

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hefur kallað eftir gögnum um palestínsku drengina Sameer Omran, 12 ára, og Yazan Kawave, 14 ára, sem á að vísa úr landi.
Frá 7. október síðastliðnum hefur heimsbyggðin horft upp á hrylling ágerast á Gaza. Árásum Hamas á Ísrael hefur verið svarað með drápum á fleiri en 16.000 íbúum Gaza, þar af að minnsta kosti 7000 börnum.
Hart er barist á vígvellinum á Gasa og herma fréttir að Ísraelsher sé enn að herða sóknina. Skriðdrekasveitir eru að færast nær þremur borgum, Khan Younis í suðri og Jabalia og Shuja'iya í norðri. Barist er á götum Khan Younis, stærstu borgar í suðurhluta Gasastrandarinnar, en stjórnvöld í Ísrael fullyrða að leiðtogar Hamas samtakanna haldi þar til.
Þann 9. nóvember síðastliðinn samþykkti ríkisstjórn Íslands samhljóða ályktun um ákall til vopnahlés. Að fjórum vikum liðnum frá samþykki ályktunarinnar hefur ástandið versnað til muna en íslenskir ráðamenn hafa ennþá ekki séð ástæðu til að setja meiri þrýsting á ísraelsku ríkisstjórnina.
Jan Egeland, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs og einn af arkítektum Oslóarsamkomulagsins sem á sínum tíma tókst að koma á friði á milli Ísraela og Palestínumanna, gagnrýnir harðlega þær þjóðir sem sjá Ísraelsmönnum fyrir vopnum.
Sjúklingar fylla gólfin á spítölum Gasa og staðan versnar með hverri klukkustund að mati hjálparstofnana. Fólk geti ekki flúið í öruggt skjól á sama tíma og Ísraelsher kallar eftir umfangsmeiri rýmingum.
Finnst ykkur í fullri alvöru ekkert athugavert við það að brottvísa 12 og 14 ára börnum á flótta undan ógnarstjórn aðskilnaðarríkis Ísraels sem nú fremur hrottalegt þjóðarmorð þar sem jafnvel hvítvoðungum er ekki þyrmt?
„Um fátt er ég fullkomlega sannfærður en þetta þykist ég vita. Það vísar enginn nauðstöddum á dyr án þess að drepa hluta af sjálfum sér. Þessu verður að linna meðan enn er eitthvað eftir af okkur til þess að bjarga.“
5.desember birti Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri Grænna, stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún segist fá fjölda skilaboða þar sem almenningur hvetur forsætisráðherra og þingflokkinn til að stíga inn í ákvörðun Útlendingastofnunar um að brottvísa tveim palestínskum drengjum til Grikklands, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum.
Fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs segir fáránlegt að stjórnkerfið hér á landi hafi synjað palestínskum drengjum í neyð um alþjóðlega vernd. Þeirra geti beðið hræðilegar aðstæður í flóttamannabúðum í Grikklandi sem hún hafi séð með eigin augum. Dómsmálaráðherra ætlar ekki að tjá sig um mál drengjanna.
Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur gert samning við ísraelska færslufyrirtækið Rapyd um að fyrirtækið styrki íþróttafólk innan sambandsins. Þessir styrkir hafa sætt gagnrýni vegna þess að Rapyd starfar í landránsbyggðum Ísraela í Palestínu sem eru skýlaust brot á alþjóðalögum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna.
Meðferð umsókna einstaklinga frá Palestínu hefur ekki breyst hjá Útlendingastofnun frá því í upphafi október þegar átökin hófust á Gasa. Alls hefur stofnunin tekið til meðferðar 244 umsóknir á þessu ári. 128 hafa fengið vernd og 116 neitun á grundvelli Dyflinnarreglugerðar eða verndar annars staðar.
Sænska loftlagsaðgerðarsinninn Greta Thunberg segist ekki ætla að þegja yfir hörmungum á Gasa ströndinni. Hún segir ekki hægt að standa hlutlaus hjá á meðan framið sé þjóðarmorð.
Naglar í kynfærum kvenna, kynfæri svo illa farin að ekki var hægt að sjá hvort um var að ræða konu eða mann, skotsár á kynfærum og brjóstum. Þetta er meðal þess sem vitni að árásum Hamas á Ísraelsmenn 7. október lýstu á viðburði hjá Sameinuðu þjóðunum í gær.
