
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Fréttamenn CNN lýsa óþægilegri veiruskimun og troðfullum veitingastöðum
„Ísland er nú eins og kórónuveiran hafi aldrei borist þangað.“ Svo hljóðar fyrirsögnin á langri og ítarlegri umfjöllun fréttamanna CNN.

Aflýsa beinu flugi til Akureyrar frá Hollandi í sumar
Hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel hefur ákveðið að aflýsa öllum flugferðum á sínum vegum í sumar, þar með talið til Akureyrar. Ástæðan er óvissan sem enn ríkir vegna Covid 19 faraldursins.

Íslendingar einu útlendingarnir sem mega koma óhindrað til Grænlands
Grænlendingar hafa opnað land sitt gagnvart Íslendingum og eru Íslendingar núna eina þjóðin utan danska ríkjasambandsins sem leyfist að heimsækja Grænland, án strangra skilyrða. Og Íslendingar þurfa ekki að fara í tveggja vikna sóttkví, eins og Danir neyðast til.

Tveir lögregluþjónar til viðbótar smituðust
Tveir lögregluþjónar á Suðurlandi hafa greinst með Covid-19 til viðbótar við þann sem greinst hafði áður eftir aðgerðir vegna Rúmenanna sem komu til lands í síðustu viku.

Smituðum fjölgar í minnst 77 ríkjum heims
Heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar er ekki í rénun og þvert á móti hefur útbreiðsla hans aukist víðast hvar.

Fréttamaður CNN dýrkar dvölina á Íslandi
Max Foster, fréttamaður CNN, kom á dögunum til landsins til að flytja fréttir af stöðunni hér á landi í tengslum við útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum.

Skilaboð um niðurstöður hafa ekki alltaf skilað sér
Ýmis vandamál hafa komið upp við skimun á landamærunum eins og við var búist. Meðal þess sem unnið er að því að bæta er upplýsingagjöf til ferðamanna og tryggja að allt sé skýrt við komuna til landsins.

Svona var 77. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00.

Eitt nýtt smit en virkum smitum fækkar
Virk kórónuveirusmit eru nú fimm hér á landi.

Tveimur Rúmenanna verður vísað úr landi
Ákvörðun hefur verið tekin um að vísa tveimur Rúmenum úr landi sem gerðust sekir um brot á sóttvarnalögum og hafa ellefu verið sektaðir.

Stefnt að því að ferðagjöfin verði aðgengileg í dag
Stefnt er að því að ferðagjöfin - stafrænt gjafabréf til að verja í ferðaþjónustu innanlands verði aðgengileg í dag. Verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu hvetur landsmenn til að nýta gjöfina.

Boða til upplýsingafundar vegna landamæraskimunar í dag
Á fundinum verður fjallað um stöðu mála varðandi opnun landamæra.

„Gekk út sexhundruð þúsund krónum ríkari“
Fyrirtæki geta fengið styrki fyrir t.d. meirapróf starfsmanna, leiðtogaþjálfun, kostnað við gerð fræðsluefnis og fleira en allt of fá fyrirtæki vita um þennan rétt sinn segir Lísbet Einarsdóttir framkvæmdastjóri Starfsafls.

Telur að fleiri veikist á næstu vikum og mánuðum
Mjög óhugnanlegt væri að lenda aftur í sömu stöðu og í mars og apríl, þegar sem flestir voru veikir af veirunni á Íslandi, en heilbrigðisstarfsfólk sé undirbúið undir seinni bylgjuna.

Hefðu líklega ekki getað selt íslenska laxinn vegna hræðslu Kínverja
Mikil hræðsla við lax hefur gripið um sig meðal Kínverja eftir að kórónuveirusýking kom upp í Peking.

Áfall að greinast með kórónuveiruna eftir lögreglustörf
Íris Edda Heimisdóttir, lögreglukonan sem smitaðist af kórónuveirunni eftir að hafa tekið þátt í aðgerðum vegna Rúmenanna sem komu hingað til lands í síðustu viku, segir það hafa verið áfall að greinast með veiruna.

„Þetta er heiður fyrir okkur öll“
Þríeykið fékk fálkaorðuna í dag.

Samkomutakmarkanir settu mark sitt á hátíðarhöld
Forsætisráðherra segir að grannt verði fylgst með því hvernig opnun landamæranna tekst til og brugðist verði við með afgerandi hætti gerist þess þörf. Ráðherrann ávarpaði gesti á Austurvelli í dag en samkomutakmarkanir settu mark sitt á hátíðarhöld í tilefni af 17. júní um allt land.

Aflýsa flugferðum eftir að veiran breiddist út á ný
Nokkur hundruð flugferðum til og frá borginni Peking í Kína hefur verið aflýst eftir að kórónuveiran tók að breiðast út um borgina á ný.

Minntust þeirra sem hafa látist í faraldrinum
Sænska fánanum var flaggað í hálfa stöng fyrir framan Riksdag, sænska þingið, í dag þegar haldin var minningarathöfn um þau sem hafa látist í landinu af völdum Covid-19 sýkingarinnar sem kórónuveiran veldur.

Sky mun nota tölvuleikjahljóð til að skapa stemningu á leikjunum í enska boltanum
Hróp og köll stuðningsmanna úr tölvuleiknum FIFA verður notað í útsendingum Sky Sports frá ensku úrvalsdeildinni en enski boltinn fer aftur að rúlla í kvöld eftir þriggja mánaða hlé.

Þríeykið fékk Fálkaorðuna
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi í dag þríeykið svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynisson, yfirlögregluþjón hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni, heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðleg athöfn á Bessastöðum.

Tveir greindust í landamæraskimun auk einnar lögreglukonu
Tveir greindust með kórónuveiruna í landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli í gær en að auki reyndist sýni frá lögreglukonu jákvætt í gær.

Þrír hælisleitendur í farsóttahúsinu: Sérstakar reglur gilda um hælisleitendur og sóttkví
Þrír hælisleitendur og þrír Rúmenar, sem lögregla lýsti eftir í gær, bættust í hóp þeirra sem dvelja í farsóttahúsinu á Rauðarárstíg. Þar dvelja nú sautján manns.

Tuttugu og tveir í sóttkví vegna smitsins
Um fjórtán hundruð manns komu til landsins í gær um Keflavíkurflugvöll en um 1100 í fyrradag, 120 manns komu til landsins með Norrænu í gær. Tvö sýni sem tekin voru á vellinum í fyrradag reyndust jákvæð, annað hjá erlendum ferðamanni með mótefni í blóði en hitt hjá Íslendingi búsettum erlendis.

Bretaprins finnur enn hvorki bragð né lykt
Karl Bretaprins glímir enn við afleiðingar kórónuveirusýkingarinnar sem hrjáði hann í mars síðastliðinn en bragð- og þefskyn prinsins hefur ekki batnað.

Dwa nowe przypadki Covid-19 wykryte na lotnisku
Na lotnisku w Keflaviku, u dwóch osób zdiagnozowano COVID-19.

Hafa gefið sig fram við lögreglu
Lýst hefur verið eftir þremur rúmenskum karlmönnum sem komu til landsins á mánudag í síðustu viku.

„Virðist vera að við séum aðeins að komast út úr logninu varðandi Covid“
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn brýndu landsmenn til dáða í baráttunni gegn kórónuveirunni á upplýsingafundi dagsins.

Gengur ekki að fólk sé að faðmast
Fólk sem kemur til landsins þarf að fara varlega þar til það fær niðurstöður úr skimun.