
Ungverska þingið samþykkir inngöngu Svía
Ungverska þingið hefur samþykkt lög sem heimila inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið, NATO, en Ungverjar eru síðastir til þess að samþykkja inngönguna.
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.
Ungverska þingið hefur samþykkt lög sem heimila inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið, NATO, en Ungverjar eru síðastir til þess að samþykkja inngönguna.
Andófsmaðurinn Alexei Navalní var í þann mund að verða frjáls maður þegar hann lést skyndilega í fangelsi í Rússlandi 15. febrúar síðastliðinn.
Um það bil 31 þúsund hermenn hafa fallið í átökum eftir að innrás Rússa hófst í Úkraínu. Frá því greindi forseti landsins, Volodmír Selenskíj, á viðburði í Kænugarði í dag þar sem þess var minnst að tvö ár eru frá upphafi stríðsins.
Það er mannlegt að óttast hið óþekkta. Fordómar gegn hinu óþekkta eru líka algeng og skiljanleg viðbrögð við þessum ótta en við megum ekki leyfa þeim að stjórna okkur. Við megum ekki leyfa fordómunum að varða veg mikilvægra ákvarðana því þeir byggja eðli málsins samkvæmt ekki á raunveruleikanum og staðreyndum heldur þessum tiltekna ótta við hið óþekkta.
Úkraínuforseti hvatti í dag þjóð sína til að halda áfram að berjast í stríðinu við Rússa, sem nú hefur staðið yfir í nákvæmlega tvö ár. Úkraínumenn eru í afar erfiðri stöðu í upphafi þriðja árs innrásar; vopn eru af skornum skammti og forsetinn berst fyrir framtíðarfjármögnun að utan.
Í dag eru liðin tvö ár frá því að átökin í heimalandi mínu, Úkraínu, stigmögnuðust. Að morgni 24. febrúar 2022 breyttist allt fyrir mig og alla aðra Úkraínumenn. Ég kom til Íslands sem nemi í gegnum Erasmus+ hálfu ári áður og eins og allir aðrir hafði ég alls kyns vonir, áætlanir og væntingar, en átökin eyðilögðu áætlanir allra Úkraínumanna og skildu aðeins eftir sameiginlegan draum um frið.
Eftir tveggja ára stríðsrekstur hefur Rússum vaxið ásmegin í átökunum í Úkraínu. Þeir hafa sótt fram í austurhluta landsins og eru byrjaðir á umfangsmiklum árásum í suðri. Ólíklegt er þó að þeir hafi burði til að leggja umfangsmikil landsvæði undir sig, að svo stöddu.
Á morgun eru tvö ár síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu sem leitt hefur til stærstu öryggiskrísu í Evrópu í nokkra áratugi. Formaður utanríkismálanefndar Alþingis er af þessu tilefni stödd í Kænugarði en hún segir baráttuvilja- og þrek Úkraínumanna mikið og að Evrópa þurfi að standa betur með þeim.
Svokallaðir sérfræðingar í varnarmálum flykkjast nú hver af öðrum í fjölmiðla með áróður hergagnaiðnaðirns að þjóðir Evrópu verði að setja stóraukin fjáraustur í hermangið.
Dómsmálaráðherra framlengir gildistíma 44. greinar laga um útlendinga um sameiginlega vernd Úkraínumanna vegna fjöldaflótta þeirra í kjölfar innrásar í Úkraínu. Tilkynnt verður um það í stjórnartíðindum í dag. Gildistími nýrrar framlengingar er til 2. mars á næsta ári.
Úkraínumenn eru sagðir hafa fellt tugi rússneskra hermanna með HIMARS árás á þjálfunarstað í austurhluta Úkraínu. Myndefni af vettvangi sýnir fjölda líka á víð og dreif.
Hnífstunguárásin á ungu úkraínsku körfuboltastrákana úr ART Giants Düsseldorf liðinu kostaði þá á endanum lífið.
Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að taka særða úkraínska hermenn af lífi í borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Mennirnir voru skildir eftir þegar úkraínski herinn yfirgaf borgina en forsvarsmenn hersins segja að samið hafi verið við Rússa um að hlúa að mönnunum, þar sem ekki var hægt að flytja þá á brott vegna meiðsla þeirra.
