
Úthluta þingsætum á föstudaginn
Landskjörstjórn mun koma saman næstkomandi föstudag til að að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir nýafstaðnar Alþingiskosningar.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Landskjörstjórn mun koma saman næstkomandi föstudag til að að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir nýafstaðnar Alþingiskosningar.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emerítus, er meðal fjölmargra sem rýnt hefur í þá stöðu sem upp er komin vegna talningaklúðurs í Norðvesturkjördæmi. Prófessorinn hefur lagt málin niður fyrir sig og sér ekki betur en að kerfið sé í hnút.
Enn eru að koma í ljós annmarkar á framkvæmd kosninganna í Norðvesturkjördæmi að mati frambjóðanda sem undirbýr kæru til Alþingis á hendur kjörstjórnarinnar. Hann vonast til þess að pólitískir hagsmunir nýkjörinna þingmanna komi ekki í veg fyrir að kæran fái sanngjarna meðferð í þinginu.
Landskjörstjórn hefur ekki fengið staðfestingu frá yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi um að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningastað í kjördæminu hafi verið fullnægjandi.
Stóra málið í samtölum formanna stjórnarflokkanna þriggja er ekki hver hreppir forsætisráðherrastólinn, að sögn Sigurðar Inga Jóhannsson, formanns Framsóknarflokksins. Samstarf undir forystu Katrínar Jakobsdóttur hafi verið gott en ný hefjist nýtt kjörtímabil.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja að hægt sé að gera mjög góða hluti fyrir landið með Vinstri grænum og Framsóknarflokki. Nýtt kjörtímabili sé þó nýtt upphaf og breytingar gætu vel orðið á ríkisstjórn þeirra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ekki gott fyrir Ísland að fjöldi erlendra fjölmiðla hafi flutt fréttir af þingmeirihluta kvenna skömmu áður en endurtalning breytti óvænt stöðunni með áberandi hætti.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir niðurstöður kosninganna skýrar. Framsókn, Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum sé treyst til stjórnarmyndunar en formenn flokkanna komu saman á funduðu í Stjórnarráðinu í dag.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ólíklegt sé að ráðuneytum verði aftur skipt á milli aðildarflokka ríkisstjórnarinnar eins og gert var eftir síðasta kjörtímabil.
Nýir þingflokkar ríkisstjórnarinnar komu saman, hver í sínu lagi, í morgun og stefna á að hefja stjórnarmyndunarviðræður í dag eða á allra næstu dögum. Gert er ráð fyrir að þeir muni bítast um stól forsætisráðherra.
Þeir Patrekur Jaime og Bassi Maraj fóru á stúfana í fyrrakvöld, þegar spennan vegna Alþingiskosninganna stóð sem hæst. Þeim þótti miður að talningarfólk í Laugardalshöll væri látið geyma símana sína í kassa og kölluðu eftir því að fólkið yrði frelsað sem fyrst.
Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn.
Sósíalistar ætla að verða öflugasta stjórnarandstöðuaflið á kjörtímabilinu þrátt fyrir að hafa ekki náð inn á þing. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins segist örlítið feginn að geta áfram rifið kjaft utan Alþingis.
Gráglettinn kveðjupistill Brynjars Níelssonar fyrrverandi þingmanns er nú á miklu flugi á Facebook.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir niðurstöðu kosninganna óvæntustu kosningaúrslit sem hann hefur upplifað.
Samfylkingarfólk veltir fyrir sér hvað hafi eiginlega gerst í kosningunum? Óhætt er að segja að vinstri menn vita vart hvaðan á þá stendur veðrið en þeir gengu vonglaðir til kosninga eftir að skoðanakannanir höfðu gefið fyrirheit um betri tíð með blóm í haga. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir stjórnarandstöðuna einfaldlega hafa skíttapað kosningabaráttunni.
Þau Lenya Rún Taha Karim og Sigmar Guðmundsson voru öllu ánægðari með niðurstöðu kosninganna í nótt en Brynjar Níelsson. Brynjar hafði skipti við Lenyu sem þingmaður í Reykjavík en kennir henni ekki um. Enda hafi hann aldrei séð hana áður.
Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar telur ekki ólíklegt að Flokkur fólksins hafi notið góðs af kosningabaráttu Sósíalistaflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins, sem er sigurvegari kosninganna, segist maður orða sinna. Og hann hafi sagt að ef stjórnin héldi væri eðlilegast að þau sem að henni standi tali saman. Flest bendir nú til að ríkisstjórnarsamstarfið haldi.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir sigur síns flokks ekki hafa komið sér á óvart.
Konur eru nú í fyrsta sinn í sögunni í meirihluta á Alþingi Íslendinga. 33 konur voru kjörnar á þing í gær og 30 karlmaður. Í kosningunum 2017 voru 24 konur kjörnar á þing. Þetta er í fyrsta skipti í sögu Evrópu sem konur eru fleiri en karlar á lýðræðiskjörnu þingi. Svíar höfðu áður komist næst því með 47 prósenta hlut kvenna.
Eins og sakir standa eru fleiri konur en karlar inni á þingi. Ef kynjahlutföllin haldast óbreytt verður þetta í fyrsta sinn sem konur eru í meirihluta á Alþingi.
Miðað við fyrstu tölur er Flokkur fólksins að bæta verulega við sig. Eiríkur Bergmann segir flokkkinn á „rífandi siglingu“ og Ingu Sæland stefna í að verða eina af stærstu stjörnum stjórnmálanna.
Í dag voru tökur úti á Granda fyrir þættina Rob and Romesh Vs. Þeir Rob Becket og Romesh Ranganathan voru þar að leysa ýmsar þrautir og þeim til aðstoðar var kraftajötuninn Magnús Ver.
Viðbúið var að skiptar skoðanir væru milli leiðtoga stjórnmálaflokkanna um það hvort jöfnuður væri ríkjandi hér á landi, í kappræðunum á Stöð 2 í kvöld.
Engar skýrar línur komu fram varðandi ríkisstjórnarmyndun eftir kosningar í leiðtogakappræðunum á Stöð 2 í kvöld.
Landsmenn þurfa líklega að bíða langt fram á morgun eftir endanlegum niðurstöðum kosninganna um helgina. Slæm veðurspá og sögulegur fjöldi utankjörfundaratkvæða setja strik í reikninginn. Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu.
Gengið verður til Alþingiskosninga laugardaginn 25. september. Í framhaldinu munu flokkarnir þreifa hver á öðrum varðandi myndun ríkisstjórnar. Það er sannarlega ekki alltaf auðvelt og var það sannarlega ekki fyrir fjórum árum.
Ef úrslit kosninganna á laugardag verða eins og í könnun Maskínu fyrir fréttastofuna væri Sjálfstæðisflokkurinn að fá sögulega útreið með 20,6 prósent atkvæða. Flokkur forsætisráðherrans, Katrínar Jakobsdóttur, væri líka að tapa verulegu fylgi frá síðustu kosningum með 11,5 prósent. Könnun Maskínu var gerð 15.-22. september og tóku tæplega sex þúsund afstöðu.
Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum.