
Bandaríkin

Segir Kelly hafa smitað sig af herpes og neytt sig til að gangast undir þungunarrof
Tónlistarmaðurinn R. Kelly nauðgaði 17 ára stúlku, skipaði henni að gangast undir þungunarrof og smitaði hana af herpes, vitandi að hann var sjálfur smitaður. Þetta kom fram við réttarhöld yfir söngvaranum í gær.

Fresta geimgöngu vegna veikinda annars geimfarans
Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur frestað geimgöngu tveggja geimfara um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni vegna veikinda annars þeirra. Veikindin eru þó ekki sögð alvarleg.

Kathy Hochul ríkisstjóri New York fyrst kvenna
Kathy Hochul sór embættiseið í nótt og varð þar með fyrst kvenna til að verða ríkisstjóri New York. Hún tekur við af Andrew Cuomo, sem sagði af sér í kjölfar fjölda ásakana um kynferðisbrot.

Leiðtogi Proud Boys í fimm mánaða fangelsi
Leiðtogi bandaríska hægriöfgahópsins Proud Boys var í gær dæmdur í rúmlega fimm mánaða fangelsi fyrir að ólöglegan vopnaburð og að brenna Black Lives Matter fána sem liðsmenn hópsins höfðu stolið.

Þrýst á Biden að fresta brottför þrátt fyrir hótanir Talíbana
Leiðtogar sjö helstu iðnríkjaheims, G-7, funda í dag. Joe Biden forseti Bandaríkjanna er undir miklum þrýstingi frá Bretum, Frökkum og Þjóðverjum að seinka brottför hersveita sinna frá flugvellinum í Kabúl, höfuðborg Afganistans, til að hægt verði að koma fleirum út úr landinu.

Bandaríski flugherinn æfir við Ísland næstu daga
Þrjár bandarískar herflugvélar af gerðinni Northrop B-2 Spirit komu til landsins í kvöld og verða hér við æfingar næstu daga.

Ísland enn í hæsta áhættuflokki hjá CDC
Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, CDC, uppfærði lista á ferðaráðssíðu sinni í dag. Ísland er enn í hæsta áhættuflokki og er Bandaríkjamönnum því áfram alfarið ráðið frá ferðalögum til landsins.

Hæsti maður Bandaríkjanna er látinn
Igor Vovkovinskiy, hávaxnasti maður Bandaríkjanna lést í Minnesota á föstudag. Hann var 38 ára gamall og 234,5 sentímetrar á hæð.

Fyrst svartra kvenna til að bera Tiffany demantinn
Beyoncé er fyrst svartra kvenna til að fá að bera hinn víðfræga 128,54 karata Tiffany demant. Tónlistarkonan ber demantinn um hálsinn í nýrri auglýsingaherferð Tiffany & Co skartgripaverslunarinnar, þar sem hún situr fyrir ásamt eiginmanni sínum Jay-Z.

Talibanar voru komnir til Kabúl mánuðum áður en borgin féll
„Í byrjun júlí hitti ég einn herforingja Talibana. Ég spurði hvenær hermenn hans myndu koma til Kabúl. Hann svaraði: Þeir eru hérna nú þegar.“

Bóluefni Pfizer fær fullt markaðsleyfi í Bandaríkjunum
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt alfarið notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech við kórónuveirunni í Bandaríkjunum. Hingað til hefur bóluefnið verið notað í skjóli neyðarleyfis. Talið er að ákvörðunin gæti hvatt fleiri Bandaríkjamenn til að láta bólusetja sig.

Telja ekki að árásin á þinghúsið hafi verið þaulskipulögð
Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar segjast hafa fundið fáar vísbendingar um að árás hóps stuðningsmanna Donalds Trump á bandaríska þinghúsið í janúar hafi verið skipulögð til þess að snúa við úrslitum forsetakosninganna í nóvember.

Talíbanar segja ekki koma til greina að fresta brottför erlendra hersveita
Talibanar segja ekki koma til greina að framlengja þann frest sem allt herlið NATO þjóða hefur að vera hverfa á brott frá Afganistan, það er til 31. ágúst, eða á þriðjudag í næstu viku.

Don Everly er fallinn frá
Bandaríski tónlistarmaðurinn Don Everly, annar Everly-bræðranna, er látinn, 84 ára að aldri. Talsmaður fjölskyldu Everly staðfesti í samtali við bandaríska fjölmiðla um helgina að hann hafi andast í Nashville á laugardaginn, en gaf ekki upp um dánarorsök.

Ákvörðunin um að yfirgefa Afganistan byggð á „hálfvitalegum“ pólitískum frasa
Ákvörðun Bandaríkjamanna um að yfirgefa Afganistan var röng og drifin af „hálfvitalegum“ pólitískum frasa um að binda enda á svokölluð „eilífðarstríð“ (e. forever wars). Þetta segir Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.

Þúsundir án rafmagns og milljónir í viðbragðsstöðu
Rúmlega 120 þúsund heimili í norðausturhluta Bandaríkjanna eru án rafmagns eftir að hitabeltisstormurinn Henri gekk yfir Rhode Island.

Gripið til aðgerða til að flýta brottflutningi fólks
Joe Biden forseti Bandaríkjanna segir að gripið hafi verið til aðgerða til að flýta flutningi flóttafólks frá Afganistan og hafi bandarískar hersveitir útvíkkað öryggissvæði í kring um flugvöllinn í Kabúl í því augnamiði.

Minnst 22 látnir eftir flóð í Tennessee
Minnst 22 hafa látist í flóðum eftir fordæmalausar rigningar í Humphrey-sýslu í miðju Tennessee-fylki í Bandaríkjunum. Margra er enn saknað en flóðin fóru víða yfir vegi og felldu síma- og fjarskiptamöstur í gær. Í mörgum tilfellum hefur fólk því ekki náð sambandi við ástvini sína til að athuga hvort sé í lagi með þá.

Hræðast að íslamska ríkið ráðist á flugvöllinn í Kabúl
Bandaríkin hafa varað ríkisborgara sína við því að vera í nálægð við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl. Þau hræðast nú að armur hryðjuverkasamtakanna, sem kenna sig við íslamskt ríki, í Afganistan beini spjótum sínum að flugvellinum.

Minnst átta látnir vegna fellibyls í Mexíkó
Minnst átta hafa látist svo vitað sé í fellibylnum Grace í austurhluta Mexíkó. Miklar hitabeltisrigningar og vindar hafa orðið til þess að víða er rafmagnslaust og flóð eru víða.

Greiddu mútur svo R. Kelly gæti gifst 15 ára stúlku
Fyrrverandi tónleikaskipuleggjandi söngvarans R. Kelly viðurkenndi fyrir rétti í gær að hann hefði mútað opinberum starfsmanni til að falsa skilríki söngkonunnar Aaliyah þegar hún var 15 ára svo Kelly gæti gifst henni. Þau töldu þá að hún væri orðin ólétt eftir hann.

Dæmd fyrir hatursglæp fyrir að keyra á tvö þeldökk börn
Kona frá Iowa hefur verið dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að hafa framið hatursglæp. Konan gerðist sek um tilraun til manndráps gegn tveimur börnum af afrískum eða miðausturlenskum uppruna með því að keyra á þau viljandi. Konan hélt að börnin væru frá Mexíkó.

Fjöldi fasteignapappíra inniheldur enn rasísk ákvæði
Yfirvöld og samtök víðsvegar í Bandaríkjunum vinna nú að því að auðvelda einstaklingum að fá rasískar klásúlur í fasteignapappírum numdar brott.

Kylie Jenner á von á barni
Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er ólétt. Þau Travis Scott eiga von á sínu öðru barni samkvæmt heimildum People.

Handtekinn í gær grunaður um morðið á liðsfélaga fyrir fimmtán árum
Ameríski fótboltamaðurinn Bryan Pata var myrtur 7. nóvember 2006 en enginn hafði verið handtekinn fyrir morðið. Það er þar til í gær.

Efast um þörfina á örvunarskömmtum
Efasemdaraddir eru uppi á meðal heilbrigðisvísindamanna um þörfina á því að gefa fólki örvunarskammta af bóluefni gegn kórónuveirunni. Ekki sé ljóst að virkni efnanna gegn alvarlegum veikindum minnki með tímanum og þá sé brýnna að bólusetja þá sem hafa enn ekki verið bólusettir víðsvegar um heim.

Starfsmaður sakar Britney um að hafa slegið til sín
Bandaríska söngkonan Britney Spears er nú til rannsóknar hjá lögreglu í Kaliforníu eftir að starfsmaður á heimili söngkonunnar sakaði hana um að hafa slegið til sín.

Delta mallar og breiðist hratt út í Flórída
Delta afbrigði kórónuveirunnar er í mikilli og vaxandi útbreiðslu í Flórída í Bandaríkjunum. Þannig voru 532 Covid-sjúklingar á Babtista sjúkrahúsum í ríkinu á miðvikudag, tvöfalt fleiri en þegar veiran fór á flug í júlímánuði.

Sér ekki hvernig hefði verið hægt að komast hjá ringulreið á flugvellinum
Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að það sé vel hugsanlegt að bandarískir hermenn verði lengur í Afganistan en til 31. ágúst ef ekki hefur tekist að koma öllum Bandaríkjamönnum úr landinu fyrir þann tíma. Hann sér ekki hvernig hægt hefði verið að komast hjá ringulreið á flugvellinum í Kabúl síðasta mánudag.

Sagði R. Kelly vera rándýr
Saksóknari í máli bandaríska tónlistarmannsins R. Kelly dró upp mynd af honum sem algjöru rándýri sem krafðist yfirráða yfir þeim fjölmörgu kvenna og stúlkna undir lögaldri sem hann er sakaður um að hafa brotið á.