Rússneskur flugmaður sem lenti herþyrlu sinni í Úkraínu og gafst upp fyrir úkraínskum hermönnum, var myrtur á Spáni í síðustu viku. Maxim Kusmínóv var skotinn að minnsta kosti sex sinnum og síðan var ekið yfir hann.
Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður reiðubúinn til að senda Úkraínumönnum langdrægar eldflaugar ef þingið samþykkir aukna fjárhagsaðstoð til handa Úkraínu.
Fimm stærstu skráðu olíufélög heims hafa hagnast um 280 milljarða Bandaríkjadala frá því Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði innrásina í Úkraínu.
Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022.
„Ég er fædd og uppalin í þessari borg og áður en Rússarnir komu, hafði ég ekki í eitt augnablik velt því fyrir mér að flytja þaðan. Enda var ég gift, hamingjusöm, átti fjögurra ára strák, er vel menntuð og var í mjög góðu starfi hjá stóru fyrirtæki,“ segir Yulia Zhatkina flóttakona frá Úkraínu.
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.
Oleksandr Sirskí, nýr yfirmaður herafla Úkraínu, tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði skipað úkraínskum hermönnum að hörfa alfarið frá borginni Avdívka og koma ætti upp nýjum og betri varnarlínum vestur af borginni.
Úkraínskir hermenn virðast vera að hörfa frá borginni Avdívka eða hluta hennar, í austurhluta Úkraínu, eftir umfangsmiklar árásir Rússa á borgina frá því í október. Skotfæraleysi hefur leikið úkraínska hermenn grátt á undanförnum vikum en Úkraínumenn eru sömuleiðis sagðir glíma við skort á hermönnum.
Viktor Sókolóv, yfirmaður Svartahafsflota Rússlands, er sagður hafa verið rekinn úr embætti. Er það í kjölfar þess að Úkraínumenn sökktu rússnesku herskipi með drónum undan ströndum Krímskaga.
Staða Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi hefur ekki verið jafn slæm og síðan í febrúar 2022 þegar Rússar réðust inn í landið. Þetta segir Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari og íbúi í Kænugarði.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði í viðtali við rússneska sjónvarpsmanninn Pavel Zarubin í gær að hann væri þakklátur Tucker Carlson fyrir viðtalið sem hann tók við forsetann á dögunum en hann hefði ekki fengið allt út úr því sem hann vildi.
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort framlengja eigi gildistíma 44. greinar laga um útlendinga um sameiginlega vernd Úkraínumanna vegna fjöldaflótta þeirra í kjölfar innrásar í Úkraínu.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði í morgun undir ný lög sem snúa að refsingu fólks sem dæmt er fyrir að segja „ósatt“ um rússneska herinn, vanvirða hann eða fyrir mótmæli eða aðgerðir sem sagðar eru ógna öryggi ríkisins. Auk þess að sekta fólk og dæma í fangelsi, getur ríkið nú lagt hald á eignir fólks.
Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af sjálfsprengidrónaárás á rússneska herskipið Sesar Kúnikov. Skipið virðist hafa sokkið eftir árásina en þetta er fjórða skipið af þessari gerð sem Úkraínumenn hafa sökkt eða grandað.
Forsætisráðherra Póllands og kanslari Þýskalands hvetja til tafarlausrar og aukinnar hernaðaruppbyggingar og samvinnu Evrópuríkja til að bregðast við útþenslustefnu Rússa. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkt loks aukna aðstoð við Úkraínu í gærkvöldi.
Keppendur frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi mega ekki keppa undir fánum sinna þjóða á Ólympíuleikunum í París og það sem meira er að keppendur þaðan þurfa að uppfylla alls kyns skilyrði til að fá að keppa undir hlutlausum fána á leikunum.
Bandarískir öldungadeildarþingmenn samþykktu í dag frumvarp um 95,3 milljarða dala hernaðaraðstoð til Úkraínu, Ísraels og Taívan auk mannúðaraðstoðar til Palestínumanna. Frumvarpið var samþykkt eftir næturlangt málþóf nokkurra þingmanna Repúblikanaflokksins.