
Verslun

Einar hættir með Grillbúðina
Einar Long, sem rekið hefur Grillbúðina um árabil, hefur ákveðið að setjast í helgan stein. Húsasmiðjan tekur við vörumerkjunum sem seld hafa verið í Grillbúðinni um 17 ára skeið.

Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli
Stefnt er að því að reisa fjölda íbúða, matvöruverslun og fleira í móa skammt frá Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Framkvæmdastjóri verkefnisins segir það bæta þjónustustig flugvallarins til muna.

Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin
Lögregla var kölluð út til verslunar Krónunnar í Skeifunni um klukkan fjögur síðdegis eftir að maður hafði slegið til starfsmanns verslunarinnar sem meinaði honum aðgang að búðinni, auk þess að hafa bitið annan viðskiptavin.

Útimarkaðurinn í Mosó hættir
Ákveðið hefur verið að útimarkaði Mosskóga í Mosfellsdal, þar sem hægt hefur verið að kaupa varning frá ræktendum og framleiðendum í nágrenninu, verði hætt nú í sumar.

Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda
Aðfararnótt mánudags gekk grímuklæddur maður inn Njálsgötuna, upp að Skólavörðustíg 21 og stillti sér upp fyrir framan nýlenduvöruverslunina Korakmarket. Þar skaut hann með reglubundnum hætti gat á hverja einustu rúðu. Þrjátíu að tölu.

Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur innsiglað skemmtistaðinn Exit við Ingólfstorg. Fyrr í dag var skemmtistaðurinn B5 innsiglaður en þeir eru báðir í eigu Sverris Einars Eiríkssonar. Þá hefur húsnæði Nýju vínbúðarinnar, sem er í eigu Sverris Einars, einnig verið innsiglað.

Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum
Hæstiréttur hefur fallist á beiðni áfengisinnflutningsfyrirtækisins Dista ehf. um áfrýjunarleyfi í máli þess á hendur ÁTVR. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að ÁTVR hafi mátt taka tvær tegundir af bjór úr hillum vegna dræmrar framlegðar af sölu þeirra.

Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti
Formaður Starfsgreinasambandsins segir Seðlabankann ekki geta annað en lækkað vexti um að minnsta kosti hálft prósentustig nú þegar verðbólga mælist sex prósent. Verkalýðshreyfingin hafi farið að tilmælum bankans um hógværa kjarasamninga og nú væri komið að Seðlabankanum.

Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí
Unnið er að því að fá nýja rekstraraðilar til að taka við rekstri Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg. Stefnt er á að opna verslunina aftur þann 15. maí. Það kemur fram í tilkynningu í glugga verslunarinnar í dag.

Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“
Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, hefur beðist afsökunar á að hafa kallað manninn sem braut allar rúður verslunar verslunar Fiskikóngsins á Sogavegi í Reykjavík á dögunum „fífl“. Hann birtir afsökunarbeiðnina á samfélagsmiðlum og í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nú ónefnda ráðherra í ríkisstjórn vera „fífl“.

Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar
Tæplega helmingi Íslendinga finnst stundum í lagi að kaupa falsaðar vörur og eftirlíkingar. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu fyrir Hugverkastofu. Níu prósent landsmanna hafa keypt falsanir eða eftirlíkingar síðastliðna 12 mánuði, mest á erlendum vefsíðum. Karlar kaupa mest falsaða merkjavöru og íþróttaföt en konur gleraugu og skartgripi.

Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður
Húrra Reykjavík mun opna nýja fataverslun í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor, í sama rými og Arion banki var áður. Verslunin mun þar bjóða upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir gesti á leið sinni úr landi.

Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri
Magni Reynir Magnússon kaupmaður lést á Landspítalanum 16. apríl á 89. aldursári. Magni fæddist í Reykavík 5. nóvember 1935 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur.

Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi
Karlmaður sem gekk berserksgang við verslun Fiskikóngsins við Sogaveg upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi þarf að komast undir læknishendur og í viðeigandi úrræði. Lögregla hefur margoft haft afskipti af honum í gegnum tíðina.

Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg
Allar rúður voru brotnar í Fiskikónginum á Sogavegi í gærkvöldi. Frá þessu greinir Kristján Berg á Facebook-síðu sinni. Hann segir seka í haldi lögreglu.

Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ
Benedikt S. Benediktsson lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu og mun hann hefja störf 1. september næstkomandi. Hann tekur við stöðunni af Andrési Magnússyni.

76 ára sögu Þorsteins Bergmanns lokið
Verslun Þorsteins Bergmanns við Hraunbæ í Árbænum hefur verið lokað. Verslunin hafði verið rekin þar síðan árið 1980 en fyrsta verslun Þorsteins Bergmanns var opnuð árið 1947.

Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar
Verslunarrisinn Amazon hefur ákveðið að hætta notkun tæknilausnar í verslunum sínum, sem gerði viðskiptavinum kleift að taka hluti úr hillunum og einfaldlega labba út. Lausnin er sögð byggð á vinnu um eitt þúsund indverskra láglaunaverkamanna í stað gervigreindar.

Lítill hópur heldur uppi sölunni í ÁTVR
Takmarkaður hópur fólks kaupir langmest af því áfengi sem selt er í Vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. En þetta er sama fólk og glímir við áfengisvanda.

Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna
VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda segja Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra enn í lykilstöðu til að bjarga hag neytenda, launþega og verslunar í landinu. Hún geti beitt sér fyrir því að nýsamþykkt búvörulög verði felld úr gildi.

Lögregla og ráðherrar hunsa mál forvarnasamtaka
Þolinmæði Árna Guðmundssonar er á þrotum en honum verður lítt ágengt í baráttu sinni gegn ólöglegum netverslunum sem höndla með áfengi.

Gerum skiptistöðina í Mjódd betri
Steinsnar frá mínu æskuheimili er stærsta stætóskiptistöð höfuðborgarsvæðisins, Mjóddin. Lengst af rak Strætó bs. skiptistöðina en árið 2015 tók Reykjavíkurborg, sem eigandi mannvirkisins, við rekstrinum. Síðan þá hefur skiptistöðin hægt og sígandi drabbast niður.

Kallar eftir meiri metnaði í Mjódd: Svæðið illa hirt og lýst og hættulegt gestum
Formaður íbúaráðs í Breiðholti, Sara Björg Sigurðardóttir, segir eigendur og rekstraraðila í Mjódd sýna mikið metnaðarleysi gagnvart íbúum Breiðholts og kallar eftir breyttri ásýnd. Hún segir svæðið illa hirt og lýst, rusl ekki tínt og svæðinu ekki sinnt. Afleiðingin sé sú að það sé gestum jafnvel hættulegt að vera þar.

Hvað er opið um páskana?
Opnunartímar verslana og þjónustu breytast yfir páskahátíðina en þó er hægt að verða sér út um helstu nauðsynjar á frídögum þessa helgina. Sundlaugar og skíðasvæði eru opin víða í dag.

Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi
Svokallaður hamfaragámur hefur verið tekinn í gagnið við verslun Bónus í Njarðvík en búnaður í gámnum mun tryggja matvælaöryggi íbúa Suðurnesja ef til vatns- eða rafmagnsleysis kemur vegna eldgosa.

Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum
Verð hafa færst lítillega niður á páskaeggjum í hægvinnu verðstríði undanfarnar tvær vikur. Bónus, Extra og Heimkaup eru oftast með lægsta verðið en Bónus, Krónan og Kjörbúðin með lægsta meðalverðið á páskaeggjum.

Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi
Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu hefur ákveðið að segja skilið við við samtökin í haust. Auglýst hefur verið eftir nýjum framkvæmdastjóra og stefnt á að hann taki við 1. september næstkomandi.

Tók á sig hluta af verðhækkunum „til að viðhalda styrk vörumerkjanna“
Framlegðarhlutfall Nathan & Olsen, einnar stærstu heildsölu landsins, dróst saman á milli ára þrátt fyrir tekjuaukningu sem var lítillega meiri en ársverðbólga. Forstjóri 1912, móðurfélags heildsölunnar, segir fyrirtækið hafa tekið á sig hluta af verðhækkunum en ekki fleytt þeim áfram að fullu til viðskiptavina í ljósi mikillar samkeppni og til að tryggja eftirspurn eftir vörunum. „Það er komin meiri ró á markaðinn eftir tvö ótrúleg ár sem einkenndust af miklum verðhækkunum og bjartari horfur í rekstri í ár,“ útskýrir hann.

Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu
VR, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Félag atvinnurekenda (FA) vara eindregið við samþykkt frumvarps um undanþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá samkeppnislögum, sem nú liggur fyrir Alþingi.

Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur
Bókamarkaðnum á Laugardalsvelli í Reykjavík lauk á sunnudagskvöld og fór svo á endanum að sölumarkmið framkvæmdastjórann náðist. Hundrað þúsund bækur seldust.