

Ítalska hnefaleikakonan Angela Carini, sem bað um að bardagi sinn á Ólympíuleikunum gegn hinni alsírsku Imane Khelif yrði stöðvaður eftir aðeins 46 sekúndur, vill nú biðja hana afsökunar á framferði sínu.
Hin taívanska Lin Yu-ting, sem var vísað úr keppni á HM í hnefaleikum í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf, vann fyrsta bardaga sinn á Ólympíuleikunum í París.
Stórfurðulegt mál frá Ólympíuleikunum í París er skyndilega eitt það umtalaðasta er varðar íþróttir kvenna í áraraðir. Sjaldan hafa samfélagsmiðlar blásið eins mikið upp í kringum einvígi á íþróttavelli sem stóð í 46 sekúndur. Og umræðan að stóru leyti byggð á ranghugmyndum og ósannindum.
Óhætt er að segja að hin alsírska Imane Khelif hafi verið mikið milli tannanna á fólki eftir hnefaleikabardaga hennar á Ólympíuleikunum í París í gær.
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndir harmar þá umræðu og svívirðingar sem hafa flogið eftir að hin alsírska Imane Khelif vann einvígi í hnefaleikum á Ólympíuleikum í dag.
Þátttaka hinnar alsírsku Imane Khelif í kvennaflokki í hnefaleikum á yfirstandandi Ólympíuleikum í París hefur valdið fjaðrafoki. Khelif var meinuð þátttaka á heimsmeistaramóti síðasta árs eftir að hafa ekki staðist kynjapróf.
Lögreglunni var tilkynnt um slagsmál í Kópavogi rétt eftir miðnætti í nótt. Sá sem tilkynnti sagði að menn væru berir að ofan með boxhanska. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að þrír menn væru að æfa sig í hnefaleikum.
Hnefaleikakappinn fyrrverandi Roy Jones Jr. tilkynnti um helgina að sonur hans DeAndre hafi svipt sig lífi.
Mexíkóski hnefaleikakappinn Moises Calleros hefur verið dæmdur í fjögurra ára keppnisbann eftir hann féll á lyfjaprófi. Hann mun þó ekki sitja refsinguna af sér þar sem hann er látinn.
Tyson Fury hefur tjáð sig um tap sitt fyrir Oleksandr Usyk en þeir mættust nýverið í sögulegum þungavigtarbardaga í hnefaleikum.
Íslenski hnefaleikakappinn Kolbeinn Kristinsson fær að mæta Finnanum Mika Mielonen eftir allt saman og um leið að reyna sig við fyrstu titilvörnina
Komin er ný dagsetning á bardaga Mikes Tyson og samfélagsmiðlastjörnunnar Jakes Paul. Þeir munu eigast við 15. nóvember.
Í kvöld fer fram stærsta hnefaleikakvöld á Íslandi í Kaplakrika. ICEBOX. Þar mætir til leiks Elmar Gauti Halldórsson, tvöfaldur meistari á mótinu en sýnt verður frá ICEBOX í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5.
Í kvöld fer fram stærsta hnefaleikakvöld á Íslandi í Kaplakrika. ICEBOX. Þar mætir til leiks sautján ára Norðurlandameistari okkar Íslendinga í hnefaleikum, Erika Nótt en sýnt verður frá ICEBOX í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 5.
Það er fjörugur föstudagur framundan á íþróttarásum Vodafone og Stöðvar 2. Íslenska landsliðið leikur við England á Wembley í opinni dagskrá. Síðar í kvöld fer svo fram einn stærsti hnefaleikaviðburður sinnar tegundar í Kaplakrika.
Íslenski hnefaleikamaðurinn Kolbeinn Kristinsson gerði góða ferð til Finnlands þar sem hann keppti um Baltic Union titilinn eða Eystrasaltstitilinn.
Mike Tyson er ekki í ástandi til að berjast við Youtube stjörnuna Jake Paul þann 20. júlí næstkomandi og hefur því neyðst til að fresta bardaganum.
Atvinnuboxarinn Kolbeinn Kristinsson fékk nýjan andstæðing fyrir bardaga sinn á morgun með afar skömmum fyrirvara.
Kolbeinn Kristinsson, þungavigtarkappi og atvinnumaður okkar í hnefaleikum, á fyrir höndum mikilvægan bardaga á sínum taplausa atvinnumannaferli til þessa annað kvöld. Eftir fádæma óheppni og niðurfellda bardaga vegna meiðsla er Kolbeinn klár í slaginn á ný. Sigur annað kvöld hefur þá burði að koma atvinnumannaferli hans á næsta stig.
Alþjóða hnefaleikasambandið hefur ákveðið að fylgja alþjóða frjálsíþróttasambandinu eftir og veita verðlaunahöfum á Ólympíuleikunum peningaverðlaun.
Mike Tyson þurfti á læknisaðstoð að halda í flugi frá Miami til Los Angeles á sunnudaginn. Hann undirbýr sig nú af kappi fyrir bardaga við samfélagsmiðlastjörnuna Jake Paul.
Tyson Fury tapaði sínum fyrsta bardaga á atvinnumannaferlinum þegar hann laut í lægra haldi fyrir Oleksandr Usyk í titilbardaga í þungavigtinni í gær. Fury var allt annað en sáttur við niðurstöðuna.
Oleksandr Usyk varð í gær fyrstur til að vinna Tyson Fury þegar þeir mættust í titilbardaga í þungavigtinni í hnefaleikum í Ríad í Sádi-Arabíu.
Eftir að hafa verið rólegur á síðasta blaðamannafundi fyrir bardagann gegn Oleksandr Usyk var Tyson Fury í ham í vigtuninni í gær.
Sjónvarpskonan vinsæla, Laura Woods, gat ekki unnið við bardaga Tysons Fury og Oleksandr Usyk í Sádi-Arabíu. Ástæðan eru meiðsli sem hún varð fyrir í fríi.
Enski boxarinn Tyson Fury fékk góðar kveðjur frá sjálfum Zlatan Ibrahimovic fyrir titilbardaga sinn gegn Oleksandr Usyk.
Breski hnefaleikakappinn Sherif Lawal lést eftir að hafa verið sleginn niður í bardaga um helgina.
John Fury, faðir hnefaleikakappans Tyson Fury, stal senunni í aðdraganda sögulegs hnefaleikabardaga Tyson og Oleksandr Usyk frá Úkraínu á laugardaginn kemur.
Stórar dyr gætu opnast fyrir hnefaleikakappann Kolbein Kristinsson takist honum að vinna titilbardaga sem fram fer 1. júní næstkomandi.
Þungavigtarboxarinn og fyrrverandi UFC-meistarinn Francis Ngannou syrgir nú fimmtán mánaða son sinn, Kobe, sem lést.