Tækni

Lygileg nákvæmni í byltingarkenndum ókeypis búnaði
Máltækni hefur fleygt áfram á síðustu árum og landsmenn hafa nú ókeypis aðgang að forriti sem breytir töluðu máli í ritað á svipstundu. Þetta auðveldar líf margra til muna og er næstum því fullkomið, en alls ekki alveg.

Risadagur fyrir Strætó sem hoppar inn í framtíðina
Strætó bs. innleiddi nýtt greiðslukerfi fyrir alla vagna á höfuðborgarsvæðinu í dag, þar sem snjallkort og snjallsímar eru meginstoðirnar.

Vilja þreifa á sýndarheimum framtíðarinnar
Síðastliðin sjö ár hafa starfsmenn Reality Labs, dótturfyrirtækis Meta (áður Facebook), unnið að því að svara þeirri spurningu hvernig fólk á að skynja sýndarheima framtíðarinnar. Hvernig fólk eigi að snerta stafræna hluti og jafnvel annað fólk.

Auðæfi Davíðs Helgasonar hafa tvöfaldast síðan í mars
Samkvæmt rauntímalista Forbes er Davíð Helgason nú metinn á rúma tvo milljarða Bandaríkjadala. Hann nálgast Björgólf Thor Björgólfsson nú óðfluga sem efnaðasti Íslendingurinn.

Spotify kaupir hljóðbókaveitu
Streymisveitan Spotify hyggst kaupa hljóðbókarveituna og dreifingarfyrirtækið Findaway. Endanlegt kaupverð liggur ekki fyrir.

Fyrirtæki Davíðs kaupir fyrirtæki Peters Jackson
Hugbúnaðarfyrirtækið Unity Technologies ætlar að kaupa hluta tæknibrellufyrirtækisins WETA Digital. Leikstjórinn Peter Jackson stofnaði Weta á árum áður og fyrirtækið er hvað þekktast fyrir að hafa komið að tæknibrellunum í Lord of the Rings kvikmyndunum.

Ný íslensk streymisveita hefur göngu sína
Ný íslensk streymisveita hefur hafið göngu sína sem sérhæfir sig í klassískum kvikmyndum með íslenskum texta. Streymisveitan ber nafnið Filmflex og leggja aðstandendur áherslu á að sinna klassískum kvikmyndaperlum sem nutu mikillar aðsóknar í kvikmyndahúsum landsmanna á sjöunda og áttunda áratugnum.

„What the hell is wrong with your country?" spurði lögfræðingurinn
Ævintýri sprota sem hófst skömmu eftir bankahrun.

Íslandsvinir unnu með Facebook að nýju nafnavali
Það fór ekki framhjá heimsbyggðinni að Facebook tilkynnti um nýtt nafn félagsins á dögunum: Meta. Íslandsvinir tóku þátt í því nafnavali en verkefnið sem slíkt hófst árið 2019.

Binni Glee og Patrekur Jaime hvetja Íslendinga til að redda tungumálinu
Á mánudag fer af stað vinnustaðakeppnin Reddum málinu. Þar keppast fyrirtæki og stofnanir við að lesa texta í gegnum tölvu eða snjalltæki.

Nýtt app með tvö þúsund viðburðum framundan á Íslandi
Nýtt íslenskt app, Gjugg appið, hefur nú náð því marki að vita um meira en tvö þúsund viðburði framundan á Íslandi.

Eigandi rakti símann en þjófurinn þóttist eiga hann
Um klukkan 17 í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að farsíma hefði verið stolið í verslunarmiðstöð í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Þremur tímum síðar hafði tilkynnandi aftur samband og hafði þá staðsett símann í Hlíðahverfinu.

Facebook eyðir andlitsgögnum milljarðs manna
Facebook tilkynnti í dag að fyrirtækið hygðist leggja niður andlitsgreiningakerfi sitt og eyða gögnum frá meira en milljarði notenda sem það hefur safnað í rúman áratug. Tæknin var meðal annars notuð til að benda notendum á myndir þar sem andlit þeirra gætu verið.

Vinnan og félagslíf færð í sýndarheima næstu kynslóðar internetsins
Í náinni framtíð verður fólki mögulegt að heimsækja vini sína, horfa með þeim á kvikmynd eða fara á tónleika, án þess að fara úr húsi eða standa upp úr sófanum. Einnig verður hægt að fara í göngutúra um fornar borgir og jafnvel aðrar plánetur, skoða söfn eða versla í stafrænum verslunarrýmum þar sem gervigreind sinnir afgreiðslustörfum.

