Leik lokið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Sigurður Bjartur Hallsson, hér á ferð gegn sínu gamla liði KR, skoraði stórkostlegt mark í dag.
Sigurður Bjartur Hallsson, hér á ferð gegn sínu gamla liði KR, skoraði stórkostlegt mark í dag. vísir/Anton

FH-ingar komu sér úr fallsæti og upp í 7. sæti Bestu deildar karla í fótbolta í dag, að minnsta kosti tímabundið, með 2-0 sigri gegn Vestra í Kaplakrika.

Sigurður Bjartur Hallsson skoraði fyrra mark FH og var það stórglæsilegt eins og sjá má hér að neðan. Björn Daníel Sverrisson bætti svo við seinna markinu með skalla í seinni hálfleik.

Vestramenn sitja áfram í 3. sæti með 19 stig, fimm stigum meira en FH, en gætu nú misst Stjörnuna og Val upp fyrir sig.

Uppgjörið úr Kaplakrika kemur hér inn innan skamms...

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira