Jón Dagur meðal efstu manna í stoðsendingum í undankeppni EM Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp flest mörk fyrir íslenska landsliðið í undankeppni EM en riðlakeppninni lauk á þriðjudagskvöldið. Fótbolti 23. nóvember 2023 12:31
Sonur Zlatans valinn í landsliðshóp Zlatan Ibrahimovic hefur sett landsliðsskóna upp á hilluna en það gæti verið stutt í það að annar Ibrahimovic spili með sænska landsliðinu. Fótbolti 23. nóvember 2023 12:00
Þurfum söguleg úrslit: Ísland hefur aldrei unnið Ísrael Íslenska karlalandsliðið þarf að brjóta blað í sögunni til þess að tryggja sér sæti í úrslitum EM-umspilsins í mars á næsta ári. Liðið leikur undanúrslitaleik við Ísrael í mars. Fótbolti 23. nóvember 2023 11:44
Mæta Ísrael í umspilinu Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á EM 2024. Fótbolti 23. nóvember 2023 11:15
Segir af sér en vill samt halda áfram Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, tilkynnti um afsögn sína í gær en hann vildi boða til nýrra kosninga um forsetaembættið. Fótbolti 23. nóvember 2023 11:00
Utan vallar: Enginn Siggi Jóns en söguleg sigurganga fékk verðskuldað sviðsljós Lokaþáttur Skagans, heimildaþátta um sigurgöngu fótboltaliðs Skagamanna á tíunda áratugnum, fór í loftið á mánudaginn var og það má hrósa þeim sem að honum stóðu fyrir skemmtilega og fróðlega þætti. Íslenski boltinn 23. nóvember 2023 10:01
Ekkert Hátíðarlaufabrauð í ár Fótboltatímabil Höskuldar Gunnlaugssonar, fyrirliða Breiðabliks, hefur lengst um nokkra mánuði sökum þátttöku Blika í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu og því mun hann ekki geta sinnt hliðarstarfi sínu, að steikja Hátíðarlaufabrauð, fyrir komandi jólahátíð. Íslenski boltinn 23. nóvember 2023 09:30
Mikill ruglingur í kringum „síðasta dansinn“ hjá Messi og Ronaldo Fyrr í vikunni tilkynntu Sádi-Arabar að knattspyrnugoðin Lionel Messi og Cristiano Ronaldo myndu mætast í síðasta sinn á fótboltavellinum í febrúar næstkomandi en nú er komið upp babb í bátinn. Fótbolti 23. nóvember 2023 07:00
Bandarískt fjármagn streymir enn inn í enska boltann Enn ryðja Bandaríkjamenn sér til rúms í enska boltanum. Fjárfestingahópurinn Castle Sports Group, sem er í eigu Piatak fjölskyldunnar, hefur staðfest yfirtöku sína á League One liðinu Carlisle United. Enski boltinn 23. nóvember 2023 06:31
Maguire barst afsökunarbeiðni frá þingmanni Gana Isaac Adongo, þingmaður í Gana, hefur loks dregið til baka ummæli sem hann lét falla á síðasta ári um Harry Maguire, þar sem hann líkti varaforseta Gana við enska landsliðsmanninn þegar hann kom til Manchester United. Enski boltinn 22. nóvember 2023 23:01
Celtic sektaðir í þriðja sinn fyrir hegðun stuðningsmanna UEFA hefur sektað skoska knattspyrnufélagið Celtic um €29.000, sem jafngildir tæpum fjórum og hálfum milljónum króna, fyrir hegðun stuðningsmanna á leik liðsins gegn Atletico Madrid. Fótbolti 22. nóvember 2023 22:30
Brann vann en Ingibjörg fór í fýluferð Önnur umferð Meistaradeildar kvenna fór fram í kvöld. Natasha Anasi-Erlingsson kom inn á sem varamaður fyrir Brann og hélt sigurgöngu þeirra áfram en Guðrún Arnardóttir og stöllur í Rosengard máttu þola tap gegn Benfica. Ríkjandi meistarar Barcelona eru enn ósigraðar. Fótbolti 22. nóvember 2023 22:01
Reggístrákarnir mæta Bandaríkjunum í undanúrslitum Rétt í þessu var dregið í undanúrslit CONCACAF Þjóðadeildarinnar eftir að 8-liða úrslit keppninnar kláruðust í gær. Heimir Hallgrímsson mun stýra Jamaíku gegn ríkjandi meisturum mótsins, Bandaríkjunum. Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast Panama og Mexíkó. Fótbolti 22. nóvember 2023 19:31
Barnsley rekið úr FA bikarnum Enska knattspyrnusambandið hefur rekið Barnsley úr FA bikarkeppninni eftir að félagið tefldi fram ólöglegum leikmanni í endurteknum leik 1. umferðar gegn utandeildarliðinu Horsham. Enski boltinn 22. nóvember 2023 17:45
