Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 4-2 | Mörkum í öllum regnbogans litum rigndi í Garðabæ Hjörvar Ólafsson skrifar 18. júní 2025 21:46 vísir/Diego Stjarnan lagði Keflavík að velli 4-2 þegar liðin áttust við í feykilega fjörugum leik í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur en Jóhann Árni Gunnarsson og Benedikt Warén voru nálægt því að koma heimamönnum yfir á fyrsta stundarfjórðungnum. Það var því gegn gangi leiksins sem Eiður Orri Ragnsson kom gestunum úr Keflavík eftir korters leik. Kári Sigfússon sendi þá boltann fyrir og Eiður Orri kláraði færið sitt af stakri prýði. Sóknarþungi Stjörnuliðins bar síðan loksins árangur þegar Emil Atlason jafnaði metin eftir 26 mínútna leik með stórglæsilegu marki. Stjörnumenn fengu þá aukaspyrnu rétt utan vítateigs og Emil gerði sér lítið fyrir og smurði boltann upp í samskeytin fjær. Keflavík náði forystunni aftur sex mínútum síðar þegar Ásgeir Páll Magnússon skallaði boltann í netið af stuttu færi. Aftur gekk Keflavík illa að halda forskoti sínu þar sem Jóhann Árni var búinn að jafna á nýjan leik tveimur mínútum síðar. Alex Þór Hauksson gerði þá vel að vinna boltann á hættulegum stað og Emil Atlason lagði boltann fyrir fætur Jóhanns Árna sem skoraði með föstu og hnitmiðuðu skoti. Benedikt Warén kom svo Stjörnunni yfir skömmu fyrir lok fyrir hálfleiks eftir laglegan samleik við Örvar Loga Örvarsson og staðan eftir fjörugan og skemmtilegan fyrri hálfleik var 3-2 Stjörnunni í vil. Örvar Logi róaði svo taugar stuðningsmanna Stjörnunnar þegar hann kom liðinu í 4-2 í upphafi seinni hálfleiks. Örvar Logi sem skoraði síðast í maí árið 2023 tók boltann á lofti og lét skotið ríða af með hægri fæti. Boltinn þandi netmöskvana og söng í samskeytunum. Lokatölur 4-2 fyrir Stjörnuna sem er þar af leiðandi komin í undanúrslit keppninnar. Örvar Logi Örvarsson, vinstri bakvörður Stjörnunnar, skoraði sjaldséð mark. Vísir/Viktor Freyr Örvar Logi: Þarf greinilega að fara að skjóta meira „Það var mjög skemmtilegt að spila þennan leik, sérstaklega fyrri hálfleik. Það var mjög gott flæði í sóknarleiknum hjá okkur og áttum margar góðar sóknir. Við sýndum karakter eftir að hafa lent tvisvar sinnum undir og brugðumst við vel við mörkunum sem við fengum á okkur,“ sagði Örvar Logi sáttur að leik loknum. „Ég hélt að ég væri rangstæður þegar ég lagði upp markið fyrir Benedikt en sem betur fer var það ekki. Við tengdum vel saman í þessu marki eins og við gerðum oftar í leiknum og þetta var huggulegt mark,“ sagði þessi sóknarþenkjandi bakvörður. „Markið sem ég skoraði var svo afar langþráð eftir tveggja ára bið. Það var góð tilfinning að sjá boltann inni. Ég þarf greinilega að skjóta meira og hætta að hugsa bara um koma liðsfélögunum í færi. Nú fer skotunum klárlega að fjölga hjá mér í framhaldinu,“ sagði Örvar Logi léttur. Sindri Snær: Sóttum á þá af fullum krafti „Við mættum þeim af fullum krafti og freistuðum þess að sækja til sigurs. Það er betri tilfinning að labba af velli með tap á bakinu eftir að hafa farið all in og gert allt sem mögulegt var til þess að ná í sigur en að hafa legið í vörn og vonað það besta,“ sagði Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur. „Fyrri hálfleikurinn var mjög flottur hjá okkur heilt yfir af en við gerðum okkur seka um mistök tvisvar sinnum og vorum þar af leiðandi undir í hálfleik. Við komum svo flatir inn í seinni hálfleik og misstum aðeins dampinn eftir að þeir skoruðu fjórða markið,“ sagði Sindri Snær enn fremur. „Við gerðum svo áhlaup undir lok leiksins og áttum góðan korters kafla þar sem við hefðum getað hleypt spennu í leikinn með marki. Ég fékk meðal annars fínt færi en við náðum ekki að koma okkur inn í leikinn með því að minnka muninn. Þrátt fyrir tapið þá getum við byggt á þessari öflugu spilamennsku í komandi leikjum í deildinni,“ sagði hann. Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur, gekk stoltur frá borði. Mynd/Keflavík Atvik leiksins Það litu kvöldsins ljós tvö mörk úr efstu hillu í þessum bráðskemmtilega bikarleik. Emil og Örvar Logi glöddu báðir auga með stórglæsilegum skotum sínum. Emil er vanari að vera á skotskónum en Örvar Logi dró sína markaskó fram í fyrsta skipti í rúm tvö ár. Stjörnur og skúrkar Örvar Logi lagði í púkkinn bæði stoðsendingu og mark. Jóhann Árni átti góðan leik inni á miðsvæðinu, var mikið í boltanum og kórónaði frammistöðu sína með smekklegu marki. Benedikt Warén var sprækur á vinstri kantinum en hann nældi í aukaspyrnuna sem Emil skoraði úr og skoraði svo sjálfur. Sindri Kristinn Ólafsson varði nokkrum sinnum vel í marki Keflavíkur og verður ekki sakaður um þetta tap. Sindri Snær Magnússon stóð sig svo vel sem akkeri inni á miðsvæðinu. Kári Sigfússon skapaði nokkrum sinnum usla í vörn Stjörnuliðsins Dómarar leiksins Dómarar leiksins, Arnar Þór Stefánsson, Egill Guðvarður Guðlaugsson, Patrik Freyr Guðmundsson og Helgi Mikael Jónasson áttu fremur náðugt kvöld og dæmdu leikinn bara prýðilega. Létu leikinn flæða vel og það fór lítið fyrir þeim. Sú dómgæsla færir þeim átta í einkunn fyrir vel unninn störf. Stemming og umgjörð Fínasta stemming í Garðabænum í kvöld og bæði lið fengu fínan stuðning úr stúkunni. All tupp á tíu í umgjörð við blaðamenn eins og vanalega hjá Stjörnufólki. Mjólkurbikar karla Stjarnan Keflavík ÍF
Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 4-2 | Mörkum í öllum regnbogans litum rigndi í Garðabæ Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 4-2 | Mörkum í öllum regnbogans litum rigndi í Garðabæ Íslenski boltinn