Eldgos og jarðhræringar

Verðum að vera búin undir gos í Grímsvötnum
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir ekki ljóst að það muni gjósa í Grímsvötnum, en þó séu nokkrar líkur á því.

Hrun í miðri sprungu dró manninn með sér
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir mál mannsins sem talinn er hafa fallið ofan í við sprunguinnfyllingu vera bakslag fyrir Grindvíkinga. Þetta segir hann í viðtali við Stöð 2 í dag.

Óvissustigi lýst yfir vegna Grímsvatna
Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir af ríkislögreglustjóra í samráði við Lögreglustjórann á Suðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Fluglitakóði færður á gulan lit
Vegna jökulhlaups og aukinnar skjálftavirkni í Grímsvötnum verður fluglitakóði fyrir eldstöðina færður á gulan lit, í samræmi við það að eldstöðin sýni merki um virkni umfram venjulegt ástand.

„Við erum bæði sorgmædd og slegin“
Bæjarstjóri Grindavíkur segir bæjarbúa bæði vera sorgmædda og slegna eftir atburði gærdagsins og yfirstandandi leit að manni, sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í bænum. Hugur allra Grindvíkinga sé hjá aðstandendum mannsins.

Líkurnar meiri en minni á gosi í Grímsvötnum
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir meiri líkur en minni á því að eldgos hefjist í Grímsvötnum á næstunni. Þau sýni öll merki þess. Jökulhlaup er hafið úr Grímsvötnum.

Sjá merki um óróa
Vísbendingar eru um að jökulhlaup sé hafið í Grímsvötnum. Náttúruvársérfræðingar fylgjast með stöðunni en þeir hafa í morgun séð merki um hlaupóróa.

Stór skjálfti í grennd við Grímsvötn
Nokkuð öflugur skjálfti reið yfir í morgun í Grímsvötnum en upptök hans voru um þrjá og hálfan kílómetra norðaustur af Grímsfjalli í Vatnajökli.

Mikið vatn í djúpri sprungunni
„Leit stendur yfir, maðurinn er ekki fundinn,“ sagði Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í morgun um leitina að manninum sem er talinn hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í gær. Mikið vatn er í sprungunni að hans sögn.

Lægðin hefur áhrif á mælana
Líkur á eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum aukast stöðugt, að mati jarðeðlisfræðings. Ekki sé sjálfgefið að atburðarásin verði með sama hætti og síðast. Veður hefur áhrif á mæla á svæðinu þessa dagana og náið er fylgst með vefmyndavélum.

Bæjarstjórn fundaði í Grindavík í fyrsta sinn síðan í október
Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði í Grindavík í dag í fyrsta skipti síðan í lok október. Forseti bæjarstjórnar segir innviði líta betur út en þau þorðu að vona og segir uppbyggingu varnargarða ganga hratt fyrir sig.

Blendnar tilfinningar fylgja opnun fiskvinnslunnar í Grindavík
Hjól atvinnulífsins eru smám saman farin að snúast í Grindavík, þrátt fyrir yfirvofandi hættu á eldgosi nálægt bæjarmörkunum. Framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækis, sem opnaði í dag í fyrsta sinn frá rýmingu, segir tilfinningarnar blendnar.

Búin að fá allar viðvaranir sem munu koma
Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna, segir fregnir af því að rúmmál kvikunnar á Reykjanesskaga sé orðið svipað og fyrir síðasta gos, breyta stöðunni.

Fólk geri ráð fyrir að geta yfirgefið Grindavík í flýti
Prófessor í jarðeðlisfræði segir að þeir sem kjósi að dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn mjög hratt. Rúmmál kviku er svipað og í aðdraganda gossins í desember. Ef til eldgoss kæmi sé ekki hægt að útiloka að gossprungur opnist innan bæjarmarkanna.

Segir líkur á gosi ef til vill mestar við Krísuvík
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir dreif af grunnum og nokkrum dýpri skjálftum á svæðinu umhverfis Krísuvík geta verið merki um stórt lárétt kvikuinnskot. Ef svo sé geti það verið fimmtíu til eitthundrað ferkílómetrar. Líkurnar á eldgosi séu ef til vill mestar þar, segir hann.

„Líf í Grindavík ætti að færast nær eðlilegum skorðum“
Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði, telur varnargarða sem hafa verið reistir á Reykjanesskaga koma að góðum notum, bæði fyrir Grindavíkurbæ, sem og Bláa lónið og Svartsengi.