Vara við að tæki séu hlaðin á nóttunni
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, varar við því að raftæki séu hlaðin á nóttunni, á meðan enginn getur fylgst með þeim. Borið hefur á að eldur hafi kviknað út frá raftækjum, til dæmis símum, rafhjólum og rafhlaupahjólum.

Allt annað að fara um borð í Strætó
Strætó er að gerbreyta um greiðslukerfi í vögnum sínum og hið nýja er sambærilegt því sem þekkist í nágrannalöndunum. Hver fer að verða síðastur að nota gömlu góðu strætómiðana, sem heyra brátt sögunni til.

Vilja fyrst gjörbreyta byggingargeiranum og svo tölvuleikjum
Íslenska sprotafyrirtækið Treble Technologies sem sérhæfir sig í hugbúnaði á sviði hljóðhermunar hefur lokið 232 milljóna króna fjármögnun.

Ný Airpods og uppfærð MacBook Pro á kynningu Apple
Tæknirisinn Apple kynnti nýjustu vörur sínar með mikilli viðhöfn í dag. Mest fór fyrir nýjum Airpods 3 heyrnartólum og nýrri kynslóð MacBook Pro fartölvunnar.

Facebook veðjar á nýjan sýndarheim
Allt að tíu þúsund störf eiga að skapast innan ríkja Evrópusambandsins á næstu fimm árum í tengslum við þróun samfélagsmiðlarisans Facebook á nýjum sýndarheimi. Þar eiga notendur að geta leikið sér, unnið og haft samskipti í sýndarveruleika.

Stefanía Bjarney tilnefnd sem frumkvöðull ársins
Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, famkvæmdastjóri og meðstofnandi íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Avo, er tilnefnd til Nordic Women in Tech Awards í flokknum frumkvöðull ársins.

Tæknirisarnir keppast um athygli í næstu viku
Nóg verður um að vera fyrir aðdáendur nýrra tækja í næstu viku. Stærstu tæknirisar heimsins eru allir að fara að kynna ný tæki, tól og hugbúnað þrjá daga í röð.

Skortur sagður koma niður á framleiðslu iPhone 13
Apple mun líklega draga úr fjölda iPhone 13 sem til stendur að framleiða vegna heimslægs skorts á hálfleiðurum. Skorturinn er að koma niður á helstu tekjulind tæknirisans.

Frumtak fjárfestir í Ankeri fyrir 300 milljónir
Fyrirtækið Ankeri, sem þróar hugbúnaðarlausnir fyrir skipaiðnaðinn, tilkynnti í dag 300 milljón króna fjármögnun frá Frumtaki.

Svona er að fá heita máltíð senda heim með dróna
Flutningafyrirtækið Aha.is hlaut á dögunum verðlaun fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála. Flotinn rafvæddur og ýmislegt göfugt í þeim dúr, en það sem er meira um vert: Þeir senda heim mat með dróna.

Doktorsnám og nýtt starf: „Hef lært að maður þarf sjálfur að koma sér á framfæri“
„Ég var alls ekki að leita eftir því að fara í doktorsnám heldur kom sú hugmynd frá leiðbeinandanum mínum, Þresti Olaf Sigurjónssyni, þegar ég var að klára meistaranámið. Hann benti mér á að það væri vel hægt að blanda doktorsnámi og rannsóknum saman við starf hjá fyrirtækjum og hann hvatti mig til að skoða þann möguleika,“ segir Hildur Magnúsdóttir nýráðin viðskiptastjóri hjá DecideAct.

Ný útgáfa Windows nú aðgengileg notendum að endurgjaldslausu
Hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft gaf í gær út nýjustu útgáfuna af Windows-stýrikerfi sínu sem ber heitið Windows 11. Um er að ræða nokkuð umfangsmikla uppfærslu sem verður aðgengileg flestum notendum Windows 10 að endurgjaldslausu.

Truflanir hjá Facebook
Fjölmargir notendur Facebook og Instagram um heim allan hafa átt í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlunum frá því á fjórða tímanum. Einnig hefur borið á truflunum á þjónustu Whatsapp, Messenger og Workplace en allir fimm miðlarnir eru í eigu Facebook.

Auðvelda fólki að sannreyna skimunarvottorð með nýju appi
Embætti landlæknis hefur gefið út smáforritið Skanni C-19 sem gerir viðburðahöldurum kleift að staðfesta hvort vottorð um neikvæða niðurstöðu Covid-skimunar sé gilt.

Sleppa við afgreiðslukassann
Viðskiptavinir Krónunnar geta nú í fyrsta sinn hér á landi notað símann til að afgreiða sig sjálfa sem gerir þeim kleift að kaupa inn án þess að koma nálægt afgreiðslukassa.

NASA horfir lengra út í geim
Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra.