Besta deild karla

Damir áfram í Kópavoginum
Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik út næstu leiktíð. Fyrri samningur gilti þar til í haust.

Óskar Hrafn tekur strax við KR
Enn og aftur hafa orðið vendingar á Meistaravöllum því Óskar Hrafn Þorvaldsson er tekinn við þjálfun karlaliðs KR í fótbolta.

Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá
Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá, þar sem krafist var þess að KR yrði dæmdur sigur gegn HK eftir að leik liðanna var frestað á dögunum.

Hybrid-völlurinn í Hafnarfirði: „Grasið hefur staðist allar væntingar og rúmlega það“
Blandað gras hefur verið tekið til notkunar í Hafnarfirði, það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Forystumaður í framkvæmdunum segir mikla ánægju með æfingar sumarsins og æft verði áfram á grasinu langt inn í veturinn. Hann er sannfærður um að innan fárra ára verði það lagt á keppnisvöll félagsins.

Helgi Fróði seldur til Helmond Sport
Stjarnan hefur selt hinn átján ára Helga Fróða Ingason til hollenska B-deildarliðsins Helmond Sport.

„Nú tók ég skrefið í besta liðið á Íslandi“
Tarik Ibrahimagic er nýjasti leikmaður Íslandsmeistara Víkings. Hann fékk tilboð frá fleiri félögum en segist spenntur að spila fyrir besta lið á Íslandi.

Sálfræðingur íslenska Ólympíuliðsins lætur trúðana í Bestu deildinni heyra það
Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík ásamt því að vera sálfræðingur íslenska Ólympíuliðsins, hefur fengið nóg af því þegar þjálfarar í Bestu deild karla í knattspyrnu haga sér eins og trúðar á hliðarlínunni.

Glugginn lokast: Præst í KR þegar leiktíðinni lýkur og Sowe heldur kyrru fyrir
Á miðnætti í kvöld lokast seinni félagaskiptagluggi tímabilsins í efstu deildum karla og kvenna í fótbolta. Vísir fylgdist með því helsta sem gerðist á lokadegi gluggans.

Stjarnan án þriggja lykilmanna gegn KA
Þrír lykilleikmenn Stjörnunnar voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann og verða því ekki með gegn KA á sunnudaginn, í Bestu deildinni í fótbolta.

Arnar í þriggja leikja bann fyrir bræðikast sitt
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings R., fær ekki að stýra liðinu í næstu þremur deildarleikjum eftir að hann var í dag úrskurðaður í leikbann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ.

Dusan farinn frá FH til Leiknis
Hinn 35 ára gamli miðvörður Dusan Brkovic var í dag kynntur sem nýjasti leikmaður Leiknis en hann kemur í Breiðholtið frá FH.

KR þrýstir á stjórn KSÍ vegna brotna marksins
KR-ingar sendu inn erindi til stjórnar KSÍ sem tekið verður fyrir á stjórnarfundi í dag, vegna leiksins við HK sem ekki fór fram í síðustu viku vegna brotins marks í Kórnum. Mögulegt er að HK verði dæmt 3-0 tap vegna málsins.

„Ég á ekki til orð Lárus Orri“
Blikum þótti á sér brotið í leiknum á móti Stjörnunni en samkvæmt sérfræðingum Stúkunnar sluppu Blikarnir kannski bara vel frá þessum leik.

Stúkan ræddi rauða spjald Arnars: „Þetta er svakalegt“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, fékk rautt spjald í jafnteflinu á móti Vestra í átjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Stúkan ræddi hegðun þjálfara Íslandsmeistaranna sem missti sig algjörlega fyrir framan fjórða dómarann.

Valsmenn kaupa Svía og kalla Orra Hrafn til baka úr láni
Valsmenn hafa styrkt sig fyrir lokakafla Bestu deildar karla í fótbolta og keypt sænskan sóknarmann sem nýr þjálfari Valsliðsins þekkir vel til.

Sjáðu markið sem endaði 84 daga bið KR-inga eftir sigri
KR og ÍA fögnuðu bæði 1-0 heimasigrum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá þessi tvö mikilvægu sigurmörk hér inn á Vísi.

