Uppgjörið: Breiðablik - KR 3-3 | Stórleikurinn stóðst væntingarnar Árni Jóhannsson skrifar 5. maí 2025 18:30 Breiðablik - KR skildu jöfn í frábærum fótboltaleik sem sveiflaðist til og frá í 90 mínútur. Vísir / Diego Íslandsmeistarar Breiðabliks náðu að bjarga stigi með marki í uppbótartíma eftir frábæran fótboltaleik gegn KR í 5. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust Blikar tveimumr mörkum yfir í seinni hálfleik. KR tók forystuna en Blikar jöfnuðu á 92. mínútu. Frábær fótboltaleikur. Luke Rae mundar fyrirgjafarfótinn.Vísir / Diego Leikurinn byrjaði á þeim nótum sem allir bjuggust við. Liðin spiluðu hugrakkan fótbolta en mál manna var að Blikar hefðu verið ívið betri í fyrri hálfleik. Blikar voru meira með boltann og komu boltanum tvisvar í net KR en í bæði skiptin var búið að flauta og mörkin töldu ekki. KR fann líka sín svæði en eins og hjá Blikum var ákvarðanataka ekki alveg nógu góð og markverðirnir stóðu sína plikt vel. Það var ótrúlegt að enn væri markalaust í hálfleik. Það átti hinsvegar eftir að breytast. Breiðablik mættu mikið kröftugri út í síðari hálfleikinn og eftir níu mínútna leik þá brast stíflan og var það Tobias Thomsen sem skoraði eftir stoðsendingu frá Anton Loga Lúðvíkssyni. Breiðablik fagna öðru af tveimur mörkum Tobias Thomsen eftir stoðsendingu Antons Loga Lúðvíkssonar.Vísir / Diego Hornspyrna var tekin fljótt og boltanum komið á Anton sem lyfti boltanum á fjærstöng þar sem Tobias var einn og óvaldaður og skallaði boltann í netið við mikinn fögnuð. Sex mínútum seinna var sama tvíeyki aftur á ferðinni. KR tapaði boltanum og töldu Blika hafa brotið á sér og átt að vera dæmdir rangstæðir. Antoni og Tobias var alveg sama og Tobias lyfti boltanum snyrtilega yfir Halldór Georgsson í markinu sem kom út á móti. Þar með hélt undirritaður að þetta væri komið því takturinn var enginn í KR. Það var rangt. KR gerði skiptingu þar sem Alexander Helgi Sigurðarson kom inn á og honum fylgdi kraftur. Á 67. mínútu minnkaði Eiður Gauti Sæbjörnsson muninn eftir fyrirgjöf Luke Rae með skalla á fjærstöng. Í kjölfarið gerðu KR aðra skiptingu og Hjalti Sigurðsson kom inn á. Honum fylgi enn meiri kraftur. Boltinn í netinu eftir skalla Eiðs Gauta.Vísir / Diego KR jafnaði metin fjórum mínútum síðar og voru það varamennirnir sem léku sín á milli og endaði það með því að Alexander lagði boltann á Jóhannes Kristinn Bjarnason sem hamraði boltann í netið, óverjandi fyrir Anton í markinu. Á þessum tímapunkti var eins og Blikar vissu ekki sitt rjúkandi ráð og KR náði að ganga enn lengra á lagið. Á 81. mínútu var viðsnúningurinn fullkomnaður þegar Finnur Tómas Pálmason stangaði knöttinn í netið eftir fyrirgjöf Hjalta Sigurðarsonar. KR-ingar fagna því að hafa komist yfir. Sú víma átti ekki eftir að endast.Vísir / Diego Breiðblik vaknaði og fór að þjarma að gestunum sem þó fengu sín tækifæri og úr varð æsilegur lokakafli. Breiðblik sendi Kristófer Inga Kristinsson á völlinn á 88. mínútu og fjórum mínútum síðar var hann búinn að jafna metinn eftir að Blikar náður að sprengja upp rangstöðugildru KR-inga. Kristófer smurði boltanum í hliðarnetið fyrir innan fjærstöngina og allt ærðist. Heimamenn náðu í boltann úr netinu og reyndu að vinna leikinn.Vísir / Diego Skömmu síðar var flautað til leiksloka og bæði lið þurftu að sætta sig við jafnan hlut. Ég hugsa að báðir þjálfarar geti verið ánægðir með frammistöðuna hjá sínum mönnum en stigi ekki fleiri en eitt. Enn eru þess vegna þriggja stiga munur á liðunum í þriðja og fjórða sæti. Jóhannes Kristinn Bjarnason skannar völlinn.Vísir / Diego Atvik leiksins Í leik þar sem voru fjölmörg atvik sem hægt er að smjatta á þá veljum við skiptingar liðanna. Eftir að KR lenti 2-0 undir komu Alexander Helgi Sigurðarson og Hjalti Sigurðsson inn og með þeim kom aukinn kraftur í leik KR sem voru ráðavilltir í upphafi seinni hálfleiks. Leikurinn snerist við en þá gerðu Breiðablik skiptingu og Kristófer Ingi Kristinsson sem kom inn á bjargaði stigi fyrir heimamenn. Stjörnur og skúrkar Þetta var frábær fótboltaleikur. Mörk, vafaatriði, kraftur, spenna og fjör og lítið um skúrka á vellinum. Nóg var af stjörnum en markmenn liðanna t.a.m. komu í veg fyrir fleiri mörk hjá hvoru liði fyrir sig. Tobias Thomsen skoraði tvö mörk, Anton Logi Lúðvíksson var með tvær stoðsendingar og Kristófer var bjargvættur. Anton Ari átti nokkrar stórgóðar vörslur í kvöld. Hér ver hann frá Luke Rae í dauðfæri.Vísir / Diego Hjá KR var Luke Rae skeinuhættur, varnarmenn KR stóðu sína plikt ágætlega, Eiður Gauti var mikið vandamál fyrir varnarlínu Blika og Jóhannes Kristinn Bjarnason var góður á miðjunni ásamt því að skora mark. Svona til að nefna eitthvað. Halldór Snær Georgsson átti einnig ansi margar frábærar vörslur. Hér bjargar hann marki frá Höskuldi Gunnlaugss.Vísir / Diego Umgjörð og stemmning Allt upp á 10 hjá Blikum í umgjörðinni og stemmningin frábær. Yfir 1700 manns komu á völlinn og gamla stúkan opin. Báðar fylkingar voru duglegar að hvetja sín lið sem gerði frábæran fótboltaleik enn betri. Dómararnir Jóhann Ingi Jónsson, Birkir Sigurðarson og Patrik Freyr Guðmundsson sáu um framkvæmd leiksins og sluppu ágætlega frá honum. Þetta var erfiður leikur að dæma. Mikið af vafaatriðum og enginn virtist vera ánægður með störf Jóhanns Inga í dag. Línan skekktist líka örlítið í leiknum en ég hugsa að það hafi skipst jafnt á milli liða og því ekki hægt að kvarta of mikið. Jóhann Ingi og félagar stóðu í ströngu í rúmar 90 mínútur í kvöld.Vísir / Diego Viðtöl: Óskar: Karakterinn mikilvægastur, rými til bætingar í spilamennskunni Óskar Hrafn var að mæta á Kópavogsvöll í fyrsta sinn síðan hann hætti sem þjálfari Breiðabliks.vísir / diego Óskar Hrafn Þorvaldsson var einstaklega ánægður með karakter og hugarfar sinna manna í leik kvöldsins. Gaf þeim tíu í einkunn fyrir það en aðeins sjö fyrir fótboltann sem liðið spilaði. Í leik eins og þessum sagði Óskar að Eiður Gauti væri mikilvægasti maður liðsins. „Fyrst og fremst er ég auðvitað bara mjög stoltur af liðinu, sagði við þá inni í klefa eftir leik að þeir byggju yfir mikilvægasta hráefninu sem þú getur haft þegar þú ert að búa til lið. Sem er að vita ekki hvenær þú átt að gefast, vita ekki hvenær þú ert í vonlausri stöðu. Þeir héldu áfram og áfram og áfram… Við spiluðum okkar leik, alls ekki allt sem heppnaðist, eðlilega þar sem við erum að spila á móti Íslandsmeisturunum á heimavelli. Þeir eru alltaf að fara gera þér lífið erfitt, en það er bara svo mikill karakter í þessu liði…“ KR skoraði þrjú mörk á korteri og komst yfir. Hefðuð þið getað haldið áfram að keyra á Blikana, gengið frá þeim? „Já við hefðum það og mér fannst við alveg eiga möguleika á því en auðvitað þegar menn eru búnir hlaupa í níutíu mínútur vantar aðeins upp á ákvarðanatökur á síðasta þriðjung… Við ætluðum að skora fjórða markið, það var markmiðið, en því miður fengum við á okkur fjórða markið í andlitið… Það hefði verið meiriháttar að fá þrjú stig úr þessari frammistöðu, en úrslitin verða að vissu leiti aukaatriði þegar þú upplifir þetta sem við sáum hérna. Karakterinn í liðinu, við verðum ekki sigraðir, það er ekki að fara að gerast og það er ég rosalega ánægður með.