Borgarfulltrúinn S. Björn Blöndal og bæjarfulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn sambandsins, Gunnar Axel Axelsson, settu fyrirvara við umsögnina á síðasta stjórnarfundi sambandsins. Eru þeir ósammála umsögninni sem undirrituð er af Karli Björnssyni, framkvæmdastjóra sambandsins.

Þessu eru fulltrúar Reykjavíkur og Hafnarfjarðar ekki sammála. Nýlegt dæmi um flutning Fiskistofu sýni að vald ráðherra í þessum efnum sé of mikið.
„Við settum fyrirvara við þessa umsögn. Við teljum ekki rétt að ráðherra geti einn síns liðs ákveðið að flytja stofnun sem undir hann heyrir án þess að leita til Alþingis með ákvörðun sína. Við teljum það mikilvægt að upplýst umræða um staðsetningu, og eftir því sem við á, flutning stofnana eigi sér stað innan sala Alþingis frammi fyrir opnum tjöldum,“ segir S. Björn Blöndal. „Í því samhengi bendum við á ákvörðun sjávarútvegsráðherra um flutning Fiskistofu.“
Gunnar Axel segir þessa umsögn ganga of langt að sínu mati. „Rökstuðningur sambandsins er á þá leið að þetta sé í samræmi við samþykkta stefnumörkun þess sem sé að stuðla að vexti opinberra starfa um allt land. Ég tel of langt gengið í túlkun á þeirri stefnumörkun,“ segir Gunnar Axel. „Ef menn hafa ekkert að óttast þá ættu svona ákvarðanir, sem eru gríðarlega stórar og varða fjölda einstaklinga, að fara fyrir Alþingi og löggjafarvaldið að taka ákvörðun um þessi mál. Menn verða að átta sig á því að það er stórkostlegt inngrip í stjórnsýsluna að flytja stofnun með manni og mús landshorna á milli.“
Ellefu sveitarstjórnarfulltrúar sitja í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fimm þeirra eru af höfuðborgarsvæðinu en sex stjórnarmenn utan af landi.