Himalajafjöllum og nota til þess herinn. Sjerpar telja að frekar ætti að treysta þeim fyrir verkinu.