“ Mikilvægasti leikmaður KR? Óskar var næst spurður út í Eið Gauta Sæbjörnsson, styrkinn sem hann býr yfir og allt sem hann gefur liðinu. Hvort hann væri mögulega bara mikilvægasti leikmaður KR liðsins í dag. „Já í svona leik eins og þessum. Þar sem svæðin eru frekar framar heldur en aftar. Það var tilgangslaust að reyna að halda boltanum þarna niðri þegar svæðin voru nálægt honum og fyrir framan hann. Eiður var algjörlega frábær í dag, við sáum það fyrir tveimur vikum að Ásgeir Helgi og Viktor pökkuðu saman Andra Rúnari og Emil Atla, en þeir áttu í miklum vandræðum með Eið Gauta í dag… Sá hefur heldur betur unnið sig í þetta og hann er feykilega mikilvægur fyrir okkur.“ 10 fyrir karakter, 7 fyrir fótboltann Í viðtali fyrir leik talaði Óskar um próf fyrir sína menn, gegn besta liði landsins. Hann var því spurður hvað liðið fengi í einkunn úr þessu prófi. „Ef við skiptum þessu í tvennt þá fá þeir 10 fyrir karakter og hugarfar en kannski 7 fyrir fótboltann sem við spiluðum. Mér finnst við eiga mikið inni þar…“ sagði Óskar að lokum. Halldór Árnason: Við þurfum að vera sterkari Breiðablik - KR Besta Deild Karla Vor 2025Vísir / Diego „Sem hlutlaus aðdáandi hefði ég sagt að þetta hafi verið frábær leikur sem þetta var að sjálfsögðu“, sagði þjálfari Breiðabliks Halldór Árnason þegar hann var beðinn um að gera upp æsilegt jafntefli sinna manna við KR í kvöld. Leikurinn endaði 3-3 þar sem heimamenn náðu að bjarga stigi á lokamínútunum en þeir misstu niður tveggja marka forskot. „Ég er bara hundfúll að vinna ekki leikinn. Við þurfum bara að vera harðari þegar lið fara í þetta. Þeir fara auðvitað að beita löngum boltum upp á Eið Gauta og í gegnum Luke. Eðlilega verandi tveimur mörkum undir og engu að tapa. Þeir gerðu það virkilega vel og þessu fylgdi alvöru barátta og karakter og ég veit ekki hvort að við héldum að þetta væri komið. Við hættum að blokka fyrirgjafir en þeir skora tvö mörk eftir fyrirgjafir- og fráköst eftir föst leikatriði þar sem það er heppni hvar boltinn dettur. Við verðum að passa að slökkva ekki á okkur. Í langan tíma fannst mér við spila gríðarlega við. Við pressuðum stíft og þeir komust lítt áleiðis og við með stjórn og við fengum góð færi og hefðum átt að vera búnir að klára leikinn með þessum tveimur mörkum sem við skorum. Svo eru þeir að fá horn eftir að vera að koma boltanum upp völlinn að sjálfsögðu. Við þurfum að vera sterkari“, hélt Halldór áfram til að reyna að gera upp leikinn. Það virtist vera heil eilífð síðan en boltinn fer í netið í fyrri hálfleik og var Halldór beðinn um álit á þeim atriðum og hvort hann hefði skoðun á dómurum leiksins. „Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur. Þetta er örugglega rétt. Við verðum bara að tímasetja hlaupin betur og velja þau betur. Ekkert út á dómarana að setja.“ Lokamínúturnar voru æsilegar og Halldór var spurður hvort að hann teldi að Breiðablik hefði getað náð í sigurmarkið. „Við ætluðum okkur það náttúrlega. Við sækjum boltann og reynum hvað við getum. Við vissum það eftir því hvernig leikurinn hafði þróast að KR ætlaði frekar að sækja fjórða markið en að verja forskotið. Hrósum þeim fyrir það en við náðum að nýta okkur það og þetta hefði alveg getað sveiflast í hina áttina.“ Besta deild karla Breiðablik KR
Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Íslenski boltinn