Michael Edwards: Maðurinn á bakvið velgengni Liverpool sem enginn veit hver er Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. júlí 2020 12:00 Hér má sjá Edwards (upp í hægra horninu) fagna því þegar Liverpool vann Meistaradeild Evrópu á síðasta ári. Vísir/Athletic
Fyrir utan hörðustu stuðningsmenn Englandsmeistara Liverpool þá kannast ef til vill ekki margir við nafnið Michael Edwards. Árangur Liverpool undanfarin ár er að mörgu leyti ákvörðunum Edwards að þakka. Daniel Taylor og Adam Crafton hjá The Athletic fóru í saumana á uppgangi Michael Edwards og hvernig hann landaði stöðu sinni hjá ríkjandi Evrópu- og Englandsmeisturum. Er hann í dag yfirmaður knattspyrnumála hjá þessu fornfræga félagi. Edwards spilaði stórt hlutverk í ákvörðun Liverpool að ráða Jürgen Klopp sem þjálfara á sínum tíma. Einnig á hann stóran þátt í því að félagið festi kaup á leikmönnum á borð við Mohamed Salah, Roberto Firmino, Sadio Mané, Alisson og Virgil van Dijk. Virgil van Dijk og Jürgen Klopp.Getty/Andrew Powell Það er meira og minna þessum leikmönnum, sem og Klopp, að þakka að 30 ára eyðimerkurgöngu Liverpool er lokið og liðið er loks orðið Englandsmeistari. „Við eigum í góðu sambandi. Við erum ekki alltaf sammála þegar við byrjum að ræða hlutina en á endanum erum við nokkurn veginn á sömu blaðsíðu,“ sagði Klopp um samband sitt við Edwards. Til að mynda var það Edwards sem nánast heimtaði að Liverpool myndi fjárfesta í Salah en Klopp vildi frekar kaupa hinn þýska Julian Brandt frá Bayer Leverkusen. Klopp þekkti leikmanninn frá tíma sínum með Dortmund og vissi hvað hann gæti. Þjálfarinn hafði einnig áhyggjur af því hvort Salah gæti staðið sig í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa átt erfitt uppdráttar hjá Chelsea. Á endanum fékk Edwards sínu framgengt og Salah var keyptur fyrir tæpar 37 milljónir punda árið 2017. Það var á þeim tíma það mesta sem Liverpool hafði eytt í leikmann. Liverpool sér ekki eftir þeim kaupum í dag. Þá má ekki gleyma Andy Robertson en Edward – eða Eddie eins og hann er kallaður – var sannfærður um að skoski bakvörðurinn myndi spila enn betur í betra liði. Hann var keyptur frá Hull City og hefur blómstrað í rauðri treyju Liverpool. Edwards er samt sem áður vel falinn á bakvið tjöldin. Svo vel falinn að hann á ekki einu sinni sína eigin Wikipedia-síðu. „Hann er ekki þinn klassíski yfirmaður knattspyrnumála. Þú sérð hann sjaldan í jakkafötum og hann er mjög afslappaður, “ segir gamla brýnið Harry Redknapp. Edwards var leikgreinandi þegar ´Arry var þjálfari liðsins á sínum tíma. Edwards lék á sínum tíma með yngri liðum og varaliði Peterborough United áður. Fékk ekki samning hjá aðalliðinu þegar hann var 18 ára og ákvað því að gerast kennari. Hann hefur þó alltaf haft mikinn áhuga á tölum og tölfræði. Þegar það var ljóst að Liverpool væri orðið Englandsmeistari tók Tom Werner, formaður Liverpool, upp símann og sendi smáskilaboð þar sem hann óskaði fólki til hamingju með titilinn. Sá fyrsti til að fá slík skilaboð var Edwards. Edwards, Klopp og Mike Gordon, forseti FSG, á góðri stundu.Vísir/Athletic Þar á eftir kom Klopp en það er ljóst að Liverpool á honum mikið að þakka. Sama á við um Edwards sem var hluti af teyminu sem ákvað að ráða Þjóðverjann. Klopp var einn af þremur þjálfurum sem Liverpool skoðaði eftir að Brendan Rodgers var látinn fara. Hinir tveir voru Eddie Howe og Carlo Ancelotti. Ferilskrá Ancelotti talar sínu máli en Edwards var ekki viss um að Ítalinn gæti unnið eftir þeim fjárhagsáætlunum og skilyrðum sem honum yrðu settar á Anfield. Hugmyndin var sú að þjálfari liðsins myndi ekki eiga lokaorðið þegar kæmi að kaupum og sölum leikmanna, til að byrja með allavega. Howe var á þessum tíma einn áhugaverðasti þjálfari Bretlandseyja og jafnvel var talið að hann yrði næsti landsliðsþjálfari Englands. Þá hafði Howe verið leikmaður Portsmouth þegar Edwards vann þar en það skipti litlu máli þegar loks kom að því að velja rétta manninn í starfið á Anfield. Það var ekki nóg að velja rétta manninn á hliðarlínuna heldur þurfti að velja réttu mennina á völlinn sjálfan. Af þeim 18 leikmönnum sem voru í leikmannahópi Liverpool í fyrsta leik liðsins undir stjórn Klopp eru aðeins þrír eftir. James Milner, Adam Lallana og Divock Origi. Það er nær ómögulegt að koma áhrifum Edwards á umbreytingu leikmannahóps félagsins í orð. Ekki nóg með að hann hafi verið á bakvið flest þeirra frábæru kaupa sem Liverpool hefur gert þá hefur honum tekist að selja leikmenn fyrir mun meiri pening en margur hefði haldið að væri hægt. Philippe Coutinho fór til Barcelona á 142 milljónir punda. Sá peningur var svo nýttur í að fjárfesta í Alisson og Virgil van Dijk. Síðustu púslunum í meistaraliði Klopp. Leikmenn á borð við Jordan Ibe og Brad Smith seldir fyrir samtals 21 