Meistararnir í neðsta styrkleikaflokki Nokkuð ljóst virðist vera hvaða andstæðinga úr neðsta styrkleikaflokki liðin vilja forðast þegar dregið verður í riðla á EM 2024 í fótbolta karla. Fótbolti 22. nóvember 2023 17:01
England tapaði fyrir Úsbekistan Margir ráku eflaust upp stór augu þegar þeir sáu úrslitin í leik Englands og Úsbekistans í sextán liða úrslitum á HM U-17 ára í fótbolta karla sem fer fram í Indónesíu. Fótbolti 22. nóvember 2023 16:01
Guðni býður sig fram til formanns KSÍ Guðni Bergsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Íslenski boltinn 22. nóvember 2023 15:40
Elísabet ekki eini Íslendingurinn sem hættir hjá Kristianstad Miklar breytingar eru í gangi hjá Íslendingaliðinu Kristianstad í Svíþjóð og Íslendingum fækkar mikið hjá félaginu á milli tímabila. Fótbolti 22. nóvember 2023 15:30
Suárez segir Núnez einn besta framherja heims Luis Suárez fór fögrum orðum um Darwin Núnez eftir að sá síðarnefndi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Úrúgvæ á Bólivíu í undankeppni HM 2026. Fótbolti 22. nóvember 2023 15:01
Þjálfari heimsmeistaranna gæti hætt Þjálfari argentínsku heimsmeistaranna, Lionel Scaloni, segir að hann gæti hætt eftir fimm ár í starfi. Hann vakti máls á þessu eftir sigurinn á Brasilíu. Fótbolti 22. nóvember 2023 14:31
Leikmenn United dauðþreyttir eftir undirbúningstímabilið Sumir leikmenn Manchester United kenna erfiðu undirbúningstímabili um slaka byrjun í vetur og mikil meiðsli í herbúðum liðsins. Enski boltinn 22. nóvember 2023 13:31
Potter hafði ekki áhuga á því að taka við sænska landsliðinu Svíar eru að leita sér að nýjum þjálfara fyrir karlalandsliðið sitt í fótbolta en Janne Andersson hætti með liðið eftir að Svíum mistókst að tryggja sér sæti á Evrópumótinu næsta sumar. Fótbolti 22. nóvember 2023 12:00
Martínez reyndi að taka kylfu af löggu Emiliano Martínez, markvörður argentínska fótboltalandsliðsins, reyndi að taka kylfu af lögreglumanni í átökunum sem brutust út fyrir leikinn gegn Brasilíu. Fótbolti 22. nóvember 2023 11:30
Messi: Þetta hefði getað endað sem harmleikur Lionel Messi var harðorður þegar hann tjáði sig um slagsmálin og aðgerðir brasilísku lögreglunnar á leik Argentínu og Brasilíu í undankeppni HM í nótt. Fótbolti 22. nóvember 2023 10:30
Kjartan Kári spilar ekki fyrir Óskar Hrafn í Noregi: Seldur til FH FH-ingar hafa gengið frá kaupum á íslenska knattspyrnumanninum Kjartani Kára Halldórssyni en norska félagið FK Haugesund staðfesti söluna í morgun. Íslenski boltinn 22. nóvember 2023 09:00
Slagsmál og reiður Messi þegar Argentína vann sögulegan sigur í Brasilíu Síðasti landsleikur Lionel Messi í Brasilíu varð sögulegur í nótt þegar Argentína vann 1-0 sigur á nágrönnum sínum og erkifjendum í undankeppni HM 2026. Messi var samt reiður eftir leikinn. Fótbolti 22. nóvember 2023 07:32
Heimir Hallgríms kom Jamaíku í undanúrslitin og inn á Copa America Jamaíska fótboltalandsliðið sló Kanada út í nótt í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar og skrifaði um leið söguna á margvíslegan hátt. Fótbolti 22. nóvember 2023 06:26
Messi og Ronaldo mætast líklega í síðasta sinn í febrúar Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, tveir af bestu knattspyrnumönnum sögunnar, munu mætast á nýjan leik er Inter Miami og Al-Nassr eigast við í vináttuleik í febrúar á næsta ári. Fótbolti 21. nóvember 2023 23:31
Fimmtán ára gömul sala Tottenham gæti komið liðinu í vandræði Fimmtán ár eru síðan framherjinn Jermain Defoe var seldur frá Tottenham til Portsmouth, en þrátt fyrir það gæti Tottenham verið í vandræðum vegna sölunnar. Fótbolti 21. nóvember 2023 23:00
Grikkir tóku stig af Frökkum og Tyrkir tóku toppsætið Alls fóru sjö leikir fram í undankeppni EM í kvöld er riðlakeppninni lauk áður en umspil tekur við í vor. Úrslitin voru þegar ráðin í flestum riðlum, en þrátt fyrir það var boðið upp á nokkur áhugaverð úrslit. Fótbolti 21. nóvember 2023 21:52