Innlent

Vilja leikskólaúrræði strax að loknu fæðingarorlofi

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir er er fyrsti flutningsmaður tillögu um að foreldar eigi kost á því að koma barni sínu fyrir á leiksskóla strax að loknu fæðingarorlofi.
Svandís Svavarsdóttir er er fyrsti flutningsmaður tillögu um að foreldar eigi kost á því að koma barni sínu fyrir á leiksskóla strax að loknu fæðingarorlofi. Mynd/Anton
Svandís Svavarsdóttir er fyrsti flutningsmaður þingályktartillögu um að foreldrar eigi kost á því að koma barni sínu fyrir á leiksskóla strax að loknu fæðingarorlofi. Skipa á nefnd um málið.

Miðað verði við að þegar fæðingarorlofið hefur verið lengt í 12 mánuði árið 2016 verði sveitarfélög um landið reiðubúin að veita þjónustuna. Nefndin skili tillögum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2014.

Í tillögunni kemur fram að margoft hafi verið rætt á opinberum vettvangi um þá staðreynd að yngstu börnin eiga að jafnaði ekki kost á að njóta þeirra gæða sem leikskólinn hefur upp á að bjóða. Þetta stafar af því að milli loka fæðingarorlofs, sem nú stendur í 9 mánuði, og þar til leikskóladyr ljúkast upp fyrir börnum getur liðið alllangur tími, enda algengt að leikskólar sveitarfélaganna veiti börnum ekki viðtöku fyrr en þau eru orðin 18–24 mánaða gömul. Foreldrar og forráðamenn ungbarna hafa því þurft að leita annarra leiða, sem oftast felast í því að vista börnin hjá dagmæðrum eða á einkareknum ungbarnaleikskólum.

Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - grænt framboð hafa ítrekað lagt áherslu á mikilvægi leikskólastigsins, bæði á þingi og í sveitarstjórnunum, og lagt fram mál þess efnis að skólastigið verði gjaldfrjálst og skilgreint sem hluti grunnþjónustu sem íbúar njóti óháð búsetu.

„Mjög mikilvægt er að samhliða þeirri breytingu verði létt af ungbörnum og foreldrum þeirra óvissunni sem nú ríkir um dagvistunarmál þessa aldurshóps með því móti að sveitarfélögin sjái til þess að leikskólar þeirra standi ársgömlum börnum opnir. Einungis með því móti er unnt að tryggja að velferðar- og uppeldismarkmið samfélagsins nái fram að ganga,“ segir í þingsályktunartillögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×