
Newcastle mistókst að endurheimta þriðja sætið
Newcastle og West Ham skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu 1-1 jafntefli í seinasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Newcastle og West Ham skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu 1-1 jafntefli í seinasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Manchester United vann góðan 2-1 sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag. Casemiro fékk rautt spjald í síðari hálfleik og er á leiðinni í leikbann.
Brighton og Brentford stukku upp í sjötta og sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigrum í leikjum dagsins. Brighton vann nauman 1-0 sigur gegn Bournemouth, en Brentford vann öruggan 3-0 sigur gegn botnliði Southampton.
Wolves valtaði yfir Liverpool á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikmenn Liverpool virtust heillum horfnir á löngum stundum og sigur Wolves afar sannfærandi.
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley stefna óðfluga á sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en liðið vann í dag enn einn sigurinn í Championship-deildinni.
Everton gerði sér lítið fyrir og vann 1-0 sigur á toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti leikur Everton undir stjórn knattspyrnustjórans Sean Dyche.
Graham Potter þjálfari Chelsea viðurkennir að það hafi verið erfið ákvörðun að skilja Pierre Emerick-Aubameyang eftir fyrir utan Meistaradeildarhóp Chelsea það sem eftir lifir tímabils.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, biður leikmenn liðsins um að einbeita sér að fótbolta frekar en Mason Greenwod eftir að ákæra á hendur leikmanninum var látin niður falla í gær.
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham í ensku Ofurdeildinni í fótbolta, hefur verið tilnefnd sem knattspyrnukona ársins í London.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann muni aðeins ræða um eyðslu Chelsea í janúarglugganum ef hann er með lögfræðinginn sinn sér við hlið.
Eftir rándýr kaup í janúarglugganum tók Chelsea á móti Fulham í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Meðal byrjunarliðsmanna Chelsea í kvöld var Enzo Fernandez, dýrasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, en þrátt fyrir það tókst liðinu ekki að knýja fram sigur og niðurstaðan varð markalaust jafntefli.
Gabonski framherjinn Pierre-Emerick Aubameyang er meðal þeirra leikmanna sem komst ekki í 25 manna hóp Chelsea sem má taka þátt í útsláttakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Lítil hamingja er hjá Benfica með hegðun Enzos Fernández, allavega ef marka má orð forseta félagsins.
Liverpool hefur hagnast mest allra liða í ensku úrvalsdeildinni á ákvörðunum teknum eftir skoðun á myndbandi (VAR) á þessu tímabili.
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að allar ákærur á hendur honum voru felldar niður. Hann segir mikinn létti að málinu sé lokið.
Níu stuðningsmenn Brackley Town, sem leikur í Vanarama National League North deildinni á Englandi, hafa fengið mikið lof á samfélagsmiðlum fyrir að ferðast tæplega 650 kílómetra til að styðja liðið.
Nýliðar Nottingham Forest eru búnir að semja við ganverska landsliðsmanninn Andre Ayew um að leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood mun hvorki æfa né spila með Manchester United fyrr en félagið hefur lokið sinni eigin rannsókn á máli leikmannsins.
Úrslitaleikur Manchester United og Newcastle síðar í þessum mánuði mun marka tímamót á Englandi hvað áhorfendur snertir.
Raphael Varane tilkynnti í dag að hann væri hættur að spila fyrir franska landsliðið í fótbolta, þrátt fyrir að vera aðeins 29 ára gamall.
Allar ákærur á hendur Mason Greenwood hafa verið felldar niður, rúmu ári eftir að þessi 21 árs gamli leikmaður Manchester United var handtekinn grunaður um nauðgunartilraun, líkamsárás og þvingunartilburði.
Folarin Balogun skoraði þrennu fyrir Reims í frönsku deildinni í gær og er þar með orðinn markahæsti leikmaðurinn í Ligue 1.
Roy Keane hrósaði Erik ten Hag í hástert eftir að Manchester United tryggði sér sæti í úrslitum enska deildabikarsins í gær. Hann sagði að United væri betra lið eftir brotthvarf tveggja stórstjarna.
Javier Tebas, forseti La Liga – spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, segir að eyðsla enskra úrvalsdeildarfélaga ógni stöðugleika fótboltans í álfunni. Ensk lið hafa eytt fjármunum sem aldrei fyrr í janúar og er Tebas ekki sáttur.
„Auðvitað er gaman að vinna undanúrslitaleiki en fyrri hálfleikurinn var ekki frábær ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Erik Ten Hag um frammistöðu Manchester United í 2-0 sigrinum á Nottingham Forest í kvöld. Lærisveinar Ten Hag unnu fyrri leikinn 3-0 og voru komnir með annan fótinn á Wembley.
Manchester United mætir Newcastle United í úrslitum enska deildarbikarsins. Man United vann Nottingham Forest 2-0 í kvöld og einvígi liðanna því samtals 5-0.
Umboðsmaður norska framherjans Erling Braut Haaland hefur gefið út sitt mat á því hvað leikmaðurinn hans ætti að kosta ef allt væri tekið til greina.
Rio Ferdinand gefur lítið fyrir gagnrýni Pauls Merson á félagaskipti Marcels Sabitzer til Manchester United og segir að hún einkennist af vanþekkingu.
Andy Carroll er ekki á jólakortalista Eriks ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir að hann meiddi Christian Eriksen í bikarleiknum gegn Reading á laugardaginn.
Newcastle komst í gær í sinn fyrsta úrslitaleik á Wembley í 24 ár þegar liðið vann 2-1 sigur á Southampton í seinni undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum.