Rætt um endurkomu Kristins 15. febrúar 2005 00:01
Stjórn þingflokks Framsóknarflokksins hefur átt í viðræðum við Kristin H. Gunnarsson að undanförnu um að hann endurheimti fyrri stöðu í nefndum Alþingis. Búist er við að það dragi til tíðinda á sérstökum þingflokksfundi í kvöld. Formaður þingflokksins segir þó eingöngu um reglubundinn kvöldverðarfund þingflokksins að ræða. Stjórn þingflokks Framsóknarflokksins hefur undanfarið átt í viðræðum við Kristin H. Gunnarsson um stöðu hans innan flokksins. Þetta er í framhaldi af ályktun kjördæmisþings framsóknarmanna þann 7. nóvember þar sem þingflokkurinn var hvattur til að leysa þann ágreining sem uppi hefði verið þannig að allir þingmenn flokksins hefðu eðlilega aðstöðu til starfa. Þingmenn kjördæmisins voru jafnframt hvattir til að taka höndum saman kjördæminu til heilla. Kristinn H Gunnarsson staðfesti í samtali við fréttastofu að rætt hefði verið um að undanförnu að hann endurheimti sína fyrri stöðu innan flokksins. Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, vildi hins vegar ekki staðfesta að málefni Kristins H. Gunnarssonar yrðu sérstaklega til umræðu á fundinum í kvöld. Hann sagði að öll málefni þingflokksins yrðu rædd. Allir þingmenn flokksins hefðu verið að ræða saman eins og þeir gerðu reglulega og væri nauðsynlegt þegar fólk ynni saman. Aðpurður hvort búast mætti við að Kristinn endurheimti stöðu sína í nefndum fyrir Framsóknarflokkinn ítrekaði Hjálmar að framsóknarmenn hefðu rætt saman og svo væri bara að sjá hvað framtíðin bæri í skauti sér.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Innlent Margeir stefnir ríkinu Innlent Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Erlent Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Innlent Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Innlent „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Pallborðið: Hvalveiðafár og skóla- og heilbrigðismál Innlent Fleiri fréttir Hundruð umsókna frá bændum vegna tjóns í kuldatíð í vor og sumar Margeir stefnir ríkinu Þakplötur fuku af hlöðu í Aðaldal Setja hundrað milljónir í barnavernd í Mosó Skora á Alþingi að bæta stöðu Kvikmyndasjóðs Enginn formlegur sáttafundur í tíu daga Leikskólakennarar á Nesinu fjölmenntu til fundar við bæjarstjóra Búast má við frekari vegalokunum þegar byrjar aftur að rigna Samgöngur og neysluvatn að komast í samt lag Pallborðið: Hvalveiðafár og skóla- og heilbrigðismál Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Femínistar ævareiðir út í Þórð Snæ Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Reyna að hreinsa vatnsbólið á Flateyri eftir hádegi Búið að opna veginn um Ísafjarðardjúp Engin bein tilmæli um breytingar á meðan endurskoðun stendur Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Foreldrafélag MR segist virða kröfur kennara en gagnrýnir verkfall Vegir enn lokaðir á Vestfjörðum Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Sjá meira