„Við gáfum þeim þetta mark“
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ekki sáttur í leikslok þegar lið hans mætti ÍA á Akranesi í 18. umferð Bestu Deildar karla í kvöld. Ekki nema von enda lauk leiknum með 1-0 sigri ÍA.

„Við horfum á þetta þannig að þetta sé í okkar höndum“
Haukur Andri Haraldsson, miðjumaður ÍA, var að vonum mjög ánægður með 1-0 sigur Skagamanna gegn Fram í mikilvægum leik liðanna í Bestu deild karla í kvöld.

Helgi Fróði á leið til Hollands
Helgi Fróði Ingason, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu, er á leið til Hollands og mun því ekki klára tímabilið með Stjörnunni.

Uppgjör og viðtöl: KR - FH 1-0 | Fyrsti heimasigur Vesturbæinga í hús
KR vann FH í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í leik liðanna á Meistaravöllum í kvöld. Um var að ræða fyrsta heimasigur KR-liðsins á leiktíðinni og í fyrsta skipti sem liðið heldur marki sínu hreinu á tímabilinu.

Uppgjörið: ÍA - Fram 1-0 | Skagamenn í Evrópubaráttu á ný eftir kærkominn sigur
Eftir fjóra leiki án sigurs tókst ÍA að landa mikilvægum 1-0 sigri á Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Akranesi í kvöld. Sigurinn lyftir ÍA upp fyrir Fram og í 4. sæti deildarinnar sem gæti gefið Evrópusæti þegar upp er staðið.

Aðstoðarþjálfarinn Kjartan Henry á bekknum hjá FH
FH heimsækir KR í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Athygli vekur að KR-ingurinn fyrrverandi, Kjartan Henry Finnbogason, og núverandi aðstoðarþjálfari FH er skráður á varamannabekk liðsins í kvöld.

Sakar Stjörnuna um að falsa skýrslur
Stjörnumenn hafa oftar en einu sinni breytt byrjunarliði á leikskýrslu skömmu fyrir leik, eftir að leikskýrsla hefur verið birt á vef KSÍ, og virðast gera það vísvitandi til að rugla í mótherjum sínum að mati blaðamanns Fótbolta.net.

Sænskur sóknarmaður sagður á leið til Vals fyrir sjö milljónir króna
Albin Skoglund er sagður á leið til landsins í læknisskoðun áður en hann skrifar undir samning við Val, sem talið er að borgi um sjö milljónir króna fyrir leikmanninn.

„Þeim mun líða illa þegar þeir horfa á þetta aftur“
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, var verulega svekktur með 2-2 jafnteflið gegn Stjörnunni í kvöld en Halldór var allt annað en sáttur við dómgæsluna í kvöld.

Uppgjörið og viðtöl: Valur-HK 5-1 | Markaveisla í fyrsta sigri Túfa
Jónatan Ingi Jónsson gerði þrennu í sannfærandi 5-1 sigri Vals gegn HK í fyrsta heimaleik Túfa sem aðalþjálfari Vals.

„Kominn tími til að ég myndi stíga upp“
Valur vann 5-1 sigur gegn HK á heimavelli. Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, fór á kostum og gerði þrennu.

„Þurfum bara að sætta okkur við þetta stig sem við unnum fyrir“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, segist vera sáttur með frammistöðu liðsins gegn KA nú í kvöld. Liðin gerðu 1-1 jafntefli sem Rúnar segir að séu vonbrigði miðað við hvernig leikurinn spilaðist.

Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 2-2 | Stjarnan bjargaði stigi undir lokin
Stjarnan tók á móti Breiðabliki í fjörugum leik í Bestu deild karla í kvöld. Að meðaltali eru skoruð þrjú mörk þegar þessi lið mætast og það hækkaði í kvöld en liðið skildu að lokum jöfn, 2-2.

„Vel gert hjá dómaranum að leyfa leiknum að fljóta“
Vestri náði í jafntefli gegn Íslandsmeisturum Víkings á heimavelli hamingjunnar 1-1 í 18. umferð Bestu deildarinnar. Vestri jafnaði leikinn á 83. mínútu eftir frekar tíðindalítinn leik.