Grindavík

Grindavík

Mannfjöldi: 1.246 (2025). Flatarmál: 423 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þetta er bara einn leikur í einu“

Ellen Nyström átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld þegar þær lögðu nágranna sína af velli í Bónus deild kvenna í kvöld. Ellen Nyström endaði með tvöfalda tvennu í 89-75 sigri Grindavíkur.

Sport
Fréttamynd

Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði

Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík hóf tíma­bilið á stór­sigri

Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Mjög stór og mikil­væg niður­staða fyrir okkur“

Tilkynnt var um niðurstöður nýs endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík á þriðjudag. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýjan tón hafi verið í samtali við stjórnvöld síðustu vikur og að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka

Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum.

Innlent
Fréttamynd

„Ég átti aldrei að lifa þetta af“

Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. 

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík Ultra strandaði við varnargarðana

Fyrirhugað utanvegahlaup um Grindavík og nýja hraunið sem fara átti fram um næstu helgi hefur verið aflýst eftir að skipuleggjendum var gert ljóst að ekki mætti hlaupa eftir varnargörðunum við bæinn. Skipuleggjandi hlaupsins segir málið hafa strandað á óvissu um hver fari með eignarhald varnargarðanna og segir niðurstöðuna einkar svekkjandi.

Innlent
Fréttamynd

„Lentum á and­legum vegg að þessu sinni“

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, segir tap liðsins gegn Víkingi í Bestu-deild kvenna í fótbolta í dag vera eitt skref í þróunarferli liðsins. Liðið hafi lent á andlegum vegg í þetta skiptið. 

Fótbolti
Fréttamynd

Traust er ekki sjálf­gefið

Íslensk stjórnmál snúast þessa dagana að stórum hluta um Evrópusambandið. Við heyrum loforð um bætt lífskjör, aukið öryggi, stærri markaði og sterkari stöðu Íslands í breyttum heimi.

Skoðun
Fréttamynd

Grinda­vík á varaafli

Varaaflsvélum hefur verið komið fyrir í Grindavík vegna bilunar í Svartengislínu milli Svartengis og Rauðmels. Skerðanlegur flutningur á Vestfjörðum, Vesturlandi og Suðurlandi hefur verið skertur vegna bilunarinnar. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég er bara ein­hver skel af sjálfri mér núna“

„Ég var mjög opin og bara svona lífsglöð og ég var mjög jákvæð líka en ég er búin að gjörbreytast núna,“ segir ung kona sem þurfti að yfirgefa Grindavík þegar bærinn var rýmdur þann 10. nóvember 2023. Hún segir sjálfstraustið farið, samskipti við fólk yfirþyrmandi og að hún þekki varla sjálfa sig lengur.

Lífið
Fréttamynd

„Ég elska að vera hér“

Skólastarf hefst á ný í Grindavík í næstu viku eftir tæplega þriggja ára hlé. Skólastjóri segir að fámennur nemendahópur geri starfsfólki kleift að ná enn betur utan um börnin sem rík þörf sé á. Og krakkarnir eru hæstánægðir með að vera komnir til baka.

Innlent
Fréttamynd

„Jafn­vel betur undir­búin en margur hver“

Grunnskólastarf í Grindavík hefst á nýjan leik í næstu viku og segir bæjarstjórinn Pétur G. Markan það mikinn sigur fyrir bæjarbúa að skólastarf sé að fara af stað. Hann telur að vegna mikillar áherslu á öryggi sé starfsfólk skólans jafnvel betur undirbúið en starfsfólk annarra skóla.

Innlent