Upp­gjörið: Fram - ÍBV 2-0 | Sann­gjarn sigur heima­manna

Hörður Unnsteinsson skrifar
Vuk Oskar Dimitrijevic í dauðafæri
Vuk Oskar Dimitrijevic í dauðafæri Vísir/Diego

Fram og ÍBV mættust á Lambhagavellinum í dag og lauk leiknum með 2-0 sigri heimamanna í kaflaskiptum leik.

Það var fínasta veður til knattspyrnuiðkunnar í Úlfarsárdalnum í dag og mætingin hefði að ósekju mátt vera betri í stúkuna. Eyjamenn fóru betur af stað í leiknum í dag en það voru Framarar sem skoruðu fyrsta markið á 17. mínútu í sinni fyrstu alvöru sókn. Már Ægisson komst þá upp að endamörkum hægra megin og gaf hættulega sendingu fyrir markið, boltinn skoppaði ekki af einum heldur tveimur Eyjamönnum áður en hann féll fyrir Frey Sigurðsson sem að kláraði færið vel á nærstöng. 1-0 fyrir Fram, eilítið gegn gangi leiksins.

Markið var talsvert högg fyrir Eyjamenn og það tók þá talsverðan tíma að ná sér. Framarar gengu á lagið og bættu öðru marki við á 28. mínútu. Ef það fyrsta var heppni, þá var það síðara heldur betur gæðamikið. Vuk og Fred spiluðu fallegan þríhyrning upp við vítateiginn og Vuk braust inn á teiginn og lagði boltann fyrir fætur Jakob Byström. Skot hans var varið en hann náði frákastinu sjálfur og setti boltann þægilega í netið. Staðan í hálfleik 2-0 fyrir heimamenn.

Síðari hálfleikur var tíðindalítill framan af. Framarar drógu sig til baka og freistuðu þess að halda fengnum hlut. Eyjamenn áttu nokkrar álitlegar sóknir en gekk erfiðlega að brjóta sterka vörn Fram á bak aftur. Hættulegasta færi Eyjamanna í síðari hálfleik kom á 83 mínútu þegar aukaspyrna Felix Arnar Friðriksonar fór beint á kollinn á Milan Tomic sem skallaði boltann að marki. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst Sigurjóni Rúnarssyni hins vegar að bjarga á línu með því að skalla boltann í þverslánna og þaðan í Nökkva Má Nökkvason sem var svo dæmdur fyrir brot á vítateignum. Þar fór besta færi Eyjamanna til að gera lokamínúturnar spennandi. 

Framarar áttu nokkrar álitlega skyndisóknir í síðari hálfleiknum en þeim tókst ekki að gera sér mat úr þeim, og þar við sat. Tveggja marka sigur heimamanna staðreynd.

Atvik leiksins

Fyrsta mark Fram kom gegn gangi leiksins á 17. mínútu og sló Eyjamenn utan undir. Þeir náðu engum takti í fyrri hálfleiknum eftir markið og Framarar gengu á lagið og sýndu gæði sín fram á við í öðru markinu.

Stjörnur og skúrkar

Vuk og Fred sýndu flotta takta á köflum, eins var Simon Tibbling flottur inn á miðju Framara. Rúnar Kristinsson hrósaði hins vegar frammistöðu Más Ægissonar mest eftir leik og sagði hann óþreytandi í hlaupum sínum með og án bolta. Hann var maður leiksins að mínu mati.

Dómarar

Gunnar Oddur hafði góð tök á leiknum. Hann þurfti ekki mikið að grípa inn í, en þegar þess þurfti var það fumlaust og fagmannlegt. Framarar gerðu tilkall til vítaspyrnu í síðari hálfleiknum þegar Vuk Óskar féll niður í teig Eyjamanna. Ég hygg að Gunnar verði sáttur að hafa ekki flautað vítaspyrnu þegar hann sér það atvik aftur.

Stemming og umgjörð

„Þú dast víst“ sungu Framarar nokkrum sinnum þegar þeim fannst Eyjamenn falla full auðveldlega. Textabrotið var sungið við hið sögufræga lag „Du Hast“, með þýsku þungarokkshljómsveitinni Rammstein frá árinu 1997. Stórt prik fyrir frumleika þar.

Fámennt í stúkunni en aðdáendur Fram létu mjög vel í sér heyra. Umgjörðin frábær og þessi aðstaða sem Framarar hafa komið sér upp hér í Úlfarsárdal er algjör draumur í dós. Greinilega félag á uppleið.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira