Olíukaupmenn vilja leigja 10 risatankskip sem geymslupláss 7. janúar 2009 13:23
Olíukaupmenn vilja leigja 10 risatankskip sem geymslupláss undir olíu. Þar með yrði magn olíu sem geymt er í tankskipum á sjó jafnmikið og nemur 5 daga heildarnotkun allra landa innan Evrópusambandsins. Í frétt um málið á Bloomberg-fréttaveitunni segir að um 25 tankskip, sem hvert um sig getur borið 2 milljónir tunna af olíu, séu nú þegar í leigu sem geymslupláss undir olíu. Ef 10 tankskip bætast í hópinn muni það þýða að 7% af öllum olíutankskipaflota heimsins sé notaður sem geymslupláss. Ástæðan fyrir þessum áhuga olíukaupmanna á að leigja tankskipin er einfaldlega að heimsmarkaðsverð á olíu er lágt um þessar mundir og kaupmennirnir reikna með að það fari hækkandi þegar líður á árið. Mánaðarleiga á risatankskipi samsvarar nú 90 sentum á hverja olíutunnu, að vísu mismunandi eftir lengd leigusamningsins. Hinsvegar er reiknað með að verðið á olíutunnunni fari úr núverandi tæpum 50 dollurum á tunnuna og í yfir 70 dollara í desember n.k..
Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Viðskipti innlent Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Viðskipti innlent Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira