

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Úrslitaleikirnir á Rey Cup sýndir á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport sýnir beint frá úrslitaleikjunum á Rey Cup á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert.

Fram ekki farið í formlegar viðræður við aðra þjálfara
Agnar Þór Hilmarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir það afar þungbæra ákvörðun fyrir félagið að binda enda á samstarf sitt við Jón Þóri Sveinsson sem þjálfari karlalið félagsins í Bestu deildinni. Jón hafi tekið fréttunum af fagmennsku en engar formlegar viðræður hafa átt sér stað við mögulega arftaka Jóns í starfi til frambúðar.

Kynntu nýjan samning Birnis með Wolf of Wall Street myndbandi
Fótboltamaðurinn Birnir Snær Ingason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking.

Jón Þórir hættur með Fram
Stjórn Knattspyrnudeildar Fram hefur sagt Jóni Þóri Sveinssyni upp störfum sem þjálfara liðsins. Jón Þórir hefur verið þjálfari liðsins síðan 2018 og stýrði því upp úr 1. deild haustið 2021. Fram tapaði í gær fjórða leik sínum í röð og situr í næstneðsta sæti Bestu deildarinnar.

Óvissa um framtíð Jóns í starfi: „Neita að tjá mig um það“
Daði Guðmundsson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fram, neitar að tjá sig um það hvort þjálfaramál karlaliðs félagsins séu til skoðunar. Í bili hið minnsta eins og hann tjáði Vísi.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Fram 4-0 | Stjarnan valtaði yfir Fram
Stjarnan fékk Fram í heimsókn í kvöld á Samsungvöllinn í Garðabæ í leik sem heimamenn stjórnuðu ferðinni. Lokatölur 4-0 eftir að staðan var 1-0 í hálfleik.

Selfyssingar með sterkan sigur eftir skellinn í síðustu umferð
Selfoss vann öruggan 2-0 sigur á Grindavík í Lengjudeild karla í kvöld. Selfyssingar fengu þungan skell í síðustu umferð þegar þeir töpuðu 9-0 gegn Aftureldingu en sýndu í kvöld að þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum.

Breiðablik kaupir markahæsta leikmann kvennaliðs Keflavíkur
Blikar hafa styrkt sig fyrir lokakaflann á tímabilinu en liðið er í baráttu bæði um Íslandsmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn.

„Elska hann en við verðum óvinir í 90 mínútur, því miður“
Orri Steinn Óskarsson, framherji FC Kaupmannahafnar, segist ekki sérstaklega hrifinn af því að vera mótherji föður síns, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks. Hann vonast þó til að fá að spila í leiknum. Liðin tvö mætast í forkeppni Meistaradeildarinnar í Kópavogi í kvöld.

Edmundsson nemur land á Akureyri
Jóan Símun Edmundsson, þrautreyndur færeyskur landsliðsframherji í fótbolta, er genginn í raðir KA. Hann var meðal annars á mála hjá Newcastle United á sínum tíma.

Óli Jóh: Margt sem Arnar hefur sagt upp á síðkastið er náttúrulega bara steypa
Ólafur Jóhannesson var sérfræðingur í Stúkunni í gærkvöldi og fór á kostum eins og vanalega. Hann talaði hreina íslensku þegar kom að því að tala um ummæli þjálfara toppliðs Bestu deildarinnar að undanförnu.

„Haf á milli okkar og við sjáumst alltof sjaldan“
Óskar Hrafn Þorvaldsson segir FC Kaupmannahöfn vera sterkasta andstæðing sem hann hefur mætt sem þjálfari Breiðabliks. Blikar þurfi að vera sjálfum sér trúir í einvíginu og megi ekki líta á verkefnið sem ákveðna biðstofu fyrir næsta einvígi sem þeir eiga bókað falli þeir úr keppni. Það sé þá sérkennilegt að mæta syni sínum, Orra Steini Óskarssyni, sem er leikmaður FCK.

Sjáðu táninginn úr Árbænum klára FH og öll hin tólf mörkin í gær
Það vantaði ekki mörkin þótt að það hafi bara farið fram tveir leikir í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi.

FCK sé ekki spennt fyrir því að spila í Kópavogi
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby í Danmörku, kveðst spenntur fyrir leik Blika við FC Kaupmannahöfn. Hann stýrði Lyngby gegn dönsku meisturunum um helgina og þekkir vel til liðsins.

„Alltaf gaman að vinna hérna í lokin, ég þekki það ágætlega“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis í Bestu deild karla í knattspyrnu, var að vonum gríðarlega sáttur eftir 4-2 sigur sinna manna á lokamínútum leiksins í Kaplakrika gegn FH.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Fylkir 2-4 | Árbæingar upp úr fallsæti
FH fékk Fylki í heimsókn í Kaplakrika í Bestu deild karla í knattspyrnu. Leikurinn var æsispennandi og endirinn hreint út sagt ótrúlegur, lokatölur 2-4. Fylkir vann þar með sinn fyrsta sigur á útivelli á tímabilinu og fyrsta sigur síðan 28. maí.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KA 3-4 | KA hafði betur í markasúpu
KA vann botnlið Keflavíkur í stórskemmtilegum sjö marka leik. Staðan í hálfleik var 1-2 þar sem KA endaði fyrri hálfleik á að skora tvö mörk. Í síðari hálfleik komu mörkin á færibandi en mark Hallgríms sem var af dýrari gerðinni reyndist sigurmarkið og KA vann 3-4.

