Fíkn

Sjö ára fangelsi fyrir eitt mesta fíkniefnasmygl Íslandssögunnar
Þjóðverjinn Heinz Bernhard Sommer og Rúmeninn Victor Sorin Epifanov hafa verið dæmdir í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir smygl á tæpum fjörutíu kílóum á amfetamíni og fimm kílóum af kókaíni.

Tvö í fangelsi fyrir kókaínsmygl
Hollenskur karlmaður og spænsk kona hafa verið dæmd í fangelsi fyrir kókaínsmygl.

Erfitt að halda uppi löggæslu í fíkniefnamálum sökum álags
Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á rúmlega 63 kíló af hörðum fíkniefnum í fyrra, rúmlega fjórfalt meira en árið á undan. Lögreglustjóri segir embættið vera í vandræðum með að halda uppi löggæslu í málaflokknum. Álag á lögreglumönnum sé gríðarlegt.

Tíu mánaða fangelsi fyrir innflutning á 450 grömmum af kókaíni innvortis
Ítölsk kona og karlmaður frá Portúgal voru dæmd í átta mánaða fangelsi annars vegar og tíu mánaða fangelsi hins vegar í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir innflutning á kókaíni.

Lögregla heldur fjórum í varðhaldi en sleppir tveimur
Fjórir karlmenn, sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklu sakamáli sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar: Krafist að lágmarki átta ára fangelsis yfir ungum íslenskum karlmönnum
Saksóknari í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar fer fram á að lágmarki átta ára fangelsi yfir þremur ungum karlmönnum sem ákærðir eru fyrir stórfelldan innflutning á kókaíni. Verjendur mannanna þriggja krefjast vægrar refsingar vegna samstarfsvilja og ungs aldurs.

Að minnsta kosti þrír hafa kært gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Landsréttar
Að minnsta kosti þrír sexmenningana sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær hafa kært úrskurðinn til Landsréttar. Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti.

Aðalmeðferð í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar
Þrír eru ákærðir í málinu fyrir að hafa reynt að smygla sextán kílóum af sterku kókaíni til landsins í maí í fyrra.

Hafa áhyggjur af pennum með ofskynjunarlyfi sem eru nýjung á fíkniefnamarkaði
Svokallaðir DMT pennar sem innihalda ofskynjunarlyf eru nýjung á íslenskum fíkniefnamarkaði og ganga kaupum og sölum á netinu.

Rannsaka meint brot tveggja lyfjafræðinga
Landlæknir, Lyfjastofnun og lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsaka öll meint brot tveggja lyfjafræðinga. Eru þeir grunaðir um umfangsmikið lyfjamisferli sem varðar sölu lyfseðilsskyldra lyfja.

Fíknistríðið
Fíknistríðið (e. War on Drugs) er mér hulin ráðgáta. Þetta er eftir minni bestu vitneskju lengsta stríð sem mannkynið hefur háð og ég geri ráð fyrir að þetta sé stríð sem við munum tapa ef við skiptum ekki um hernaðaráætlun.

Bræður fengu fjögurra og fimm ára fangelsi fyrir umfangsmikið kókaínsmygl
Georgian-Alian Sarban og Sorin Sarban, bræður frá Rúmeníu, hafa verið dæmdir í fjögurra og fimm ára fangelsi fyrir innflutning á fimm og hálfu kílói af kókaíni í september síðastliðnum. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Fleiri á bráðamóttöku vegna líkamsárása en flugeldaslysa
Fleiri leituðu á bráðamóttöku vegna líkamsárása en vegna flugeldaslysa á nýársnótt. Bráðalæknir segir þurfa meiriháttar kerfisbreytingu í rekstri Landspítalans til að bæta úr því ástandi sem ríki á bráðamóttökunni.

Stór hluti þeirra sem leitað hafa til Bjarkarhlíðar glíma við fíknivanda
Frá og með áramótum bætist Rótin, félag kvenna með áfengis- og fíknivanda, við þá grasrótarhópa sem sinnt hafa ráðgjöf í Bjarkarhlíð.

Handtekin eftir að kókaín fannst í smábarni
Foreldrar barns sem er um eins árs gamalt voru handteknir á jóladag eftir að kókaín fannst í blóði barnsins, samkvæmt heimildum fréttastofu. Barnið hafði verið flutt í alvarlegu ástandi á spítala.

Margir fegnir að fá loksins að komast inn á Vog um jólin
Á sjöunda hundrað manns bíða eftir að komast í meðferð á Vogi og vantar stofnunina um 200 milljónir til að stytta þann lista.

Ferðafélaginn slapp ekki í Landsrétti og fékk fimm ár
Jerzy Wlodzimierz Lubaszka var í Landsrétti í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot við annan mann í október 2017. Um var að ræða smygl á 11,5 lítrum af amfetamínbasa með Norrænu.

Spænsk kona tekin með kókaín í Leifsstöð: „Þetta er algjör sprenging“
Sjö eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum í sjö aðskildum málum fyrir smygl á hörðum fíkniefnum til landsins. Embættið hefur aldrei lagt hald á eins mikið af sterkum efnum og í ár, eða 63 kíló.

2,7 milljóna króna sekt fyrir brot undir stýri
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 2.689.000 krónur í sekt innan fjögurra vikna ella sitja í fangelsi í 68 daga. Maðurinn hefur ítrekað gerst brotlegur á lögum fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.

Leynilegar greiðslur í Heiðmörk, rafmagni stolið og gjaldeyrir keyptur fyrir hátt í fimmtíu milljónir króna
Fimm karlmenn frá Litháen hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir kannabisræktun, sölu á efnum og peningaþvætti á Suðurlandi. Tveir mannanna eru bræður en mennirnir fá allt frá sex til fimmtán mánaða fangelsi fyrir brot sín. Þrír mánuðir eru óskilorðsbundnir í öllum tilfellum.

Erfitt að horfa upp á fangana í neyslu Spice
Kallað var til fundar fangelsismálayfirvalda og Landlæknis um mikla neyslu Spice í fangelsum landsins í vikunni.

Fleiri grunnskólabörn tekin með fíkniefnið Spice
Neysla grunnskólabarna á fíkniefninu Spice er mun meiri en áður var talið. Þó nokkur mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Vilja skaðaminnkun á sérgang á Litla-Hrauni
Afstaða, félag fanga, leggur til að sérstakur skaðaminnkunargangur verði á Litla-Hrauni. Félagið segir þá sem neyta vímuefna í flestum tilvikum vera sjúklinga en ekki afbrotamenn og því viðfangsefni heilbrigðiskerfisins.

Fimmtugar hollenskar konur neita sök í kókaínmáli
Tvær rúmlega fimmtugar hollenskar konur neita sök í máli héraðssaksóknara á hendur þeim fyrir innflutning á rúmlega kílói af kókaíni til landsins þann 29. ágúst síðastliðinn. Konurnar eru par og voru með stóran hluta efnisins innvortis.

Enn einu sinni undir áhrifum við akstur en nú á vespu
Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt eftir að hafa verið stöðvuð endurtekið án réttinda eða undir áhrifum við akstur.

Skaðaminnkun Frú Ragnheiðar bergmálar í bíó
Skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður kemur við örsögu í Bergmáli eftir Rúnar Rúnarsson. Atriðið snart aðstandendur myndarinnar svo djúpt að þau ákváðu að styrkja sprautubílinn góða með sérstakri sýningu í Háskólabíói annað kvöld.

Náðist með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð
Íslenskur karlmaður er nú í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa reynt að smygla tæplega tveimur kílóum af kókaíni til landsins fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt á fimmta tug kílóa af sterkum fíkniefnum það sem af er ári.

Tuttugu mánuðir í fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning
Pólskur karlmaður hefur verið dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfsölu- og lyfjalagabrot. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir innflutning á 900 millilítrum af amfetamínbasa, 95 steratengdum töflum og 120 millilítra af steravökva.

Sjö hundruð bíða meðferðar á Vogi
Síðustu tvö ár hafa um og yfir sjö hundruð manns verið á biðlista eftir meðferð á Vogi og þurft að bíða í allt að hálft ár. Þó greiðir SÁÁ um tvö hundruð milljónir á ári til að geta veitt hundruðum meðferð sem ríkið greiðir ekki með.

Telja að fíkniefnið Spice sé í meiri dreifingu en áður hefur verið talið
Rannsóknarlögreglumaður óttast að fíkniefnið Spice sé í meiri dreifingu en áður hefur verið talið. Efnið sé stórhættulegt og meðal annars valdið dauða. Hann segir áhyggjuefni að efnið hafi fundist í meðförum unglinga nýverið.