milljón punda. Hull City keypti Kevin Stewart – leikmann sem undirritaður hefur aldrei heyrt um - á átta milljónir eða jafn mikið og Liverpool borgaði Hull fyrir Robertson. Mamadou Sakho fór til Crystal Palace á 26 milljónir punda og markvörðurinn Danny Ward fór til Leicester City á tólf og hálfa milljón punda. Edwards er þó ekki allra. Brendan Rodgers, forveri Klopp á Anfield, þoldi hann ekki og vildi losna við hann sem og félagaskiptanefnd félagsins sem Edwards var hluti af á sínum tíma. Rodgers treysti ekki dómgreind Edwards og hafði til að mynda engan áhuga á að fá Roberto Firmino til liðsins á sínum tíma. Edwards, með sitt blæti fyrir tölum, lagði tölfræðina einfaldlega á borðið og sýndi fram á að allir eiginleikar Firmino gætu nýst Liverpool. Edwards keyrði söluna í gegn en Rodgers vissi ekkert hvar ætti að spila framherjanum skemmtilega. Endaði hann því út á hægri væng liðsins fyrst um sinn. Klopp hins vegar virðist treysta Edwards fyrir lífi sínu. Þeir eru meira en bara samstarfsfélagar. Skrifstofur þeirra eru beint á móti hvor annarri og þá spila þeir skvass saman í hverju hádegi. The first person Tom Werner text when Liverpool won the PL Recommended #LFC go for Klopp over Ancelotti & Howe Spends lunchtimes playing paddle tennis with 'kindred spirit' Klopp Former IT teacher who was released by Peterborough at 18 @DTathletic & @AdamCrafton_— The Athletic UK (@TheAthleticUK) June 30, 2020 Sama hvað gerist upp úr þessu er ljóst að Klopp verður í guðatölu hjá stuðningsmönnum Liverpool næstu áratugina ef ekki aldirnar. Hvað Edwards varðar þá virðist hann bara sáttur með að hafa áhrif á bakvið tjöldin.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Loksins lét Neville aftur sjá sig og óskaði Liverpool til hamingju Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports, hefur ekki farið mikinn eftir að Liverpool varð enskur meistari í fyrsta sinn í þrjátíu ár í síðustu viku en nú er hann kominn aftur fram á sjónarsviðið. 1. júlí 2020 08:30 Klopp segir Liverpool ekki þurfa né vilja eyða mörgum milljónum í leikmenn Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að liðið geti ekki eytt tugum milljóna í nýja leikmenn í sumar og segir enn fremur að hann þurfi þess ekki. 30. júní 2020 10:00 „Liverpool er fimm árum á undan Manchester United“ Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Liverpool, segir að félagið sé fimm árum á undan erkifjendum sínum í Manchester United. 29. júní 2020 12:30 Frumkvöðlarnir Salah og Mané Sadio Mané og Mohamed Salah, tveir af lykilmönnum Liverpool, hafa skráð sig rækilega í sögubækurnar með því að verða Englandsmeistarar. 26. júní 2020 11:00 Klopp brotnaði niður fyrir framan Dalglish og hrósaði honum og Steven Gerrard Liverpool varð í gær enskur meistari í fyrsta sinn í 30 ár. Eftir að Manchester City missteig sig gegn Chelsea á útivelli varð ljóst að ekkert lið getur náð Liverpool í ár og liðið því orðið meistari. 26. júní 2020 07:31 „Ótrúlegt afrek hjá leikmönnum mínum“ „Þetta er ótrúlegt,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri nýkrýndra Englandsmeistara Liverpool í fótbolta, eftir að titillinn var í höfn í kvöld. 25. júní 2020 21:54 Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport Fleiri fréttir Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Sjá meira
Loksins lét Neville aftur sjá sig og óskaði Liverpool til hamingju Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports, hefur ekki farið mikinn eftir að Liverpool varð enskur meistari í fyrsta sinn í þrjátíu ár í síðustu viku en nú er hann kominn aftur fram á sjónarsviðið. 1. júlí 2020 08:30
Klopp segir Liverpool ekki þurfa né vilja eyða mörgum milljónum í leikmenn Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að liðið geti ekki eytt tugum milljóna í nýja leikmenn í sumar og segir enn fremur að hann þurfi þess ekki. 30. júní 2020 10:00
„Liverpool er fimm árum á undan Manchester United“ Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Liverpool, segir að félagið sé fimm árum á undan erkifjendum sínum í Manchester United. 29. júní 2020 12:30
Frumkvöðlarnir Salah og Mané Sadio Mané og Mohamed Salah, tveir af lykilmönnum Liverpool, hafa skráð sig rækilega í sögubækurnar með því að verða Englandsmeistarar. 26. júní 2020 11:00
Klopp brotnaði niður fyrir framan Dalglish og hrósaði honum og Steven Gerrard Liverpool varð í gær enskur meistari í fyrsta sinn í 30 ár. Eftir að Manchester City missteig sig gegn Chelsea á útivelli varð ljóst að ekkert lið getur náð Liverpool í ár og liðið því orðið meistari. 26. júní 2020 07:31
„Ótrúlegt afrek hjá leikmönnum mínum“ „Þetta er ótrúlegt,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri nýkrýndra Englandsmeistara Liverpool í fótbolta, eftir að titillinn var í höfn í kvöld. 25. júní 2020 21:54