„Fyrsta rauða spjaldið sem ég fæ sem þjálfari og ég hef þjálfað í fimmtán ár“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, var afar svekktur eftir 3-4 tap gegn KA. Sigurður fékk beint rautt spjald í leiknum og að hans mati hefur dómgæslan verið ósanngjörn gagnvart Keflavík á tímabilinu.

Birnir Snær eftirsóttur
Birnir Snær Ingason, leikmaður Víkings í Bestu deild karla, verður samningslaus síðar í ár og er gríðarlega eftirsóttur.

Sjáðu draumabyrjun Arons Elíss ásamt öllum mörkunum úr Bestu í gærkvöldi
Toppliðin Víkingur og Valur fögnuðu í gærkvöldi bæði sigri í leikjum sínum í sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta en Stjörnumenn tóku aðeins eitt stig með sér úr Kórnum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-0 | Patrick Pedersen hetja Vals
Valur tók á móti Fram í einni af þremur viðureignum kvöldsins í Bestu deild karla. Leiknum lauk með 1-0 sigri Vals. Patrick Pederson skoraði markið á 16. mínútu eftir stoðsendingu Kristins Freys. Valur fer með þessum sigri upp fyrir Breiðablik í annað sæti deildarinnar, Fram situr áfram í því tíunda.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Víkingur 1-2 | Aron Elís skoraði í endurkomunni
Topplið Víkings vann KR á Meistaravöllum 1-2. Helgi Guðjónsson kom gestunum yfir eftir mistök hjá Simen Kjellevold, markmanni KR. Aron Elís Þrándarson skoraði annað mark Víkings í endurkomu sinni. Kristján Flóki minnkaði muninn úr vítaspyrnu en nær komst KR ekki.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Stjarnan 1-1 | Jafnt í Kórnum
Leikur HK og Stjörnunnar endaði með 1-1 jafntefli í Bestu deild karla í kvöld. Leikurinn fór fram í Kórnum og kom Atli Hrafn Andrason heimamönnum yfir með skalla á 16. mínútu en Adolf Daði Birgisson jafnaði leikinn í upphafi síðari hálfleiks með laglegri vippu.

Umfjöllun: Tindastóll - ÍBV 4-1 | Stólarnir upp úr fallsæti með stórsigri
Tindastóll vann gríðarlega mikilvægan sigur á ÍBV í í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í dag. Leikið var á Sauðárkróki og lauk leiknum með 4-1 sigri heimaliðsins sem er komið upp úr fallsæti.

Læknaður af „Matta Vill-sjúkdómnum“ og klár í slaginn
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, er spenntur fyrir frumraun Arons Elís Þrándarsonar sem hefur æft með liðinu um þriggja vikna skeið. Aron fékk í gegn félagsskipti í vikunni og verður í eldlínunni gegn KR á Meistaravöllum í Bestu deild karla í kvöld.

„Felldi bara tár, trúði varla því sem ég var að heyra“
Franska knattspyrnufélagið Lille lét sig ekki nægja að kaupa Hákon Arnar Haraldsson heldur fengu þeir til sín yngri bróðurinn frá ÍA, Hauk Andra. Haukur er aðeins 17 ára og segist hafa fellt tár þegar mamma hans tilkynnti honum að hann væri á leiðinni út í atvinnumennskuna, til Lille.

„Hefði getað verið áfram úti en heillaði rosa mikið að koma hingað“
Aron Elís Þrándarson er loks kominn með leikheimild og gæti spilað með Víkingum þegar þeir heimsækja KR í Bestu deild karla í dag. Hann er ánægður með að vera kominn aftur í uppeldisfélagið en hefði getað verið áfram í atvinnumennsku.

Toppliðið skoraði níu
Afturelding vann 9-0 sigur á Selfossi í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Fjölnir, Grótta og ÍA unnu sína leiki líka.

„Við eigum enn þá dálítið inni og við þurfum að sækja það í næstu leikjum“
Það var létt yfir Óskari Hrafni Þorvaldssyni, þjálfara Breiðabliks, eftir 3-1 sigur liðsins á ÍBV nú í kvöld. Blikar kláruðu leikinn í fyrri hálfleik og voru 3-0 yfir í hálfleik. Eyjamenn hresstust mikið við í seinni hálfleik en Blikar náðu þó að sigla þessu tiltölulega sannfærandi heim í seinni hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍBV 3-1 | Meistararnir kláruðu Eyjamenn í fyrri hálfleik
Breiðablik vann ÍBV í fyrsta leik 16. umferðar Bestu deildar karla nú í kvöld. Leikið var á Kópavogsvelli og fór leikar 3-1 fyrir heimamenn eins og áður segir.