Þórdísi Helgadóttur rithöfundi barst boð um að kynna nýútgefna bók sína Armeló á starfsmannafundi í forætisráðuneytinu næstkomandi mánudag. Hún segist hafa hafnað boðinu á grundvelli aðgerðaleysis ráðuneytisins í málefnum Palestínu.
Skriðdrekar, herflutningabifreiðar og jarðýtur Ísraelshers eru komnar inn á suðurhluta Gasa, nærri Khan Younis. Erlendir miðlar hafa eftir talsmanni hersins að aðgerðum í norðurhlutanum sé að stærstum hluta lokið.
Tveir palestínskir drengir sem dvelja hjá íslenskum fósturfjölskyldum segja hræðilegar aðstæður bíða þeirra verði ákvörðun stjórnvalda um að vísa þeim úr landi að veruleika. Fósturforeldrar drengjanna skora á ráðmenn að sýna hugrekki og veita þeim vernd.
Fósturfjölskylda tólf ára drengs frá Palestínu sem synjað hefur verið um vernd á Íslandi segir tilhugsunina um að hann verði sendur aftur til Grikklands foreldralaus skelfilega. Þau gagnrýna upplýsingaskort stjórnvalda og vona að Palestínumönnum verði veitt sérstök vernd.
Ísraelsher hefur staðið í linnulausum loftárásum á Gasa frá því að hlé á átökum rann út fyrir um það bil þremur dögum. Herinn greindi frá því í nótt að aðgerðir á jörðu niðri stæðu nú yfir á svæðinu öllu.
Tólf ára strák frá Palestínu sem hefur búið á hjá íslenskri fjölskyldu á Íslandi undanfarna mánuði hefur verið neitað um vernd. Að öllu óbreyttu verður honum vísað úr landi ásamt fjórtán ára frænda sínum til Grikklands þar sem engin fjölskylda bíður þeirra.
Ísraelski herinn hefur haldið áfram loftárásum sínum á Gasa í dag. Nú beinast loftárásirnar gegn suðurhluta Gasa. Bandarísk stjórnvöld biðla til þeirra ísraelskru um að virða mannréttindi.
Íbúar á Suður-Gasa segja sprengjuregn Ísraelsmanna síðasta sólarhringinn það mesta frá upphafi stríðs. Hátt í 200 hafa farist á Gasa frá því vopnahlé rann út í sandinn í gær. Friðarviðræðum virðist hafa verið siglt í strand.
Eftir að vopnahlé í Ísrael og Palestínu lauk í gær hafa átök hafist á ný fyrir botni miðjarðarhafs. Ísraelski herinn segist hafa gert árásir á rúmlega 400 skotmörk síðan þá.
Mótmælandi er þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa kveikt í sér við ísraelska ræðismannsskrifstofu í Atlantaborg í Bandaríkjunum í dag.
Óbreyttur borgari sem réði niðurlögum tveggja hryðjuverkamanna eftir að þeir hófu skothríð á biðskýli í Jerúsalemborg var drepinn af ísraelskum hermönnum sem héldu hann sjálfan vera hryðjuverkamann.
Ísraelskir embættismenn komu höndum yfir árásaráætlanir Hamas fyrir árásirnar þann 7. október fyrir meira en ári síðan. Áætlunin var þó flokkuð sem óraunhæf, miðað við getu Hamas, og hunsuð.
Ísrael er óaðskiljanlegur holdgervingur í samfelldri sögu Ísraelíta sem eru ein þjóða jarðar sem býr í sama landi, ber sama heiti, talar sama tungumál og tilbiður sama Guð og þjóðin hefur gert umliðin 3-4þúsund ár.
Undanfarnar sjö vikur hafa fjölmiðlar haldið úti stöðugum fréttaflutningi um stríðsástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Margir velta réttilega fyrir sér hvers vegna engin langtímalausn hafi fundist á þessari leiðu deilu og sitt sýnist hverjum um hver beri höfuðsökina.
Efnt hefur verið til listaverkauppboðs sem fram fer á samfélagsmiðlinum Instagram, til styrktar Palestínu. Meðal listamanna sem gefa verk sín í uppboðið eru Tolli Morthens og Kristín dóttir hans, Leifur Ýmir og Sólveig Pálsdóttir.
Friðurinn á Gasa er úti eftir að ísraelsher gerði loftárásir á Rafah borg í suðurhluta Gasa strandarinnar í morgun.