Brexit

Neita að birta skýrslu um afskipti Rússa fyrir kosningar
Umfangsmiklar deilur standa nú yfir meðal stjórnmálamanna í Bretlandi vegna leynilegrar skýrslu sem gerð var um afskipti Rússa af stjórnmálum þar í landi.

Býður ekki fram þar sem Íhaldsmenn unnu síðast
Nigel Farage segir að flokkur hans muni ekki bjóða fram í þeim 317 kjördæmum þar sem Íhaldsflokkurinn vann sigur í kosningunum 2017. Þingkosningar fara fram í Bretlandi 12. desember næstkomandi.

Segir Brexit hafa verið verstu mistökin frá seinna stríði
Fyrrverandi forseti breska þingsins kallaði Brexit í dag stærstu mistök Bretlands í utanríkismálum frá seinna stríði.

Réttur til áframhaldandi búsetu tryggður sama hvernig fer
Nýja samkomulagið gerir Íslendingum og Bretum áfram kleift að flytjast milli ríkjanna til að stunda atvinnu eða nám og fá dvalarleyfi sem gilda í að minnsta kosti 36 mánuði.

Boris biðst afsökunar á Brexit frestun
Boris Johnsson, forsætisráðherra Bretlands og formaður Íhaldsflokksins hefur beðist afsökunar á því að Bretum hafi ekki tekist að ganga úr Evrópusambandinu fyrir síðustu mánaðamót eins og stefnt hafði verið að.

Nigel Farage mun ekki bjóða sig fram
Farage stofnaði flokkinn í apríl á þessu ári og mun áfram beita sér í kosningabaráttunni.

Farage gerir Johnson tilboð
Brexitflokkurinn býður sig nú í fyrsta skipti fram í þingkosningum og mælist með um ellefu prósenta fylgi.

Bretar hvattir til að kjósa taktískt í þingkosningum
Þingkosningar fara fram í Bretlandi fimmtudaginn 12. desember og vonast er til að afgerandi þingmeirihluti náist fyrir einhverri tillögu en ekki sundrað þing eins og nú er.

Líkti forseta þingsins við Scarface og tennisboltavél í kveðjuræðu
John Bercow hefur vakið mikla athygli fyrir tilþrif í þinginu. Boris Johnson forsætisráðherra kvaddi hann með gamansömum hætti í ræðu í gær.

Leggja línurnar fyrir kosningabaráttuna
Breskir stjórnmálamenn leggja nú línurnar fyrir kosningar. Hagfræðingur hjá fréttaveitunni Bloomberg segist búast við því að Íhaldsflokkurinn sigri og sigli útgöngunni úr Evrópusambandinu í höfn.

Samþykktu þingkosningar 12. desember
Afgerandi meirihluti í neðri deild breska þingsins samþykkti að flýta þingkosningum í samræmi við tillögu Boris Johnson, forsætisráðherra.

Útlit fyrir að breska þingið samþykki kosningatillögu Johnsons
Breska þingið ræðir nú um enn eina tillögu ríkisstjórnarinnar um að boða til þingkosninga. Sú breyting hefur orðið frá því í gær að stjórnarandstaðan styður tillöguna.

Bale veit ekki hver forsætisráðherra Bretlands er
Gareth Bale veit ekkert um Boris Johnson eða Brexit.

Verkamannaflokkurinn klár í kosningar
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, lýsti því yfir nú fyrir hádegið að Verkamannaflokkurinn muni styðja tillögu um þingkosningar þann tólfta desember.

Reynir enn á ný að boða til kosninga
Boris Johnson forsætisráðherra Breta ætlar að reyna enn á ný í dag að fá þingmenn til að samþykkja kosningar þann 12. desember næstkomandi.

Breska þingið hafnar tillögu Johnson um snemmbúnar kosningar
Meirihluti fékkst ekki á breska þinginu fyrir tillögu forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, um að boða til þingkosninga 12. desember næstkomandi.

Samþykktu þriggja mánaða frestun Brexit
Aðildarríki Evrópusambandsins hafa samþykkt að fresta útgöngu Bretlands úr ESB til 31. janúar 2020.

Afgerandi forskot Íhaldsflokksins í aðdraganda atkvæðagreiðslu
Sextán prósentustigum munar á Íhaldsflokknum og Verkamannaflokknum, stærsta stjórnarandstöðuflokknum.

Réttað yfir fyrrverandi IRA-liða vegna morða
Réttað verður yfir fyrrverandi IRA-liða vegna sprengjuárásar á tvo hermenn árið 1972. Eftir friðarsamkomulagið 1998 var 200 IRA-liðum heitið friðhelgi. Mál Downeys og útganga Bretlands úr ESB er vatn á myllu öfgahópa í landinu.

ESB samþykkir að fresta Brexit og Johnson berst fyrir kosningum
Evrópusambandið hefur samþykkt að fresta útgöngu Bretlands. Ekki verður ákveðið fyrr en eftir helgi hversu lengi útgöngu verður frestað.

Ræða um lengd nýs frests til að veita Bretum
Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins ræða nú hversu langan frest á útgöngu úr sambandinu Bretum verði boðinn.

Johnson vill kosningar í desember
Búist er við því að Evrópusambandið samþykki á morgun að fresta útgöngu Bretlands um þrjá mánuði. Breski forsætisráðherrann ætlar að beita sér fyrir því að kosið verði í Bretlandi í desember.

Sjálfri sér verst
Hér skal ósagt látið hversu oft þau hafa heyrst orðin sem Bogi Ágústsson lét nýverið falla í fréttatíma RÚV:

Útlit fyrir að ESB samþykki frestun
Útlit er fyrir að Evrópusambandið samþykki beiðni Bretlandsstjórnar um að fresta útgöngu. Forsætisráðherra Breta vill þó enga frestun fá.

Vill nýjar kosningar verði Brexit frestað enn og aftur
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að sækjast eftir nýjum þingkosningum ef forsvarsmenn Evrópusambandsins samþykkja að fresta úrgöngu Bretlands til loka janúar.

Enn einn steinninn lagður í Brexit-götu Johnsons
Breska þingið hafnaði rétt í þessu tillögu ríkisstjórnarinnar um að ráðstafa næstu þremur dögum í að klára umræðu um nýjan útgöngusamning.

Dregur Brexit-frumvarp til baka samþykki þingið ekki tímaáætlun
Forsætisráðherra Bretlands segir að ef þingmenn myndu hafna áætlun stjórnarinnar og ESB samþykkir frestun á útgöngu fram yfir 31. október, myndi hann þrýsta á um að boðað verði til nýrra þingkosninga í landinu.

Þingið greiðir ekki atkvæði aftur um Brexit-samning Johnson
Forseti þingsins telur tillögu sem Johnson vildu greiða atkvæða um efnislega þá sömu og þingmenn tóku afstöðu til um helgina.

Atkvæði greidd um nýja samninginn
Boris Johnson vill láta reyna á aðra atkvæðagreiðslu í þinginu.

Hafa enn trú á Brexit í lok mánaðar
Breska ríkisstjórnin hefur enn ekki útilokað að hægt verði að standa við útgöngu landsins úr ESB 31. október næstkomandi eins og stefnt hefur verið að.