Spænski boltinn

Reyna að sannfæra Xavi um að vera áfram
Forráðamenn spænska knattspyrnurisans Barcelona gera nú hvað þeir geta til að sannfæra þjálfara liðsins, Xavi, um að vera áfram við stjórnvölin. Xavi stendur þó fast á sínu og mun hætta í sumar.

„Hvar sé ég mig eftir tíu ár? Ég verð sköllóttur“
Spænska ungstirnið Pedri hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir stórkostlegt ár hans árið 2021. Meiðsli hafa strítt unga manninum sem er þess þó viss að hann verði enn að eftir áratug. Hann virðist þá ekki hræðast hármissi.

Rodrygo afgreiddi Athletic Bilbao
Real Madrid vann mikilvægan sigur á Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en fátt virðist geta komið í veg fyrir að Real endurheimti titilinn í vor.

Dramatík í lokin hjá ævintýraliðinu
Girona er kannski að gefa aðeins eftir í titilbaráttunni á Spáni en ævintýralið vetrarins bauð hins vegar upp á ævintýraendi í dag þegar liðið tryggði sér 3-2 sigur á Real Betis í uppbótatíma.

Sevilla fordæmir kynþáttaníð sem þjálfari og leikmaður urðu fyrir
Sevilla hafa sent út yfirlýsingu í kjölfar kynþáttaníðs og útlendingahaturs sem leikmaðurinn Marcos Acuna og þjálfarinn Quique Sanchez Flores urðu fyrir í leik gegn Getafe í gær.

Xavi kærir tvo menn fyrir meiðyrði
Xavi, fyrrum leikmaður og núverandi þjálfari Barcelona, hefur stefnt tveimur fjölmiðlamönnum fyrir meiðyrði.

Sumarið þar sem þjálfararáðningar munu toppa leikmannakaup
Þrjú af stærstu knattspyrnufélögum Evrópu og jafnvel heimsins verða í þjálfaraleit í sumar. Munu ráðningar Liverpool, Barcelona og Bayern München á nýjum þjálfara eflaust toppa nær öll leikmannaskipti sumarsins nema þá ef til vill ef Kylian Mbappé fer loks til Real Madríd.

Segja að Memphis Depay hafi borgað trygginguna fyrir Dani Alves
Dani Alves, fyrrum leikmaður Barcelona og brasilíska landsliðsins, er laus úr fangelsi en aðeins þar til að áfrýjun hans er tekin fyrir.

Brast í grát á blaðamannafundi
Brasilíski framherjinn Vinícius Júnior, leikmaður Real Madríd, gat ekki haldið aftur tárunum á blaðamannafundi þar sem allar spurningar blaðamanna sneru að þeim kynþáttafordómum sem grassera á Spáni.

Með 26 mörk og 25 stoðsendingar á tímabilinu
Norska knattspyrnukonan Caroline Graham Hansen er allt í öllu hjá spænska liðinu Barcelona í 3-0 sigri á Real Madrid í El Clasico um helgina.

Faðir Neymars segir fjölskylduna ekki gefa Dani Alves meiri pening
Dani Alves þarf að safna einni milljón evra í tryggingu til þess að sleppa út úr fangelsi. Hann getur ekki lengur seilst ofan í vasa vinar síns.

Húsnæðisleit í ráðhúsi og tveir reknir í tengslum við spillingarmálið
Spænska knattspyrnusambandið rak tvo háttsetta aðila og lögreglan á Spáni gerði frekari húsnæðisleitir í dag. Allt er þetta viðbragð við rannsókn á víðamiklu mútu- og spillingarmáli í stjórnartíð Luis Rubiales.

Lögregluleit í húsakynnum Rubiales og spænska knattspyrnusambandsins
Meiriháttar lögregluaðgerðir fóru fram í dag eftir rannsóknir á spillingarmáli tengt spænska ofurbikarnum. Lögregluleit var gerð í húsnæði spænska knattspyrnusambandsins og á heimili fyrrum formanns þess, Luis Rubiales.

Barca vill losna við Lewandowski og Atlético áhugasamt
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Barcelona hyggist selja pólska framherjann Robert Lewandowski í sumar. Atlético Madrid er sagt fylgjast vel með stöðu mála.

149 milljóna trygging og Dani Alves laus úr fangelsi
Dani Alves hefur verið sleppt úr fangelsi gegn tryggingu en Brasilíumaðurinn hafði áfrýjað fangelsisdómi sínum.

Dani Alves biður um að losna úr fangelsinu
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Dani Alves vill losna úr fangelsinu þar til að áfrýjun hans er tekin fyrir hjá spænskum dómstólum.

Xavi sá rautt þegar Barca vann stórt í Madríd
Barcelona gerði góða ferð til höfuðborgarinnar Madríd þegar liðið vann öruggan sigur á Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Real stefnir hraðbyri að spænska titlinum
Það virðist fátt geta stöðvað Real Madrid í vegferð liðsins að spænska meistaratitlinum í knattspyrnu. Liðið vann í dag öruggan sigur á Osasuna á útivelli.

Sautján ára varnarmaður Barcelona valinn í landsliðið
Miðvörðurinn ungi Pau Cubarsí hefur slegið í gegn með Barcelona í síðustu leikjum og nú er búið að velja strákinn í spænska landsliðið.

Guardiola: Orðið að svolítilli hefð
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, fær enn á ný það verkefni að mæta Real Madrid í Meistaradeildinni.

Benitez rekinn eftir skelfilegt gengi
Spænski knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hefur verið rekinn úr starfi hjá spænska efstudeildarfélaginu Celta Vigo.

Leikmaður Real skiptir um landslið
Brahim Díaz, miðjumaður Real Madrid, hefur ákveðið að hætta að spila fyrir spænska landsliðið og ætlar frekar að spila fyrir Marokkó.

Real ekki í vandræðum með drengina hans Benitez
Real Madríd vann Celta Vigo 4-0 í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Rafa Benítez, fyrrverandi þjálfari Liverpool og Real Madríd meðal annars, stýrir nú Celta Vigo.

Ancelotti: Aldrei áður séð komið jafn illa fram við einn leikmann
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, fordæmir það hvernig farið er með brasilíska knattspyrnumanninn Vinícius Júnior og segist aldrei hafa séð annað eins.

Girona heldur enn í titilvonina
Girona vann gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur er liðið tók á móti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Atlético Madrid missteig sig gegn fallbaráttuliði Cádiz
Atlético Madrid mátti þola 2-0 tap er liðið heimsótti fallbaráttulið Cádiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

„Það hjálpar ekki Lamine að líkja honum við Messi“
Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, viðurkenndi að hann sæi vissulega Messi-glampa í leik táningsins Lamine Yamal en varaði engu að síður við slíkum samanburði.

Sextán ára skaut Barcelona í silfursætið
Hinn sextán ára gamli Lamine Yamal heldur áfram að slá í gegn með Barcelona í spænsku 1. deildinni í fótbolta en hann skoraði afar snoturt mark í kvöld.

Bellingham segir bannið fáránlegt: Eru að gera mig að víti til varnaðar
Enski landsliðsmiðjumaurinn Jude Bellingham er allt annað en sáttur við tveggja leikja bannið sem hann var dæmdur í vegna framkomu sinnar eftir leik Real Madrid og Valencia um síðustu helgi.

Af hverju svíkja fótboltamenn á Spáni undan skatti?
Ítalinn Carlo Ancelotti var í gær ákærður fyrir skattsvik af skattayfirvöldum á Spáni og lengist enn listi fótboltamanna og þjálfara sem sæta kæru fyrir slíkt þar í landi.