Flökunarvélarnar settar í gang á morgun í fyrsta sinn í tvo mánuði
Afli af grindvísku bátunum Gísla Súrssyni GK og Vésteini GK var slægður í morgun en á morgun verða flökunarvélar Einhamars Seafood í Grindavík svo settar af stað í fyrsta sinn í tvo mánuði.

Land rís enn og áfram talið líklegast að gjósi
Land rís áfram jafnt og þétt við Svartsengi og það er mat náttúruvársérfræðinga að líklegast sé að þessi atburður endi með gosi líkt og gerðist þann 18. desember. Tugir skjálfta mælast á svæðinu á hverjum sólarhring.

Segir „forkastanlegt“ að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum
„Að mínu mati er þetta bara forkastanlegt; að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum,“ segir Grindvíkingurinn Hilmar Gunnarsson um viðbrögð innviðaráðherra við viðtali við Gunnar í Bítínu á Bylgjunni í síðustu viku, þar sem hann sagði hluta Grindvíkinga á leið í þrot.

Enn mælist landris við Svartsengi
Enn mælist landris við Svartsengi með svipuðum hraða og undanfarna daga samkvæmt GPS gögnum Veðurstofunnar.

Bláa lónið opnar á morgun
Bláa lónið opnar aftur á morgun. Allar rekstrareiningar lónsins opna í fyrramálið fyrir utan hótelin Silica og Retreat og veitingastaðinn Moss sem verða lokuð út mánudag.

Sundhnúkagígaröð „langlanglíklegasta“ upptakasvæði eldgoss
Í uppfærðu hættumatskorti Veðurstofunnar eru líkur á eldgosi við Svartsengi lækkaðar úr töluverðum líkum í nokkrar. Jarðeðlisfræðingur segir að breytingin sé fyrst og fremst til marks um að öll gögn bendi til að það verði eldgos á Sundhnjúkagígaröð.

Kóðinn færður aftur niður á grænan
Fluglitakóðinn fyrir Grímsvötn hefur aftur verið færður niður í grænan eftir að hafa verið færður upp í gulan seinnipartinn í gær. Töluvert hefur dregið úr skjálftavirkni á svæðinu.

Vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp
Enn hægist á landrisi við Svartsengi, en það er vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp og þar með aukist líkur á nýju kvikuhlaupi og eldgosi. Þetta kemur fram í uppfærslu frá Veðurstofu Íslands, en þar segir að ekki sé útilokað að það dragi úr kvikuinnflæði.

Ráðherra eigi að vita betur en að kalla ákvörðunina óskiljanlega
Innviðaráðherra segir ákvörðun lífeyrissjóða um að fella ekki niður vexti og verðbætur Grindvíkinga óskiljanlega. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir að ráðherra eigi að vita betur.

Gos í Grímsvötnum líklega í vændum
Búast má við gosi í Grímsvötnum á næstu dögum eða vikum að mati eldfjallafræðings. Fluglitakóði yfir eldstöðinni var færður á gult í gær vegna óvenjulegrar skjálftahrinu en gosmökkurinn gæti haft áhrif á flugumferð.

Óskiljanlegt að lífeyrissjóðir taki ekki utan um Grindvíkinga
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, segir stjórnvöld hafa staðið í þeirri trú að lífeyrissjóðir myndu fylgja fordæmi bankanna og standa með lántakendum sínum í Grindavík. Hann segir illskiljanlegt hvers vegna einstaka lífeyrissjóðir taki ekki utan um einstaka lántaka.

Skjálftinn þýði lítið sem ekki neitt
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir ekki tímabært að ræða varnargarða við bæinn þrátt fyrir að eldfjallafræðingar segja það skynsamlegast. Jarðeðlisfræðingur segir stóran skjálfta sem varð í gær, í raun og veru þýða lítið sem ekki neitt.

Fluglitakóði færður í gulan yfir Grímsvötnum
Fluglitakóðinn fyrir Grímsvötn hefur verið færður upp í gulan eftir að sex skjálftar yfir einum mældust á einum klukkutíma nærri Grímsvötnum. Skjálftahrinan byrjaði rétt rúmlega fjögur í dag og var stærsti skjálftinn um 1,6 að stærð.

Ekki tímabært að ræða varnargarða í Hafnarfirði
Sviðsstjóri almannavarna segir það ótímabært að fara að reisa varnargarða við Hafnarfjörð líkt og eldfjallafræðingar hafa kallað eftir. Unnið er að hættumati vegna eldgosahættu fyrir allt höfuðborgarsvæðið.